Skinfaxi - 01.05.2014, Blaðsíða 22
22 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Ársþing USÚ, það 81. í röðinni, fór fram í Ný-
heimum á Höfn 31. mars sl. Þingið var ágæt-
lega sótt, öll aðildarfélög sendu fulltrúa á
þingið en einungis Golfklúbbur Hornafjarðar
sendi alla þá fulltrúa sem hann átti rétt á.
Töluvert starf var hjá USÚ á liðnu ári, en að
sjálfsögðu var langstærsta verkefnið 16.
Unglingalandsmót UMFÍ. Á þinginu var sýnt
myndbrot úr sjónvarpsþætti sem Sindra-
fréttir eru að vinna að um mótið. Vart þarf
að nefna að gríðarleg vinna liggur að baki
svona móti og verður öllum þeim sem komu
að undirbúningi og framkvæmd mótsins
seint fullþakkað.
Hrönn Jónsdóttir, stjórnarmaður í UMFÍ,
var gestur þingsins. Hún flutti kveðju stjórn-
ar og sæmdi Ingólf Baldvinsson starfsmerki
UMFÍ. Ingólfur hefur setið í stjórn frjálsíþrótta-
deildar Sindra í 22 ár og var um tíma ritari í
stjórn USÚ.
Stjórn USÚ gaf kost á sér til endurkjörs. Í
stjórn USÚ sitja: Matthildur Ásmundardóttir,
formaður, Sigurður Óskar Jónsson, gjaldkeri,
og Páll Róbert Matthíasson, ritari.
Nokkrar tillögur voru samþykktar á þing-
inu. Stjórn USÚ var falið að sækja um að fá
að halda Landsmót 50+ árið 2016. Þingið
samþykkti að færa UMFÍ kærar þakkir fyrir
Ársþing Ungmennasambandsins Úlfljóts:
Unglingalandsmótið langstærsta verkefnið
gott samstarf við undirbúning 16. Unglinga-
landsmóts UMFÍ. Þingið samþykkti sömu-
leiðis að færa Sveitarfélaginu Hornafirði og
íbúum þess kærar þakkir fyrir gott samstarf
við undirbúning og framkvæmd 16. Ungl-
ingalandsmóts UMFÍ.
Þá samþykkti þingið að hvetja Sveitar-
félagið Hornafjörð að leggja árlega til fjár-
framlag í styrktar- og afrekssjóð USÚ en með
því fengi sveitarfélagið einnig rétt til þess að
senda fulltrúa sinn í stjórn sjóðsins. Samhliða
því var gerð breyting á lögum sjóðsins. Í stað
þess að öll stjórn USÚ sitji í stjórn sjóðsins
ásamt tveimur fulltrúum þeirra aðildarfélaga
sem ekki eiga mann í stjórn skal stjórn sjóðs-
ins skipuð á þann hátt að stjórn USÚ eigi tvo
fulltrúa (formann og gjaldkera) og sveitar-
félagið einn fulltrúa. Hinir tveir fulltrúarnir
breytast ekki.
Íþróttamaður ársins árið 2013 var valin
Maria Selma Haseta. Maria Selma, sem er
fædd árið 1995, var máttarstólpi kvenna-
liðs Sindra í knattspyrnu sumarið 2013 og
skoraði m.a. rúmlega helming marka liðsins.
María Birkisdóttir hlaut hvatningarverðlaun
USÚ en hún æfir og keppir í frjálsum íþrótt-
um með Sindra, þá helst í svokölluðum
millivegalengdarhlaupum.
Sími 470 8100 / Fax 4708101 / sth@sth.is / www.sth.is
Maria Selma Haseta,
íþróttamaður USÚ 2013.