Skinfaxi - 01.05.2014, Page 12
12 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Aníta Hinriksdóttir er efnilegasti
frjálsíþróttamaður landsins en
árangur hennar á hlaupabrautinni
hefur vakið mikla athygli í frjáls-
íþróttaheiminum. Frábær árangur
í fyrrasumar skaut henni upp á
stjörnuhimininn og þeir eru margir
sem bíða spenntir eftir framgangi
hennar á næstu árum enda er
gríðarlegt efni þar á ferðinni.
Heims- og Evrópumeistari
Aníta varð heims- og Evrópumeistari í 800
metra hlaupi ungmenna með aðeins sex
daga millibili í júlí 2013 og bætti Norður-
landameistaratitli í safnið tæpum mánuði
síðar. Hún vann 800 metra hlaupið á heims-
meistaramóti 17 ára og yngri í Donetsk í
Úkraínu 14. júlí 2013. Nokkrum dögum síðar
varð hún hlutskörpust í sömu grein á Evrópu-
móti 19 ára og yngri í Rieti á Ítalíu og 17.
ágúst sigraði hún örugglega í sömu grein á
Norðurlandamóti 19 ára og yngri í Espoo í
Finnlandi. Aníta bætti eigið Íslandsmet þegar
hún hljóp 800 metra á 2:00,49 mínútum á
ungmennamóti í Mannheim í Þýskalandi 30.
júní 2013.
Æfi 7–9 sinnum í viku
Við hittum Anítu að máli á Meistaramóti
Íslands í Kaplakrika á dögunum og kom fram
í máli hennar að verkefnin fram undan væru
næg. Hún sagði að æfingar gengju sam-
kvæmt áætlun en að jafnaði æfði hún 7–9
sinnum í viku.
ANÍTA
HINRIKSDÓTTIR
Velkomin á 17. UNGLINGALANDSMÓT UMFÍ
á Sauðárkróki verslunarmannahelgina
1.-3. ágúst 2014
Skagfirðingar bjóða ykkur velkomin á skemmtilegasta frjálsíþróttavöll landsins
þaðan sem aðeins er steinsnar í knattspyrnuvelli, íþróttahús, sundlaug,
golfvöll, reiðhöll og aðstöðu fyrir allar aðrar keppnisgreinar,
auk þess sem tjaldsvæði eru í stuttu göngufæri.
www.visitskagafjordur.is
Það verður kátt á Króknum
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.