Skinfaxi - 01.05.2014, Síða 20
20 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Ársþing HSÞ var haldið að Laugum í
Reykjadal 23. mars sl. Dagskrá ársþings-
ins var með hefðbundnu sniði en þingið
sóttu 53 þingfulltrúar frá 17 aðildar-
félögum HSÞ. Jóhanna S. Kristjánsdóttir
var endurkjörin formaður HSÞ á þinginu
og íþróttamenn ársins voru valdir í hin-
um ýmsu íþróttagreinum. Fólki, sem
unnið hefur ötullega að íþróttamálum
á svæði HSÞ í gegnum tíðina, voru
veittar heiðursviðurkenningar. Haukur
Valtýsson, varaformaður UMFÍ, sæmdi
Sigfús Harald Bóasson og Önnu Rúnu
Ársþing Héraðssambands Þingeyinga:
Mikið stendur til á 100 ára afmælisári HSÞ
Mikaelsdóttur gullmerki UMFÍ. Þá hlutu
starfsmerki UMFÍ þær Freydís Anna Arn-
grímsdóttir og Sigþrúður Stella Jóhanns-
dóttir. Þorsteinn Ingvarsson frjálsíþrótta-
maður var valinn íþróttamaður HSÞ árið
2013 úr fríðum hópi íþróttafólks.
Fram kom í máli Jóhönnu Kristjánsdótt-
ur formanns að mikið stæði til hjá HSÞ á
árinu 2014. Haldið yrði upp á 100 ára
afmæli HSÞ 2. nóvember nk. með stórri
afmælisveislu á Laugum. Landsmót 50+
yrði svo haldið á Húsavík og Laugum dag-
ana 20.–22. júní.
Aðalfundur Ungmennafélags Njarð-
víkur var haldinn á 70 ára afmæli
félagsins 10. apríl sl. Þórunn Friðriks-
dóttir, formaður félagsins, lét af
störfum eftir um 15 ára setu í aðal-
stjórn. Ólafur Eyjólfsson var kjörinn
nýr formaður UMFN. Í aðalstjórn
voru kjörnir Thor Hallgrímsson til
eins árs og Hermann Jakobsson og
Anna Andrésdóttir til tveggja ára.
Ágústa Guðmarsdóttir og Sigríður
Ragnarsdóttir voru kjörnar í vara-
stjórn félagsins.
Ólafur Thordersen afhenti Ólafs-
bikarinn, en hann hlaut Agnar Már
Gunnarsson fyrir mikið og gott starf
fyrir félagið. Helga Guðrún Guðjóns-
dóttir, formaður UMFÍ, færði félaginu góða
gjöf og sæmdi Friðrik Pétur Ragnarsson,
Ólaf Thordersen og Pál Kristinsson gullmerki
UMFÍ. Andrés Þórarinn Eyjólfsson og Thor
Hallgrímsson voru sæmdir starfsmerki UMFÍ.
Þórunn Friðriksdóttir afhenti gullmerki UMFN
Aðalfundur Ungmennafélags Njarðvíkur:
Þrír einstaklingar sæmdir gullmerki UMFÍ
með lárviðarsveig fyrir langt og frábært starf
í þágu félagsins. Það er æðsta merki UMFN og
geta aldrei fleiri en tíu manns verið handhafar
merkisins hverju sinni. Einar Árni Jóhanns-
son hlaut annað merki félagsins en fyrsta
merkið fékk Hilmar Hafsteinsson árið 2012.
Gullmerki UMFN er veitt fyrir 20 ára starf eða
keppni fyrir félagið og í ár fengu fjórir félagar
gullmerki félagsins, þeir Erlingur Rúnar
Hannesson, Páll Kristinsson, Ragnar Halldór
Ragnarsson og Sigmundur Már Herbertsson.
Snorri Jónas Snorrason hlaut silfurmerki
UMFN sem er veitt fyrir 15 ára starf eða
keppni fyrir félagið.
Jóhann B. Magnússon, formaður ÍRB, kom
færandi hendi, afhenti félaginu hornstein að
gjöf, en UMFN er einn af hornsteinum ÍRB.
Kristján Pálsson, fyrrverandi formaður, af-
henti félaginu gjöf frá sér og Einari Jónssyni,
áritaðan körfubolta frá Íslandsmeisturum
UMFN árið 2006.
Ungmennafélagið færði félagsmönnum
að gjöf málverk eftir Hrein Guðmundsson.
Verkið er yfirlitsmynd yfir Njarðvík, þegar
félagið var stofnað í apríl árið 1944, séð úr
Paradís. Á málverkinu eru fyrstu stjórnar-
menn félagsins, þeir Oddbergur Eiríksson,
Ólafur Sigurjónsson og Karvel Ögmundsson.
Frá vinstri: Ólafur
Eyjólfsson, nýkjörinn
formaður UMFN,
Helga G. Guðjónsdótt-
ir, formaður UMFÍ, og
Þórunn Friðriksdóttir,
fráfarandi formaður.
44. ársþing USVS fór fram á Hótel Laka í
Landbroti 29. mars sl. Góð mæting var á
þingið sem var starfsamt og gott. Ragn-
heiður Högnadóttir gaf ekki kost á sér til
áframhaldandi formennsku og var Þor-
steinn M. Kristinsson kjörinn nýr formaður.
Ragnheiður hafði setið í stjórn USVS í um 20
ára skeið, þar af sem formaður í átta ár.
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri UMFÍ,
var fulltrúi UMFÍ á þinginu og flutti ávarp.
„Það er skemmtilegur tími að baki og ég
hef kynnst góðu fólki allt í kringum landið.
Þrátt fyrir að ég sé hætt í stjórn mun ég eftir
sem áður halda áfram að vinna fyrir sam-
bandið,“ sagði Ragnheiður Högnadóttir, frá-
farandi formaður.
Ársþing Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu:
Ég hef kynnst góðu fólki allt í kringum landið
Tilkynnt var um val íþróttamanns ársins
og efnilegasta íþróttamannsins. Íþrótta-
maður að þessu sinni var kjörinn Hlynur
Guðmundsson, Hestamannafélaginu Sindra.
Efnilegasti íþróttamaðurinn er Guðný Árna-
dóttir, Umf. Kötlu.
Ný stjórn var kosin á þinginu en hana
skipa: Þorsteinn M. Kristinsson, formaður,
Erla Þórey Ólafsdóttir, Pálmi Kristjánsson,
Ástþór Jón Tryggvason og Bergur Sigfússon.
Í varastjórn eru Ármann Gíslason, Kristín
Ásgeirsdóttir og Eyrún Elvarsdóttir.
Þorsteinn M. Kristinsson, nýkjörinn formaður USVS
ásamt Ragnheiði Högnadóttur fráfarandi formanni