Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 34

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 34
34 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Eftirtaldir aðilar styðja starfsemi Ungmennafélags Íslands: Hellissandur KG Fiskverkun ehf., Melnesi 1 Kristinn J. Friðþjófsson ehf., Háarifi 5, Rifi Reykhólahreppur Reykhólahreppur, Maríutröð 5a Ísaförður Útgerðarfélagið Kjölur ehf., Urðarvegi 37 Ævintýradalurinn ehf., Heydal Patreksfjörður Albína verslun ehf., Aðalstræti 89 Tálknafjörður Gistiheimilið Bjarmalandi ehf., Bugatúni 8 Þórsberg ehf., Strandgötu 25 Norðurfjörður Hótel Djúpavík ehf., Djúpuvík Sauðárkrókur Kaupfélag Skagfirðinga, Ártorgi 1 K-Tak ehf., Borgartúni 1 Steinull hf., Skarðseyri 5 Verslun Haraldar Júlíussonar, Aðalgötu 22 Vinnuvélar Guðmundar/Skúla sf., Borgarröst 4 Varmahlíð Ferðaþjónustan Bakkaflöt, Bakkaflöt Akureyri Framtal sf., Kaupangi, Mýrarvegi Hnjúkar ehf, Kaupvangi, Mýrarvegi Grenivík Brattás ehf., Ægissíðu 11 Dalvík O. Jakobsson ehf., Ránarbraut 4 Húsavík Harðverk ehf., Birkimel Laugar Framhaldsskólinn á Laugum, Laugum Reykjadal Kópasker Vökvaþjónusta Eyþórs ehf., Bakkagötu 6 Vopnafjörður Hólmi NS-56 ehf., Hafnarbyggð 23 Egilsstaðir Bílamálun Egilsstöðum ehf,, Fagradalsbraut 21–23 Bókráð, bókhald og ráðgjöf ehf., Miðvangi 2–4 Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf., Einhleypingi 1 Seyðisfjörður Gullberg ehf., Langatanga 5 Seyðisfjarðarkaupstaður, Hafnargötu 44 Stöðvarfjörður Steinasafn Petru ehf., Fjarðarbraut 21 Selfoss Vélaverkstæði Þóris ehf., Austurvegi 69 Flóahreppur, Þingborg Hveragerðir Eldhestar ehf., Völlum Framleiðum barmmerki í öllum stærðum og gerðum. Mikið úrval af bikurum og verðlaunapeningum. Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 17 eða hafið samband í síma 588-3244 fax 588-3246 netfang: isspor@simnet.is U m miðjan júní var ég svo heppin að fá tækifæri til að fara til Frakklands á námskeið á vegum UMFÍ. Þetta tiltekna námskeið var skref númer 2 í Yes We Run-námskeiðaröðinni og var haldið í Graçay í Frakklandi, töfr- andi litlum bæ með ævintýralegri náttúru. Aðalumræðuefni þessarar viku var alþjóðleg verkefnaskipu- lagning. Þá vorum við helst að deila reynslu og upplifunum, spyrja spurninga og kynn- ast hvert öðru. Þetta er jú líka hugsað að miklu leyti fyrir tengslamyndun á milli landa. Það er svo frábært þegar saman koma þetta margar þjóðir til að vinna að sama markmiðinu, að stuðla að heil- brigðu líferni og hreyfingu, að finna hvað við eigum margt sameiginlegt. Evrópa minnkar svo sannarlega þegar maður kynnist fólki úti um hana gjörvalla! Ég var eini þátttakandinn frá Íslandi en það voru þátttakendur meðal annars frá Búlgaríu, Skot- landi, Ítalíu, Ungverjalandi og Dan- mörku. Við nutum þess að vera í góða veðrinu, deila reynslu og ræða hugmyndir. Ég kom til baka með stútfullt höfuð af nýjum og skemmtilegum hugmyndum, frá- bærum vinum og andblástur í brjósti. Með því að fara út og sjá hvað margir eru að gera það sama og stefna að svipuðum markmið- um finnur maður mikinn styrk og gleði. Ég kom alla vega alsæl heim og tilbúin til þess að takast á við ný og krefjandi verkefni. Vil helst bara drífa í þeim strax. Ég hef farið á svipuð alþjóðleg námskeið áður og finn hve mikið ég græði í hvert skipti. Græði nýja vini, sterkari sjálfsmynd og meiri drifkraft. Hlakka til að nýta mér allt sem ég lærði á komandi misserum í Ungmenna- ráðinu og deila því með hinum. Svo auðvitað líka að flakka um Evrópu og heimsækja alla nýju vini mína. Harpa Hreinsdóttir sótti námskeið í Frakklandi: Kem til baka með nýjar og skemmtilegar hugmyndir

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.