Skinfaxi - 01.05.2014, Side 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Dagana 9.–11. apríl sl. var ráð-
stefnan Ungt fólk og lýðræði
haldin í fimmta sinn og nú á
Ísafirði. Þema ráðstefnunnar var að
þessu sinni Stjórnsýslan og við – áhrif
ungs fólks á stjórnsýsluna. Þetta þema er
mikilvægt ungu fólki sem margt hvert
gekk til kosninga í vor sem leið í fyrsta
sinn. Ungmennafélag Íslands hefur ávallt
lagt áherslu á lýðræðislega þátttöku ungs
fólks og hefur ráðstefnan ævinlega vakið
mikla lukku meðal þátttakenda.
Ráðstefnan á Ísafirði tókst með ágætum
Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði, hald-
in á Ísafirði 9.–11. apríl 2014, skorar á
stjórnvöld, jafnt ríki sem sveitarfélög,
að leita meira til ungmenna og taka
tillit til skoðana þeirra á málefnum
samfélagsins, einkum þeim er varða
ungmennin sjálf.
Við teljum að ungt fólk sé nægilega
þroskað til að geta myndað sér skoðun
sem vert er að taka mark á. Við teljum
að mikilvægt sé að hlusta á skoðanir
ungs fólks á meðan þær eru ómótaðar
og frjálslegar, enda koma þau oft með
áhugaverðar hugmyndir sem fara út
fyrir hefðbundna hugsun.
Við viljum efla upplýsingaflæði milli
allra aldurshópa.
Við hvetjum öll ungmenni til þess að
stíga fram og sýna áhuga á málefnum
líðandi stundar, til þess að auka virð-
ingu og traust til ungmenna um allt land.
Við teljum nauðsynlegt að efla gagn-
rýna hugsun og sköpunargleði nem-
enda í skólum landsins.
Við viljum að ungmenni fái að taka
virkan þátt í skipulagningu almenn-
ingssamgangna í nærumhverfi okkar.
Samgöngumál eru hagsmunamál
ungs fólks þar sem þau hafa áhrif á
atvinnutækifæri, námsmöguleika og
annað starf ungs fólks. Góðar sam-
göngur eru forsenda þess að ungt fólk
geti stundað íþróttir og tómstundir
óháð búsetu.
Við viljum að jafnréttis- og kynja-
fræði verði hluti af grunn- og fram-
haldsskólanámi á Íslandi.
Við viljum fræðslu um fjármálalæsi
og stjórnmál á öllum stigum skóla-
kerfisins.
Við lýsum yfir áhyggjum okkar af
takmörkuðum möguleikum ungs
fólks til að sækja sér fjölbreytta
atvinnu þar sem það á við.
Við leggjum til að kosningaaldur í
sveitarstjórnarkosningum verði lækk-
aður niður í 16 ár. Með þeim hætti gæti
ungt fólk tekið virkan þátt í stjórnmál-
um í nærumhverfi sínu til þess að auka
áhuga ungs fólks á stjórnmálum.
Myndi það stuðla að virkri þátttöku
ungmenna síðar meir í stjórnmálum.
Við viljum hvetja ungmennaráð til
að auka sýnileika, þannig að ungt fólk
geri sér grein fyrir því að þau geti borið
ýmis málefni undir ráðin sem komi
þeim svo á framfæri.
Að eflt verði framboð á félagsstarfi
fyrir ungt fólk á bilinu 16–25 ára, þá
sérstaklega ungmenni á aldrinum
16–18 ára, með því að útbúa skýr
markmið um ungmennahús á Íslandi.
Stofnaður verði sjóður sem ung-
menni geti sótt um styrk í til þess að
koma til móts við þau varðandi
aðgengi að frístundastarfi, til dæmis
vegna vegalengdar og fjárhags.
Ályktun ráðstefnunnar
Að þessu sinni sóttu sjötíu einstakl-
ingar ráðstefnuna, bæði ungmenni sem
starfa í ungmennaráðum víðs vegar um
landið og starfsmenn sem sjá um mál-
efni ungmenna í sveitarfélagi sínu.
Ungmennaráð UMFÍ hafði veg og
vanda af ráðstefnunni sem þótti takast
með miklum ágætum enda er jafningja-
fræðsla í hávegum höfð hjá UMFÍ.
Ungt fólk og lýðræði
Það er von ungmennaráðsins að
sjötta ráðstefnan Ungt fólk og
lýðræði verði haldin að ári.
Ungmennafélag Íslands
hvetur þau sveitarfélög sem enn hafa
ekki stofnað ungmennaráð að taka sér
meðfylgjandi ályktun ráðstefnunnar til
fyrirmyndar.
Stjórnsýslan og við – áhrif ungs fólks á stjórnsýsluna