Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 13
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 13 Óskaplega gaman af þessu „Eins og gefur að skilja fer mikill tími í æfingar en ég hef bara óskaplega gaman af þessu. Ég hef alltaf einsett mér að standa mig vel í því sem ég tek mér fyrir hendur og metnaðurinn er mikill að standa sig vel á hlaupabrautinni,“ sagði Aníta Hinriksdóttir í samtali við Skinfaxa en hún hóf að æfa frjáls- ar íþróttir þegar hún var 10 ára gömul. Frjálsar heilluðu mest „Ég prófaði í byrjun allar greinar innan frjálsra íþrótta og svo var ég í sundi, körfu- bolta og ýmislegu öðru. Það kom síðan í ljós að frjálsar íþróttir heilluðu mig mest og hlaupin urðu ofan á í þeim efnum,“ sagði Aníta. Ætla að æfa vel - Hvernig sérð þú fyrir þér næstu árin hjá þér, kannski þá sem frjálsíþróttakonu í fremstu röð? „Það er stefnan á meðan ég hef gaman af þessu. Ég ætla að æfa vel eins og ég hef alltaf gert en maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér.“ Unglingalandsmót UMFÍ eru frábær Aníta keppti á Landsmóti UMFÍ á Selfossi í fyrrasumar og hefur auk þess keppt á nokkr- um Unglingalandsmótum í gegnum tíðina. Hún segist alltaf hafa notið sín á þessum mót- um og að það sé gaman að hafa tekið þátt í þeim. „Unglingalandsmót UMFÍ eru frábær hvert sem litið er, góð og jákvæð reynsla. Á mótun- um hefur ég kynnst mörgum krökkum og tekið þátt í greinum sem ég er ekki vön að keppa í. Það hefur verið mjög gaman og góð stemning. Krakkar og unglingar eiga að nota þetta tækifæri, að keppa við jafnaldra sína í góðu umhverfi. Þátttakan í mótunum hefur líka gefið manni tækifæri til að ferðast um landið.“ Allt saman gengur upp að lokum - Hvernig hefur gengið hjá þér að sameina æfingar og námið? „Það hefur bara gengið vel en þegar maður skipuleggur tímann vel þá gengur þetta allt saman upp að lokum. Það er ekkert ákveðið hvað ég geri þegar stúdentsprófinu lýkur, jafnvel að æfa erlendis. Ég ætla fyrst að sjá hvað mig langar til að læra. Ég er að æfa með flottum æfingahópi hér heima og aðstæð- urnar eru ágætar. Ég ætla bara að vona að framtíðin sé björt hjá mér,“ sagði Aníta en hún leggur stund á nám við Menntaskólann í Reykjavík. Æfa vel og skipulega - Hvaða góð ráð gefur þú börnum og ungl- ingum sem eru að æfa íþrótt sína? „Fyrst og fremst að hafa gaman af því sem „Eins og gefur að skilja fer mikill tími í æfingar en ég hef bara óskaplega gaman af þessu.“ þau eru að gera og æfa vel með skipulögð- um hætti,“ sagði Aníta Hinriksdóttir í spjall- inu við Skinfaxa. Við upphaf 1500 m hlaups kvenna á Meistaramóti Íslands á dögunum þar sem Aníta Hinriksdóttir sigraði með miklum yfirburðum. María Birkisdóttir, Guðlaug Edda Hannesdóttir, Fríða Rún Þórðardótt- ir og Helga Guðný Elíasdóttir eru hér með Anítu við rásmarkið.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.