Skinfaxi - 01.05.2014, Side 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 2. tbl. 2014
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson.
Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson,
Ragnar Orri Gunnarsson o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar
Bender.
Ritnefnd:
Örn Guðnason formaður,
Gunnar Gunnarsson,
Berglind Ósk Agnarsdóttir,
Pétur Arason og
Jóhanna Hreiðarsdóttir.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson,
framkvæmdastjóri,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri
Skinfaxa og kynningarfulltrúi,
Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Sabína Steinunn Halldórsdóttir,
landsfulltrúi,
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
Stjórn UMFÍ:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Haukur Valtýsson, varaformaður,
Örn Guðnason, ritari,
Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri,
Hrönn Jónsdóttir, meðstjórnandi,
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi,
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi.
Varastjórn UMFÍ:
Ragnheiður Högnadóttir,
Baldur Daníelsson,
Kristinn Óskar Grétuson,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir.
Forsíðumynd:
Framganga Anítu Hinriksdóttur á hlaupa-
brautinni hefur ekki farið fram hjá neinum.
Frjálsíþróttaheimurinn fylgist með henni
af áhuga enda hefur hún náð árangri sem
hefur vakið mikla athygli. Það verður spenn-
andi að fylgjast með Anítu í framtíðinni.
Sumarið er tíminn og óhætt að segja
að hann sé það svo sannarlega hjá
Ungmennafélagi Íslands. Margt er í
boði að venju þannig að almenning-
ur hefur úr mörgum spennandi verk-
efnum að velja.
Eitt mót er að baki, 4. Landsmót
UMFÍ 50+ á Húsavík, sem heppnað-
ist einstaklega vel. Yfir 400 kepp-
endur nutu þar góðrar samveru í
leik og keppni. Heimamenn tóku
vel á móti gestum og keppendum
eins og þeim er einum lagið og allir
nutu þess innilega að dvelja móts-
helgina á Húsavík. Landsmóti UMFÍ
50+ vex fiskur um hrygg með hverju
mótinu sem haldið er. Ljóst má vera
að það var kominn tími fyrir mót sem
þetta enda sýnir það sig nú þegar
hvað mótið nýtur mikilla vinsælda.
Fram undan er 17. Unglinga-
landsmót UMFÍ um verslunarmanna-
helgina á Sauðárkróki. Margir kepp-
endur og foreldrar leggja leið sína
á mótið sem notið hefur gríðarlega
vinsælda frá upphafi. Undirbúning-
ur er að baki og nú bíða allir þangað
til að stóra stundin rennur upp. Það
eiga margir krakkar góðar minning-
ar frá þessum mótum og margar
fjölskyldur fylgja þátttakendum á
mót á hverju ári. Má með sanni segja
að Unglingalandsmótið eigi orðið
fastan sess hjá mörgum fjölskyldum
þessa helgi ár hvert. Dagskrá móts-
ins er áhugaverð og spennandi og
allir ættu að finna eitthvað við sitt
hæfi.
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ er starf-
ræktur í sumar, sjötta árið í röð. Skól-
inn var vel sóttur á þeim fimm stöð-
um um landið þar sem námskeið
voru í gangi.
Fjölskyldan á Fjallið er á sínum
stað og þúsundir manna njóta þess
að ganga og vera úti í náttúrunni.
Svo að farið sé úr einu í annað fór
það víst fram hjá fáum að heims-
meistarakeppni í knattspyrnu fór
fram í Brasilíu í sumar. Þetta er heims-
viðburður í háum gæðaflokki og fólk
um allan heim nýtur þess að koma
saman og horfa á beinar útsending-
ar frá leikjunum. Ég held að flestir
séu sammála um að keppnin að
þessu sinni hafi verið einstaklega
vel heppnuð, boðið var upp á frá-
bæra leiki, mögnuð augnablik, óvænt
úrslit og glæsileg tilþrif. Þessi keppni
þjappar fólki saman og það nýtur
þess að horfa á bestu fótboltamenn
heimsins leika listir sínar. Leikmenn
fóru ekki leynt með tilfinningar sínar
í gleði jafnt sem sorg. Þessi keppni
rennur mörgum seint úr minni. Að
lokum stóðu Þjóðverjar á efsta þrepi
og voru vel að komnir.
Úr mörgum spennandi verkefnum
að velja hjá Ungmennafélagi Íslands
Jón Kristján Sigurðsson – ritstjóraspjall:
G öngum um Ísland er landsverkefni UMFÍ sem sett var á laggirnar sumar-ið 2002. Verkefnið er unnið í sam-
starfi við sambandsaðila og ungmenna-
félög um land allt. Ísland hefur að geyma
mikinn fjölda gönguleiða og hafa útvaldar
gönguleiðir í hverju byggðarlagi verið
fundnar til þessa verkefnis. Þessar leiðir er
að finna á ganga.is og í leiðabók sem gefin
hefur verið út á hverju vori síðustu ár.
Á ganga.is og í leiðabókinni er að finna
stuttar, stikaðar og aðgengilegar göngu-
leiðir sem og lengri gönguleiðir. Einnig er
þar að finna ýmsan fróðleik, t.d. hvað beri
að hafa í huga áður en farið er í gönguferð.
GÖNGUM UM ÍSLAND
F jölskyldan á fjallið er einn liður í verk-efninu ganga.is.
Sambandsaðilar stinga
upp á fjalli á sínu svæði
og er settur upp póst-
kassi á tindinum. Settir
hafa verið upp póstkassar með gesta-
bókum á 20 fjöllum víðs vegar um landið
en öll þessi fjöll eiga það sameiginlegt að
vera tiltölulega létt til uppgöngu.
FJÖLSKYLDAN Á FJALLIÐ