Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 3
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 3
Ö llum á að vera ljóst að hreyfing er af hinu góða. Þátttaka í íþróttum er ein leið hreyfingar og hún felur í sér marga góða kosti, eykur t.a.m. heilsu
og sjálfstraust, eflir sjálfsvitund og sjálfsvirð-
ingu sem og virðingu annarra og einnig virð-
ingu fyrir öðrum. Hún treystir sameiginlega
hagsmuni og gildi og kennir félagslega færni
sem er nauðsynleg í lýðræðissamfélagi.
Hreyfing ýtir einnig undir tengslamynd-
un og traust og kemur þannig í veg fyrir
félagslega einangrun, minnkar líkur á sjúk-
dómum og hægir á öldrun.
Við getum því verið sammála um að þátt-
taka í íþróttum og hvers kyns félagsstarfi sé
heilsubrunnur fyrir líkama og sál og er óháð
aldri.
Það var út frá þessum forsendum sem
UMFÍ ákvað að láta á það reyna hvort Lands-
mót UMFI 50+ ætti ekki hljómgrunn með
þjóðinni. Ef til vill var það eins og að stökkva
út í djúpu laugina á sínum tíma án þess að
vita hvort sundtökin skiluðu okkur að landi.
Þess vegna hefur það verið svo einstaklega
gaman að fylgjast með undirbúningi og
framkvæmd mótanna fjögurra sem eru að
baki og viðtökurnar hafa verið góðar.
Ekki hefur heldur spillt fyrir að andinn, sem
hefur ríkt á mótunum, er svo einlægur og
kappsfullur, alveg eins og þátttakendur séu
að upplifa annað tveggja, þátttöku fyrri tíma
eða að upplifa það sem þeir fóru á mis við.
Gleðin og vinarþelið voru alls staðar í fyrir-
rúmi og keppnisandinn tók mið af getu hvers
og eins. Hvar sem maður kom voru allir glaðir
og brosandi og höfðu gaman af þátttökunni
og gestgjafarnir voru ánægðir með heim-
sóknirnar.
Mótið í ár var haldið á Húsavík í lok júní og
tókst vel. Allur undirbúningur og framkvæmd
var til mikils sóma og eiga Þingeyingar mikl-
ar þakkir skildar fyrir hvernig til tókst.
Landsmót UMFÍ 50+ 2015 verður haldið á
Blönduósi og árið 2016 verður það haldið á
Ísafirði og er það ósk mín að þátttakan verði
góð á báðum mótunum.
Unglingalandsmót UMFÍ eru orðin lands-
þekkt og á þau kemur fjöldi keppenda og
gesta á hverju ári um verslunarmannahelgina.
Mótið í ár verður það sautjánda í röðinni og
fer fram á Sauðárkróki. Allur undirbúningur
hefur gengið vel og öll aðstaða er til fyrir-
myndar, bæði fyrir keppendur og gesti móts-
ins. Skagfirðingar búa að mikilli reynslu af að
Gleði og vinarþel í fyrirrúmi
halda landsmót og leggja mikinn metnað í
að mótið í ár verði gott mót. Dagskráin liggur
fyrir og skráning er í fullum gangi en henni
lýkur á miðnætti þann 27. júlí.
Unglingalandsmótið er íþrótta- og fjöl-
skylduhátíð af bestu gerð og mikil upplifun
fyrir þá sem það sækja. Ekki höfðu margir trú
á að það gengi að halda slíkt mót um versl-
unarmannahelgi enda ein mesta „djamm“-
helgi sumarsins. En sem betur fer tóku lands-
menn mótinu vel og hefur þátttakan aukist
jafnt og þétt með hverju móti.
Eins og á Landsmóti UMFÍ 50+ ríkir ein-
stakur andi á Unglingalandsmóti, gleðin og
vinarþelið ráða ríkjum og hver og einn tekur
þátt á sínum forsendum. Mótið er vímuefna-
laus skemmtun. Ef þú hefur ekki upplifað
Unglingalandsmót, lesandi góður, er ekkert
annað að gera en að skella sér á Sauðárkrók
um verslunarmannahelgina og taka þátt.
Það verður gaman, því getum við lofað.
Íslandi allt!
Helga Guðrún Guðjónsdóttir
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ:
U ngmennafélag Íslands er landssam-tök ungmennafélaga á Íslandi, stofn-uð árið 1907. Markmið samtakanna
er „ræktun lýðs og lands“. Í því felst að rækta
það besta hjá hverjum einstaklingi og einnig
að leggja rækt við íslenska tungu og menn-
ingu. Ennfremur að vernda náttúru lands-
ins og að græða þau sár sem myndast hafa
í samskiptum lands og þjóðar eða fyrir til-
stuðlan náttúrunnar sjálfrar.
Hlutverk UMFÍ er að samræma starfsemi
ungmennafélaga á Íslandi og veita þjón-
ustu við aðildarfélög og félagsmenn. Einnig
kemur UMFÍ fram út á við fyrir hönd ung-
mennafélaganna, til dæmis gagnvart
stjórnvöldum og í erlendum samskiptum.
Sambandsaðilar eru 18 héraðssambönd
og 11 félög með beina aðild. Alls eru um
300 félög innan UMFÍ með yfir 100 þúsund
félagsmenn. UMFÍ leggur áherslu á að allir
geti verið með, og að þátttaka er lífsstíll.
Ágrip af sögu UMFÍ
Ungmennafélag Íslands var stofnað á
Þingvöllum 2. ágúst árið 1907, en fyrsta
ungmennafélagið, Umf. Akureyrar, var
stofnað á Akureyri í ársbyrjun 1906. Ung-
mennafélagshugsjónin fór sem eldur í sinu
um landið og barátta hófst strax fyrir betra
landi, bættri þjóð og því varð kjörorðið
„Ræktun lýðs og lands“. Hreyfingin hafði
strax mikil þjóðfélagsleg áhrif, jók félags-
þroska fólks, bjartsýni og trú á land og þjóð.
Ungmennafélagar hófu strax að klæða landið
skógi, byggðu sundlaugar og samkomuhús,
sköpuðu aðstöðu til íþróttaiðkunar, juku sam-
komuhald, héldu málfundi þar sem fólk lærði
að koma fram. Barátta hófst fyrir byggingu
héraðsskóla sem urðu undirstaða menntun-
ar í dreifbýli. Það var fátt sem ungmenna-
félagar létu sig ekki varða ef það var landi og
lýð til hagsbóta.
Árið 1909 hóf Ungmennafélag Íslands að
gefa út tímaritið Skinfaxa sem komið hefur
óslitið út síðan og haft mikið gildi. Árið 1911
gaf Tryggvi Gunnarsson bankastjóri UMFÍ
mikið landssvæði við Álftavatn. Þetta land
fékk nafnið Þrastaskógur og er ein fegursta
gróðurperla á suðvesturhorni landsins.
UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS
Fyrsta landsmót Ungmennafélags Íslands
var haldið árið 1909 og urðu þau tvö í byrjun.
Síðan voru mótin endurreist árið 1940 og
hafa verið haldin óslitið síðan, þriðja hvert
ár. Landsmótin eru nú orðin 27 frá upphafi.
Þar koma þúsundir félaga saman og reyna
með sér. Mótin hafa verið kölluð Ólympíu-
leikar Íslands enda stærstu og glæsileg-
ustu íþróttamót sem haldin eru á landinu.
Árið 1992 hófust á vegum UMFÍ Ungl-
ingalandsmót og hafa 16 mót verið haldin.
Árið 2011 fór fram fyrsta Landsmót UMFÍ
50+ á Hvammstanga en mótið er haldið á
hverju ári.
Ungmennafélagshreyfingin rekur þjón-
ustumiðstöð UMFÍ í Sigtúni 42 í Reykjavík,
þaðan er hinum rúmlega 100 þúsund
félagsmönnum þjónað.
Starfið er mjög fjölbreytt um allt land
þar sem stunduð er fjölþætt menningar-
og íþróttastarfsemi. Íþróttir eru fyrirferðar-
mestar en fjölmargt annað fer þar fram.
Til dæmis halda nokkur félög uppi öflugri
leiklistarstarfsemi og mörg taka mikinn
þátt í umhverfisverkefnum. Hefur hreyfin-
gin í heild unnið þar viðamikið starf.
Ungmennafélögin gegna víða veiga-
miklu hlutverki í æskulýðsstarfi sveitar-
félaga og sinna margvíslegum verkefnum í
samstarfi við sveitarfélög. Ungmennafélag
Íslands tekur mikinn þátt í erlendu sam-
starfi og þá mest innan Norðurlandanna.