Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 24

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 24
24 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 64. sambandsþing Ungmenna- og íþrótta- sambands Austurlands var haldið á Djúpa- vogi 30. mars sl. Þingið gekk vel, fjöldi tillagna lá fyrir en fram kom að mikill kraftur er í allri starfsemi sambandsins sem stendur einnig vel fjárhagslega. Gunnar Gunnarsson var endurkjörinn formaður UÍA sem og aðalstjórn. Hrönn Jónsdóttir, stjórnarmaður í UMFÍ, flutti kveðju stjórnar og sæmdi Andrés Skúlason starfsmerki UMFÍ. Andrés sat í stjórn Neista í fjölda ára fyrir aldamót, var formaður í kringum aldamótin síð- ustu en hætti um 2002. Eftir það hefur hann verið á hliðarlínunni og hlúir vel að starfi ungmennafélagsins í gegnum störf sín sem oddviti og forstöðumaður íþróttamiðstöðvar Djúpavogs. Andrés er ávallt tilbúinn til að taka þátt í og hjálpa til við ýmsa viðburði á vegum félagsins. Starfsmerki UÍA hlutu tvær Neistakonur, þær Kristborg Ásta Reynisdóttir sem sat fjöl- mörg ár í stjórn, mætir á alla viðburði og er ávallt fyrst til að bjóða fram aðstoð og Klara Bjarnadóttir sem sat samfellt í 6 ár í stjórn og hefur starfað í sund- og yngriflokkaráði félagsins. Hún mætir á alla viðburði og hefur Sambandsþing Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands: Gunnar Gunnarsson endurkjörinn formaður ávallt verið tilbúin til að hjálpa þegar þess hefur verið þörf. Eva Dögg Jóhannsdóttir, glímu- kona í Val á Reyðarfirði, var útnefnd íþróttamaður UÍA 2013. Eva hefur stundað íþróttir frá unga aldri og er fjölhæf íþróttakona. Hún hefur æft glímu hjá Val síðustu átta ár. Á glímu- vellinum þykir Eva Dögg bæði lipur og sterk auk þess að vera mikil keppnismanneskja sem leggur hart að sér við æfingar og keppni. Eva er ætíð tilbúin að hjálpa til við hvers kyns verkefni sem koma upp og varða glímuna og félagsstarf hjá Val. Hún er búin að ná sér í dómararétt- indi í glímu og dæmir nú hjá yngri keppendum. Auk titilsins íþrótta- maður UÍA 2013 hlaut Eva Dögg glæsilegan farand- og eignarbikar og 100.000 kr. styrk úr Spretti, afrekssjóði UÍA og Alcoa. Klara Bjarnadóttir og Kristbjörg Ásta Reynisdóttir voru sæmdar starfsmerki UÍA. 14. héraðsþing HSV var haldið 5. júní í Há- skólasetri Vestfjarða. Tókst þingið vel í alla staði. Þingforseti var Marinó Hákonarson og stýrði þinginu með myndarbrag. Lagðir voru fram ársreikningar ársins 2013 sem sýndu að rekstur HSV er í góðum höndum og gott jafnvægi fjármálum sambandsins. Þá var lögð fram skýrsla stjórnar sem sýndi grósku- mikið starf síðasta árs. Jón Páll Hreinsson lét af störfum sem formaður eftir átta ára setu og var honum þakkað og hælt á víxl gegnumgangandi allt þingið enda hefur hann verið mikill og far- sæll leiðtogi HSV þennan tíma. Nýr formaður var kjörinn Guðný Stefanía Stefánsdóttir. Héraðsþing Héraðssambands Vestfirðinga: Guðný Stefanía Stefánsdóttir nýr formaður HSV Guðný Stefanía Stefáns- dóttir, nýkjörinn formaður HSV, ásamt Jóni Páli Hreinssyni, fráfarandi formanni. Sæmundur Runólfsson, framkvæmda- stjóri UMFÍ, ávarpaði þingið og sæmdi Jón Pál Hreinsson gullmerki UMFÍ. Anna Lind Ragnarsdóttir og Hulda Gunnarsdóttir voru sæmdar gullmerki UMFÍ fyrir áralangt gott starf innan ungmennafélagshreyfingarinnar, sem burðarásar í starfi Ungmennafélagsins Geisla í Súðavík. Þá voru veitt tvö silfurmerki HSV en þau hlutu Óðinn Gestsson og Ingólfur Þorleifsson fyrir gott starf innan HSV. Þá hlaut Jóhann Króknes Torfason gullmerki HSV fyrir langt og óeigingjarnt starf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Guðný Helgadóttir var endurkjörin formaður Ungmenna- og íþróttasambands Fjalla- byggðar á ársþingi sambandsins sem haldið var í íþróttamiðstöðinni Hóli á Siglufirði 22. maí sl. Guðný Helgadóttir, nýendurkjörinn for- maður UÍF, þakkaði traustið sem henni væri sýnt og sagði að það væri gefandi að vinna með góðu fólki. Hún tilkynnti jafnframt að ákveðið hefði verið að veita hverju aðildar- félagi 80 þúsund króna styrk úr verkefna- sjóði UÍF. Ársþing Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar: Þakklát fyrir traustið sem mér var sýnt Stjórn UÍF skipa: Guðný Helgadóttir, for- maður, Sigurður Gunnarsson, Sigurpáll Gunnarsson, Þórarinn Hannesson og María Elín Sigurbjörnsdóttir. Í varastjórn eru Óskar Þórðarson og Ragnheiður Ragnarsdóttir. Sæmundur Runólfsson, framkvæmda- stjóri UMFÍ, ávarpaði þingið og sæmdi þau Helgu Hermannsdóttur og Kristján Hauks- son starfsmerki UMFÍ. Hann færði einnig sambandinu silfurskjöld í tilefni 5 ára afmælis Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar. Sæmundur Runólfs- son, framkvæmda- stjóri UMFÍ, ásamt Guðnýju Helga- dóttur, formanni UÍF, sem tók við silfurskildi frá UMFÍ í tilefni 5 ára afmælis UÍF.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.