Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 17

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 17
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 17 Er kagginn kominn með skoðun? Keyrum örugg um vegi landsins og látum skoða bílinn þar sem reynslan er mest! - örugg bifreiðaskoðun um allt land Netfang: frumherji@frumherji.is · www.frumherji.is BE TR I S TO FA N Það er metnaður okkar hjá Frumherja að veita góða þjónustu og hagstæð kjör á skoðunum. ÞJÓNUSTUVER TÍMAPANTANIR OG UPPLÝSINGAR 570 9090 „Atvinnumennskan er ekki fyrir alla og þetta er harður heimur. Það er ekkert gefið eftir og menn þurfa að hafa fyrir hlutunum. Það má aldrei slá slöku við. Þetta er ofsalega gaman þegar vel gengur og að fá greitt fyrir íþróttaiðkun sína,“ sagði Björgvin Páll. Þú verður að hafa gaman og æfa íþróttina markvisst - Á Björgvin góðar ráðleggingar handa þeim sem hafa sett sér það markmið og eiga þann draum að gerast atvinnumenn? „Það skiptir engu máli hvaða íþrótt á í hlut, það er tvennt sem hafa verður í huga að mínu mati. Þú verður að hafa gaman af því að stunda íþróttina og æfa markvisst. Einhvers staðar stendur að æfingin skapi meistarann og það eru orð að sönnu. Þú verður að finna sjálfan þig og æfa markvisst með skipulögð- um hætti.“ Keppti einu sinni á héraðs- móti USVH Björgvin Páll er inntur eftir því hvort hann hafi keppt á mótum á vegum Ungmenna- félags Íslands. „Ég gerði það aldrei en veit að þessi mót eru skemmtileg og eiga sér mikla sögu. Ég keppti þó einu sinni á héraðsmóti USVH á Alltaf draumur minn að komast í atvinnumennsku „Þú verður að finna sjálfan þig og æfa markvisst með skipulögðum hætti.“ Hvammstanga. Ég tók þátt í boðhlaupi þegar ég var í heimsókn hjá föður mínum og við gerðum bara vel og hrepptum silfurverð- laun. Þessu hlaupi man ég vel eftir,“ sagði Björgvin Páll. Erum oft vanir að velja okkur erfiðari leiðina - Ef við snúum okkur að landsliðinu. Var ekki sárt að sjá á eftir sætinu á HM í Katar? „Jú, það var gríðarlega sárt að sitja eftir. Það var alltaf markmiðið hjá okkur að kom- ast til Katar en því miður gekk það ekki eftir. Við munum bretta upp ermar og gera betur fyrir næstu keppni. Við eigum möguleika að koma okkur á Ólympíuleikana í Ríó 2016 og að því verður stefnt með öllum ráðum. Nú er bara að vinna rétt og skynsamlega úr hlutun- um og við erum oft vanir að velja okkur erfið- ari leiðina,“ sagði Björgvin Páll í viðtalinu við Skinfaxa.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.