Skinfaxi - 01.05.2014, Qupperneq 18
18 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
L andsmót UMFÍ 50+ var haldið á Húsavík dagana 20.–22. júní í sumar. Mótið fór einstaklega vel fram en þátttakendur á
mótinu voru yfir 400 talsins. Elsti keppandinn
var 92 ára karl sem keppti í línudansi og fleiri
greinum. Keppt var í blaki, boccia, bogfimi,
bridds, fjallahlaupi, frjálsum íþróttum, golfi,
línudansi, pútti, bæði einstaklings- og sveita-
keppni, ringó, skák, skotfimi, starfsíþróttum
á borð við dráttarvélaakstur, hrútadóma og
pönnukökubakstur, stígvélakasti, sundi, sýn-
ingum/leikfimi og þríþraut. Þetta var fjórða
Landsmót UMFÍ 50+ en mótin eru haldin í
júní hvert ár. Aðstandendur mótsins merktu
400 keppendur skemmtu sér vel á Landsmóti UMFÍ 50+ á Húsavík
þá ánægjulega þróun að yngri keppendum
væri að fjölga, þ.e. fólki sem er nýlega orðið
fimmtugt.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, var virkilega ánægð og þakklát eftir
Landsmótið sem heppnaðist vel. Veðurfarið
var hagstætt og keppendur og áhorfendur
skemmtu sér vel á mótinu.
„Mótið fór vel fram og gekk vel í alla staði.
Framkvæmdin var í góðum höndum heima-
manna enda valinn maður í hverju rúmi. Við
förum alsæl frá þessu móti og erum full til-
hlökkunar fyrir næsta mót sem verður haldið
á Blönduósi næsta sumar.“