Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 26

Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 26
26 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Aðalfundur Ungmennafélagsins Fjölnis var haldinn í Dalhúsum í Grafarvogi 28. mars sl. Ágætis mæting var á fundinum sem gekk vel. Reikningar og skýrsla stjórnar voru sam- þykkt einróma og Jón Karl Ólafsson endur- kjörinn formaður Fjölnis. Stjórn Fjölnis skipa: Jón Karl Ólafsson, formaður, Birgir Gunn- laugsson, Ásgeir Heimir Guðmundsson, Ingibjörg Óðinsdóttir, Sveinn Ingvarsson, Björk Guðbjörnsdóttir, Kristján Friðrik Karls- son og Laufey Jörgensdóttir. Úr stjórn gengu þau Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, Örn Pálsson og Jón Oddur Davíðsson. Aðalfundur Ungmennafélagsins Fjölnis: Jón Karl endurkjörinn formaður Fjölnis Á aðalfundinum voru sex einstakling- ar sæmdir silfurmerki Fjölnis, þau Guð- mundur L. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Fjölnis, Stefán Birkisson, fimleikadeild, Ingi- björg Grétarsdóttir, handboltadeild, Ingi- björg Kristinsdóttir, sunddeild, Valborg Guðrún Guðjónsdóttir, karatedeild, og Boris Bjarni Akbachev, handboltadeild. Kristinn Óskar Grétuson, í varastjórn UMFÍ, flutti ávarp og sæmdi þau Jarþrúði Hönnu Jóhannsdóttur og Örn Pálsson starfsmerki UMFÍ. Jón Karl Ólafs- son, formaður Fjölnis (t.h.), ásamt sex félögum sem voru sæmdir gullmerki Fjölnis fyrir frábær störf í þágu félagsins. Ársþing Ungmennasamband Dalamanna og N-Breiðfirðinga (UDN) var haldið í félags- heimilinu Árbliki þann 6. maí sl. Á þinginu kom fram að rekstur sambandsins gekk vel á síðasta ári sem skilaði þó nokkrum afgangi. Breyting varð á stjórn UDN, en í hana komu Herdís Erna Matthíasdóttir, Heiðrún Sandra Grettisdóttir og Jenny Nilsson. Varamenn eru Sigurdís Sigursteinsdóttir og Sigurður Bjarni Gilbertsson. Sæmundur Runólfsson, framkvæmda- stjóri UMFÍ, ávarpaði þingið. Ársþing Ungmennasambands Dalamanna og N-Breiðfirðinga: Vænta góðs af samstarfssamningi við Dalabyggð Kristján Garðarsson, formaður UDN, sagði að rekstur Ungmennasambandsins hefði gengið sérlega vel á síðasta ári og starfið verið með ágætum. „Samstarfssamningur UDN við Dalabyggð tók gildi um síðustu áramót og væntum við góðs af honum. UDN tekur m.a. yfir hluta æskulýðsstarfsins þannig að það er í mörg horn og líta og bjart fram undan í starfinu,“ sagði Kristján Garðarsson, formaður UDN. Þess má geta að Guðni Albert Kristjánsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, tók við fram- kvæmdastjórn sambandsins 1. júní sl. V orfundur UMFÍ var haldinn í Hóps- skóla í Grindavík 10. maí sl. en fundinn sóttu fulltrúar frá sam- bandsaðilum hreyfingarinnar. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, bauð í upphafi fulltrúa velkomna til fundarins. Af því loknu kynntu Sigurður Guðmundsson og Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúar UMFÍ, helstu niðurstöður úr stefnumótunarvinnu um framtíð lands- móta UMFÍ. Þá fóru þau Anna Möller, for- stöðumaður Evrópa unga fólksins, og Andrés Pétursson hjá Rannís yfir tækifæri sem í boði eru í Evrópuverkefnum. Sabína Steinunn Halldórsdóttur, landsfulltrúi UMFÍ, og Gunnar Gunnarsson, formaður UÍA, upplýstu fundarmenn um verkefnið Move Week en Íþróttafélagið Höttur og Sveitar- félagið Fljótsdalshérað fengu verðlaun fyrir eitt besta verkefnið í evrópsku „Move Week“- herferðinni í fyrra. Róbert Ragnarsson, bæjar- stjóri í Grindavík, og Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, fóru síðan með gesti um íþróttasvæðið í bænum en gríðarleg uppbygging hefur verið þar og stendur raunar enn yfir á íþrótta- mannvirkjum svo að svæðið er orðið eitt það glæsilegasta á landinu. Að því loknu var haldið námskeið í hvatningu, viðhorfum og mannlegum samskiptum. Vorfundur UMFÍ var haldinn í Grindavík

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.