Skinfaxi - 01.05.2014, Síða 8
8 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
U ngmennaráð UMFÍ er skipað átta ung-mennum héðan og þaðan af landinu. Fjölbreytt viðhorf og skoðanir koma
því saman þar sem þau reyna hafa áhrif á
önnur ungmenni. Við höfum verið að vinna
við nokkur verkefni og má þar nefna
Skemmtihelgi Ungmennaráðsins og Ungt
fólk og lýðræði.
Skemmtihelgin snýst aðallega um að fá
krakka, sem þekkjast lítið sem ekkert, til að
eyða helgi saman og kynnast því og skemmta
sér saman án áfengis eða annarra vímuefna.
Þar notum við óhefðbundnar leiðir til að
stjaka þeim hægt og rólega út úr sínum eigin
þægindaramma og fá þau til að þora að tjá
sig. Síðan er spilað og borðað snakk um kvöld-
ið og farið í marga leiki.
Í verkefninu Ungt fólk og lýðræði tökum
við fyrir málefni sem tengjast stjórnsýslunni
og það hvernig ungt fólk getur haft áhrif á
hana. Við sýnum ungmennum að þau geta
haft áhrif þótt þau séu ekki komin á aldur til
að kjósa. Verkefnin sem við höfum komið á
fót hafa orðið til þess að við eigum orðið auð-
veldara með að tjá skoðanir okkar og óhrædd-
ari að ræða þær.
Þetta hefur líka veitt okkur meiri þekkingu
innan okkar eigin stjórnkerfis. Við erum farin
að skilja betur hvernig það virkar vegna þess
að við þurftum sjálf að kynna okkur stjórn-
mál til þess að geta útskýrt þau fyrir öðrum.
Ég tala nú fyrir mína hönd þegar ég segi
að ég ákvað að fara í Ungmennaráðið, ekki
vegna þess ég hefði áhuga á því, heldur
vegna þess að ég átti vini þar og ákvað bara
slá til. Til að byrja með vildi ég bara taka þátt
í því skemmtilega, það er að segja leikjum,
en þegar maður er í svona ráði er það ekki í
boði. Nú er ég farinn að þora að taka þátt í
umræðum, koma með hugmyndir og taka af
skarið með að taka þátt í verkefnum sem ég
hef ekki mikið vit á en vil kynnast betur.
Ráðið er með aldurstakmark, þannig eftir
ákveðinn aldur þarf hver og einn að hætta
en í stað hans kemur annar inn sem er með
öðruvísi skoðanir og hugsanir og þar er það
sem gerir þetta ráð svo flott.
Við erum öll þarna með sama markmið en
það er að reyna að virkja ungmenni á landinu
á einn eða annan hátt. Ef á að nefna það flott-
asta sem Ungmennaráðið hefur gert, þá tel
ég það vera Ungt fólk og lýðræði. Krakkar á
öllum aldri fengu að koma fram með hug-
myndir, skoðanir, efast um þær sjálf og gagn-
rýna þær. Þau lærðu með smá þjálfun að
koma með tillögur og breytingar á þeim og
rökstyðja mál sitt. Ungmennaráð UMFÍ er þar
af leiðandi hópur ungmenna með flottar hug-
myndir um hvernig hægt sé að ná til jafn-
aldra sinna. Með hjálp frá UMFÍ hefur okkur
tekist það og við ætlum að halda áfram.
Björn Grétar Baldursson
Ungmennaráð UMFÍ
Æ skulýðsvettvangurinn (ÆV), sam-starfsvettvangur UngmennafélagsÍslands, Bandalags íslenskra skáta,
KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarna-
félagsins Landsbjargar var stofnaður árið
2007 en formleg stofnun fór fram sumar-
ið 2012. Markmið og tilgangur ÆV er að
stuðla að samræðu og samstarfi aðildar-
félaganna á sviði leiðtogaþjálfunar, fræðslu-
mála, útbreiðslu og kynningar og á öðrum
sviðum eftir því sem þurfa þykir. Jafnframt
er það markmið og tilgangur ÆV að tryggja
enn betur öryggi og velferð barna og ung-
menna innan aðildarfélaga ÆV og treysta
stoðir faglegs starfs. Öll aðildarfélög vinna
að öflugu starfi með börnum og ungu fólki
og er það hagur þeirra allra að vinna sam-
an að málefnum barna. Síðustu ár hafa
verið mjög öflug í starfi ÆV. Á vormánuð-
um 2012 voru siðareglur ÆV gefnar út.
Um var að ræða annars vegar siðareglur
um samskipti fyrir starfsmenn og sjálf-
boðaliða sem vinna með börnum og ung-
mennum og hins vegar siðareglur um
rekstur og ábyrgð fyrir þá sem sitja í stjórn-
um og bera ábyrgð í félögum.
Sumarið 2012 hóf ÆV markvissa vinnu
gegn einelti. Unnin var Aðgerðaáætlun ÆV
gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun
sem og eineltisveggspjald. Tilgangurinn
með gerð og útgáfu aðgerðaáætlunarinnar
er að skerpa á ferlum við úrvinnslu eineltis-
mála, svo að tryggt sé að öllum geti liðið vel
í leik og starfi innan ÆV.
Frá árinu 2010 hefur ÆV staðið fyrir nám-
skeiðinu Verndum þau. Námskeiðið er byggt
á efni bókarinnar Verndum þau og fjallar um
ÆSKULÝÐSVETTVANGURINN
hvernig bregðast eigi við grun um ofbeldi
og vanrækslu gegn börnum og ungling-
um. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem
starfa með börnum og unglingum hjá
sveitarfélögum, íþróttafélögum, æskulýðs-
félögum og öðrum þeim sem áhuga hafa.
ÆV gerir þá kröfu um að allir starfsmenn
og sjálfboðaliðar innan vettvangsins sæki
námskeiðið.
Um árslok ársins 2012 voru mótaðar og
samþykktar Starfsreglur um meðferð kyn-
ferðisbrota. Reglurnar voru mótaðar af sér-
stöku fagráði sem hefur það hlutverk að
vinna með og leysa mál er tengjast kyn-
ferðisbrotum. Hlutverk fagráðsins er að
taka við málum sem upp koma og sjá til
þess að þau fái viðhlítandi málsmeðferð.
Jafnframt leiðbeinir það þolendum um
málsmeðferð og sér til þess að þeir fái
stuðning. Ráðið er skipað fjórum einstakl-
ingum, einum frá hverju aðildarfélagi.
Allir hafa þessir einstaklingar reynslu eða
þekkingu í þessum málaflokki. Að auki
hefur ráðið aðgang að lögfræðingi og/eða
sálfræðingi ef það óskar eftir því.