Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 10

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Hreyfivikan „Move Week“ er samevrópsk her- ferð sem hefur það að markmiði að kynna kosti þess að taka virkan þátt í hreyfingu og íþróttum reglulega. ISCA-samtökin (International Sport and Culture Association) halda utan um verkefnið en Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) er aðili að samtökunum og fylgir því eftir hérlendis. ISCA vinnur með mörgum grasrótarsamtök- um um allan heim að þessu markmiði. Megin- markmið allra grasrótarsamtaka ISCA er að efla samstarf ólíkra hópa með það að mark- miði að auka þátttöku almennings í hreyf- ingu og íþróttum. Framtíðarsýn samstarfs- aðila er „að 100 milljónir fleiri Evrópubúa verði orðnir virkir í hreyfingu og íþróttum fyrir árið 2020“. Fyrsta ár herferðarinnar var 2012 en þá tóku einstaklingar, stofnanir og borgir um alla Evrópu þátt í stórum stíl. Fyrsta herferðin fór fram í október en þá voru haldnir yfir 100 viðburðir í 23 löndum með um 140.000 þús- und þátttakendum. Á Íslandi voru haldnir um 30 viðburðir um allt land og voru þátttakend- ur nokkur hundruð. Hreyfivikan á Fljótsdalshéraði fékk verðlaun 2013 Í fyrra fjölgaði þátttakendum um allan heim en 37 Evrópuþjóðir tóku þátt og útlit fyrir að þeim fjölgi enn frekar í ár. Hjá UMFÍ er útlit fyrir að enn fleiri sambandsaðilar taki þátt í herferðinni og einkaaðilar að sama skapi. Hreyfivikan á Fljótsdalshéraði 2013 var eitt af níu verkefnum sem hlutu verðlaun „Move Week“ 2013 fyrir samvinnu ólíkra aðila innan sveitarfélags. En það var samstarf margra ólíkra þátta sem kom að verkefninu sem vakti athygli út fyrir landsteinana. Almenningsíþróttaverkefni án uppskriftar Segja má að herferðin sé almennings- íþróttaverkefni án uppskriftar þar sem eina markmiðið er að fá fólk til að hreyfa sig og taka þátt í hverju því sem hentar því sjálfu. Sambandsaðilar eru hvattir til að nýta Hreyfi- vikuna til að kynna það öfluga og góða starf sem þegar er í boði og brydda upp á einhverj- um nýjungum sérstaklega í hreyfivikunni til að hvetja fólk til þátttöku. Mikilvægt er að fá sem flesta aðila, fyrirtæki og hópa samfélags- ins í lið með sér líkt og Fljótsdalshérað sýndi og sannaði á síðasta ári til að gera gott sam- félag enn betra. Langtímamarkmið UMFÍ horfir á verkefnið til langs tíma líkt og herferðin er langtímamarkmið og hvetur því aðila til að byrja smátt og bæta við á næsta ári í stað þess að fara of bratt af stað. Einfaldir viðburðir hitta oftar en ekki í mark og litlu hlutirnir skipta máli. Ganga með leik- skólabörn á dvalarheimili á nágrenninu og slá upp harmonikkuballi er dæmi um snið- ugan viðburð sem hvorki krefst mikils undir- búnings né kostnaðar en skilur mikið eftir sig fyrir báða aldurshópa. Ungmennafélag Íslands fagnar öllum þeim sem áhuga hafa á að taka þátt og breiða út með okkur boðskapinn um mikilvægi hreyfingar fyrir alla. Sabína Steinunn Hall- dórsdóttir landsfulltrúi heldur utan um verk- efnið fyrir UMFÍ og er ávallt boðin og búin til að veita enn frekari upplýsingar og styðja þá sem vilja taka þátt á einn eða annan máta. Hreyfivikan Í áranna rás hafa þjóðir þekkt og lagt rækt við þau einföldu sannindi að lykillinn að góðri heilsu felist meðal annars í nægilegri hreyfingu og heilbrigð- um lifnaðarháttum. Rannsóknir hafa leitt í ljós að hreyfing- arleysi getur haft í för með sér fjölmarga sjúkdóma. Offita er algengasta afleiðing hreyfingarleysis og stuðlar oft að því að aðrir kvillar og/eða langvinnir sjúkdómar hrjái einstaklinga. Þannig eru þeir sem þjást af offitu taldir líklegri til að glíma við áunna sykursýki, hjarta- og æðasjúkdóma, krabbamein, andlega vellíðan, gallsteina, gigt og kvilla í stoðkerfi, svo sem mjóbaks- verki, slit í hnjám, baki, mjöðmum, ökklum og hrygg. Ungmennafélag Íslands hefur ákveðið að gefa verkefnum á sviði almennings- íþrótta enn meira vægi í starfsemi félags- ins í því augnamiði að vekja fólk til um- hugsunar um mikilvægi hreyfingar og hollra lifnaðarhátta. Ástundun almenn- ingsíþrótta höfðar til allra aldurshópa og tekur mið af hverjum einstaklingi, hver stundar sína íþrótt á sínum forsendum. Mikilvægast er að sérhver einstaklingur finni íþrótt sem hann getur stundað sér til heilsubótar og síðast en ekki síst ánægju. ALMENNINGSÍÞRÓTTIR OG ÚTIVIST

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.