Skinfaxi - 01.05.2014, Qupperneq 25
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 25
Héraðsþing Héraðssambandsins Hrafna-
Flóka var haldið í Félagsheimili Patreks-
fjarðar 1. apríl sl. Var vel mætt á fundinn og
ýmis mál tekin fyrir. Mótaskrá sumarsins
var samþykkt auk þess sem reglugerðir
um lottóskiptingu og val á íþróttamanni
ársins voru endurskoðaðar. Birna Friðbjört
Hannesdóttir var ráðin framkvæmdastjóri
HHF í sumar og mun hún einnig sjá um
þjálfun í frjálsíþróttum á öllu svæðinu.
Á þinginu var stefnumótun í íþrótta-
og æskulýðsmálum á sunnanverðum
Vestfjörðum rædd, en mikil uppbygging
hefur verið seinustu ár hjá Hrafna-Flóka
og aðildarfélögum sambandsins. Íþrótta-
og æskulýðsmál eru í stöðugri þróun og
var mál manna að sambandið þurfi að
fylgja þessum breytingum eftir með
nýjungum og uppstokkun í starfi sínu.
Stefnumótunarvinna síðustu mánaða hefur
skilað góðum árangri og er von stjórnar
HHF að þessi vinna haldi áfram næstu árin
þar til lína hefur verið lögð fyrir íþrótta- og
æskulýðsmál á sunnanverðum Vestfjörðum.
Ein umsókn barst árið 2013 í Minningar-
sjóð Stefáns Jóhannesar Sigurðssonar en til-
gangur sjóðsins er að styrkja unga og efni-
lega íþróttamenn innan Héraðssambandsins
Héraðsþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka:
Gróska í starfinu og næg verkefni fram undan
Hrafna-Flóka til frekari þjálfunar. Hilmir Freyr
Heimisson fékk styrk, en hann teflir í flokki
12 ára og yngri. Hann varð Íslandsmeistari í
skólaskák 2013 en landsmótið í skólaskák var
haldið á Patreksfirði í maí á síðasta ári. Hilmir
Freyr á glæstan feril að baki og má m.a. nefna
að hann varð unglingameistari Hellis 2012,
unglingameistari T.R. 2011 og barnablitz-
Öflugur hópur
krakka á körfubolta-
æfingu á Patreksfirði.
meistari á Reykjavík Open
2012. Stjórn HHF hlakkar til
að fylgjast með þessum efni-
lega skákmanni í framtíðinni.
Engin breyting varð á aðal-
stjórn HHF en stjórnina skipa
Lilja Sigurðardóttir, formaður,
Sædís Eiríksdóttir, meðstjórn-
andi, og Birna Friðbjört
Hannesdóttir, meðstjórnandi.
Ein breyting varð á varastjórn
en Ólafur Byron Kristjánsson
kom inn í stað Guðnýjar Sig-
urðardóttur. Varastjórn skipa
nú Heiðar Jóhannsson, Krist-
rún A. Guðjónsdóttir og Ólafur
Byron Kristjánsson. Guðnýju
Sigurðardóttur voru þökkuð
góð störf í þágu sambandsins
seinustu ár.
„Það er gróska í starfinu hjá okkur og við
lítum björtum augum fram á veginn. Verk-
efnin eru næg fram undan og starfið í sumar
verður líflegt eins og alltaf. Við vonumst eftir
að fá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa til starfa
næsta haust,“ sagði Lilja Sigurðardóttir, for-
maður Héraðssambandsins Hrafna-Flóka.