Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 27

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 27
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 27 Aðalfundur Ungmennafélagsins Óðins í Vest- mannaeyjum var haldinn í íþróttamiðstöð- inni 15. maí sl. Fundurinn var fremur fámenn- ur þar sem flestir Eyjamenn voru uppi á landi að fagna Íslandsmeistaratitli í handknattleik. Fundurinn tókst engu að síður vel og er bjartsýni ríkjandi hjá félaginu sem leggur megináherslu á frjálsar íþróttir. Helgi Gunnars- son, fjármálastjóri UMFÍ, mætti á fundinn og flutti kveðjur frá Ungmennafélagi Íslands, stjórn og starfsfólki. Aðalfundur Ungmennafélagsins Óðins: Bjartsýni ríkjandi hjá félaginu Ný stjórn Umf. Óðins: Örvar Guðni Arnar- son, Karen Inga Ólafsdóttir og Kolbrún Lilja Ævarsdóttir. Þing HSH var haldið á Hótel Hellissandi 29. mars sl. Þingið hafði áður verið dagsett 20. mars en því varð að fresta vegna veðurs. Þingið var starfsamt og meðal ályktana þess voru áskoranir til UMFÍ og ÍSÍ um að halda áfram með þátttöku í ánægjuvoginni. Einnig var samþykkt áskorun á mennta- og men- ningarmálaráðuneytið um að efla ferða- sjóð íþróttafélaga og um rekstrarstyrk til íþróttahéraða. Þingforseti var Kjartan Páll Einarsson og ritarar voru María Valdimars- dóttir og Harpa Jónsdóttir. Framboð til formanns var dregið til baka og var ákveðið framhaldsþing til að uppfylla kjör formanns og stjórnar. Auk Hermundar Pálssonar gekk Garðar Svansson úr stjórn en Kristján Magni Oddsson, Sólberg Ásgeirsson og Elín Kr. Halldórsdóttir eru áfram í stjórn. Uppstillingarnefnd ásamt stjórn var falið að koma með tillögur innan þriggja vikna um framboð til formanns og stjórnarmanns. Á þinginu flutti Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, kveðjur frá stjórn og starfsfólki UMFÍ. Þá sæmdi hann Hörpu Jónsdóttur, Íþróttafélagi Miklaholtshrepps, starfsmerki UMFÍ. Þing Héraðssambands Snæfellsness- og Hnappadalssýslu: Hörpu Jónsdóttur veitt starfsmerki UMFÍ Sæmundur Runólfs- son, framkvæmda- stjóri UMFÍ, sæmdi Hörpu Jónsdóttur, Íþróttafélagi Mikla- holtshrepps, starfs- merki UMFÍ. Ný stjórn var kjörin á fundinum sem er þannig skipuð: Formaður er Örvar Guðni Arnarson og meðstjórnendur Karen Inga Ólafsdóttir og Kolbrún Lilja Ævarsdóttir. Blátt áfram fagnaði 10 ára afmæli samtakanna miðvikudaginn 23. apríl síðastliðinn með afmælisráðstefnu félagsins sem var haldin á Icelandair Hotel Reykjavík Natura. Tóku ráðstefnugestir þátt í umræðum og skiptust á hugmyndum um forvarnir á Íslandi og hvað mætti gera betur í forvörnum næstu 10 árin. Á þessum tímamótum heiðraði Blátt áfram aðila sem hafa að mati samtakanna skarað fram úr í forvörnum gegn kynferðis- ofbeldi á börnum. Blátt áfram vill með þessum þakklætisvotti hvetja þessa aðila til að halda ótrauðir áfram og þakkar þeim fyrir að vera verndarar barna á Íslandi. Íþróttir eru þverskurður af þjóðfélaginu. Það sem fyrirfinnst i þjóðfélaginu finnst líka í íþróttum og ekki má horfa fram hjá því. Því er mikilvægt að allir þeir sem starfa með börnum taki hlutverk sitt alvar- lega og verndi börnin. Ungmennafélag Íslands tók fyrsta skref- Blátt áfram veitti UMFÍ viðurkenningu ið í forvörnum gegn kynferðisofbeldi á börn- um hér á landi. Blátt áfram var verkefni UMFÍ fyrstu tvö árin. UMFÍ gerði sér grein fyrir mikil- vægi fræðslu í samfélaginu og hefur haldið Systurnar Svava og Sigríður Björnsdætur ásamt Helgu Guðrúnu Guðjónsdóttur, formanni UMFÍ. því áfram. Fram kom að án UMFÍ hefði Blátt áfram ekki orðið til. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, veitti viðurkenningunni móttöku .

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.