Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Dagana 9.–11. apríl sl. var ráð- stefnan Ungt fólk og lýðræði haldin í fimmta sinn og nú á Ísafirði. Þema ráðstefnunnar var að þessu sinni Stjórnsýslan og við – áhrif ungs fólks á stjórnsýsluna. Þetta þema er mikilvægt ungu fólki sem margt hvert gekk til kosninga í vor sem leið í fyrsta sinn. Ungmennafélag Íslands hefur ávallt lagt áherslu á lýðræðislega þátttöku ungs fólks og hefur ráðstefnan ævinlega vakið mikla lukku meðal þátttakenda. Ráðstefnan á Ísafirði tókst með ágætum Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði, hald- in á Ísafirði 9.–11. apríl 2014, skorar á stjórnvöld, jafnt ríki sem sveitarfélög, að leita meira til ungmenna og taka tillit til skoðana þeirra á málefnum samfélagsins, einkum þeim er varða ungmennin sjálf. Við teljum að ungt fólk sé nægilega þroskað til að geta myndað sér skoðun sem vert er að taka mark á. Við teljum að mikilvægt sé að hlusta á skoðanir ungs fólks á meðan þær eru ómótaðar og frjálslegar, enda koma þau oft með áhugaverðar hugmyndir sem fara út fyrir hefðbundna hugsun. Við viljum efla upplýsingaflæði milli allra aldurshópa. Við hvetjum öll ungmenni til þess að stíga fram og sýna áhuga á málefnum líðandi stundar, til þess að auka virð- ingu og traust til ungmenna um allt land. Við teljum nauðsynlegt að efla gagn- rýna hugsun og sköpunargleði nem- enda í skólum landsins. Við viljum að ungmenni fái að taka virkan þátt í skipulagningu almenn- ingssamgangna í nærumhverfi okkar. Samgöngumál eru hagsmunamál ungs fólks þar sem þau hafa áhrif á atvinnutækifæri, námsmöguleika og annað starf ungs fólks. Góðar sam- göngur eru forsenda þess að ungt fólk geti stundað íþróttir og tómstundir óháð búsetu. Við viljum að jafnréttis- og kynja- fræði verði hluti af grunn- og fram- haldsskólanámi á Íslandi. Við viljum fræðslu um fjármálalæsi og stjórnmál á öllum stigum skóla- kerfisins. Við lýsum yfir áhyggjum okkar af takmörkuðum möguleikum ungs fólks til að sækja sér fjölbreytta atvinnu þar sem það á við. Við leggjum til að kosningaaldur í sveitarstjórnarkosningum verði lækk- aður niður í 16 ár. Með þeim hætti gæti ungt fólk tekið virkan þátt í stjórnmál- um í nærumhverfi sínu til þess að auka áhuga ungs fólks á stjórnmálum. Myndi það stuðla að virkri þátttöku ungmenna síðar meir í stjórnmálum. Við viljum hvetja ungmennaráð til að auka sýnileika, þannig að ungt fólk geri sér grein fyrir því að þau geti borið ýmis málefni undir ráðin sem komi þeim svo á framfæri. Að eflt verði framboð á félagsstarfi fyrir ungt fólk á bilinu 16–25 ára, þá sérstaklega ungmenni á aldrinum 16–18 ára, með því að útbúa skýr markmið um ungmennahús á Íslandi. Stofnaður verði sjóður sem ung- menni geti sótt um styrk í til þess að koma til móts við þau varðandi aðgengi að frístundastarfi, til dæmis vegna vegalengdar og fjárhags. Ályktun ráðstefnunnar Að þessu sinni sóttu sjötíu einstakl- ingar ráðstefnuna, bæði ungmenni sem starfa í ungmennaráðum víðs vegar um landið og starfsmenn sem sjá um mál- efni ungmenna í sveitarfélagi sínu. Ungmennaráð UMFÍ hafði veg og vanda af ráðstefnunni sem þótti takast með miklum ágætum enda er jafningja- fræðsla í hávegum höfð hjá UMFÍ. Ungt fólk og lýðræði Það er von ungmennaráðsins að sjötta ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði verði haldin að ári. Ungmennafélag Íslands hvetur þau sveitarfélög sem enn hafa ekki stofnað ungmennaráð að taka sér meðfylgjandi ályktun ráðstefnunnar til fyrirmyndar. Stjórnsýslan og við – áhrif ungs fólks á stjórnsýsluna

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.