Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 16

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 16
16 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands B jörgvin Páll er mikill íþrótta- maður og hefur mikinn metnað til að komast sem lengst í íþrótt sinni. Það gerist ekki af sjálfu sér en þrotlausar æfingar hafa komið honum í þá stöðu að leika í bestu deild handboltans í heiminum. Kröfurnar þar eru miklar en Björgvin hefur staðið sig vel og er að hefja sjöunda ár sitt í atvinnumennskunni. Björgvin Páll var ný- farinn til Þýskalands þegar viðtalið fór fram en æfingar fyrir næsta tímabil eru hafnar. Undirbúningstímabilið í þýska handbolta- num þykir mjög erfitt og dagarnir langir og strangir. Björgvin Páll, sem verður 29 ára gamall á þessu ári, er fæddur á Hvammstanga. Dvölin á Hvammstanga varð ekki löng en þaðan lá leiðin í Kópavoginn og loks til Reykjavíkur þar sem hann kynntist eiginkonu sinni, Karenu Einarsdóttur. Saman eiga þau eina dóttur sem er að verða eins árs. Tilviljun að handboltinn varð fyrir valinu „Ég hef verið um átta ára gamall þegar ég fór að æfa íþróttir af einhverri alvöru. Ég var í byrjun í flestum boltaíþróttum og einnig í fimleikum og dansi. Að æfa svona margar greinar í upphafi jók bara hreyfigetuna og ég er viss um að það hefur aðeins gert mér gott. Ég var ofvirkur sem krakki og þurfti því mikla útrás. Að því kom að ég þurfti að gera upp hug minn, í hvaða íþrótt ég ætlaði að vera. Handboltinn varð fyrir valinu en það var bara tilviljun. Ég var aldrei hræddur við að standa á milli stanganna og þegar upp var staðið var þetta hárrétt ákvörðun hjá mér,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson í spjalli við Skinfaxa. Eiginkonan mikill Framari Björgvin Páll sagðist hafa alist upp í HK í Kópavogi. Síðan lék hann með Víkingi í tvö ár, með ÍBV tímabilið 2003 og loks í Fram þaðan sem hann fór í atvinnumennskuna. Eiginkona hans er mikill Framari eins og allt tengdafólk hans. Tvisvar markvörður ársins Björgvin hóf atvinnumennskuna með þýska liðinu Bittenfeld en hélt þaðan til sviss- neska liðsins Kadetten Schaffhausen og lék þar við frábæran orðstír. Hann var valinn mark- vörður ársins 2010 og 2011 og var valinn í lið ársins þar í landi. Hann vann auk þess titla með liðinu. Hann fór á nýjan leik til Þýska- lands og gekk í raðir Magdeburg og lék með liðinu í tvö ár. Björgvin Páll er núna að hefja sitt annað tímabil með Bergischer HC. Dvölin í Sviss góður skóli „Ég spilaði mikið með Bittenfeld á fyrstu árum mínum í Þýskalandi og það var mikil og góð reynsla fyrir mig. Ég fór síðan til Sviss BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON í mun betra lið og fékk að spila mikið með lið- inu. Þarna áskotnaðist mér reynsla og dvölin í Sviss var góður skóli. Ég fór á nýjan leik til Þýskalands og lék með Magdeburg í tvö ár þaðan sem ég fór til Bergischer HC sem ég leik með í dag. Þýskaland er Mekka hand- boltans enda er gríðarlegur áhugi á hand- bolta í Þýskalandi, leikirnir eru vel sóttir og stemningin er einstök. Ég er bjartsýnn fyrir næsta tímabil. Liðinu gekk lengstum vel á síðasta tímabili og við mætum núna til leiks reynslunni ríkari. Maður veit ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér og kannski á maður eftir að fá tækifæri til að leika í Frakklandi eða á Spáni, hver veit? Tíminn í atvinnumennsk- unni líður hratt og því er gott að nýta tímann vel,“ sagði Björgvin Páll. Lærður bakari Björgvin Páll er bakari að mennt. Hann er stúdent frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla, einkaþjálfari frá Íþróttaakademíu Keilis, íþróttaþjálfari frá Íþróttaakademíu Keilis og leggur stund á fjarnám í viðskiptafræði við Háskólanum á Bifröst. Stofnaði tvö fyrirtæki „Ég hef mikinn áhuga á viðskiptum og hef stofnað tvö fyrirtæki. Það er eins víst að maður eigi eftir að vinna við þetta þegar atvinnumennskunni lýkur. Það er langt í það því að ég stefni að því að vera í atvinnu- mennsku næstu tíu árin ef skrokkurinn leyfir. Þegar maður snýr heim aftur á einhverjum tímapunkti verður maður í vinnu tengdri viðskiptum og eflaust handboltanum líka. Handboltinn mun alltaf spila hlutverk hjá manni,“ sagði Björgvin Páll. Draumurinn rættist Björgvin Páll sagði það forréttindi að hafa handboltann að atvinnu. Það hefði alltaf verið draumur hans að komast í atvinnu- mennsku og sá draumur hefði ræst. „Þýskaland er Mekka hand- boltans enda er gríðarlegur áhugi á handbolta í Þýska- landi, leikirnir eru vel sóttir og stemningin er einstök.“ Björgvin Pál Gústavsson, landsliðsmarkmann í handknattleik, þarf vart að kynna en hann hefur varið mark íslenska landsliðsins síðustu ár af stakri prýði. Upp úr standa silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og brons- verðlaun á Evrópumótinu í Austurríki 2010.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.