Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2012, Síða 6

Skinfaxi - 01.05.2012, Síða 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Skinfaxi 2. tbl. 2012 Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson. Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ. Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson, Ómar Bragi Stefánsson, Gunnar Gunnars- son, Sigurður Guðmundsson o.fl. Þórir Tryggvason tók loftmynd á bls. 51. Umbrot og hönnun: Indígó. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Prófarkalestur: Helgi Magnússon. Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar Bender. Ritnefnd: Stefán Skafti Steinólfsson, Gunnar Gunnarsson, Ester Jónsdóttir, Bryndís Gunnlaugsdóttir og Óskar Þór Halldórsson. Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa: Þjónustumiðstöð UMFÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Sími: 568-2929 Netfang: umfi@umfi.is Heimasíða: www.umfi.is Starfsmenn UMFÍ: Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri, Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri, Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri Skinfaxa og kynningarfulltrúi, Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi, Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi, með aðsetur á Sauðárkróki, Sabína Steinunn Halldórsdóttir, lands- fulltrúi, Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari. Stjórn UMFÍ: Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður, Haukur Valtýsson, varaformaður, Jón Pálsson, gjaldkeri, Eyrún Harpa Hlynsdóttir, ritari, Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi, Bolli Gunnarsson, meðstjórnandi, Stefán Skafti Steinólfsson, meðstjórnandi, Baldur Daníelsson, varastjórn, Matthildur Ásmundardóttir, varastjórn, Anna María Elíasdóttir, varastjórn, Einar Kristján Jónsson, varastjórn. Forsíðumynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir, Dagbjört Dögg Karlsdóttir, Kristín Karen Karlsdóttir og Ásdís Helga Másdóttir keppa undir merkjum USVH í körfuknattleik. Þær stöllur hafa verið duglegar að keppa á Unglingalandsmótum undanfarin ár og verða að sjálfsögðu með á mótinu á Selfossi um verslunarmannahelgina. Þessi mynd var tekin af þeim á Unglinga- landsmótinu á Egilsstöðum í fyrrasumar. Nýafstaðið er Landsmót UMFÍ 50+ sem haldið var í Mosfellsbæ og nú blasir við Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi um verslunarmannahelgina. Auk þessa heldur UMFÍ úti verkefn- um á borð við Frjálsíþróttaskóla UMFÍ, Göngum um Ísland og verk- efninu Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga! Mikill áhugi er á meðal almennings fyrir þessum verkefnum og hefur þátttakan í þeim vaxið með hverju árinu. 2. Landsmót UMFÍ 50+ í Mosfells- bæ tókst einstaklega vel. Keppend- ur voru um 800 talsins og veðrið lék við keppendur og gesti alla móts- dagana. Það var vel að mótinu stað- ið af hálfu UMSK og aðstæður allar voru til fyrirmyndar. Að loknu þessu móti má vera alveg ljóst að þetta mót er komið til að vera og á bjarta framtíð. Fjölgun þátttakenda milli ára gefur vissa vísbendingu og sýnir það einnig að þörfin fyrir mótshald fyrir þennan aldurshóp var sannar- lega fyrir hendi. Vakning meðal almennings fyrir hreyfingu verður alltaf meiri og nú er kominn val- kostur sem er sannarlega áhuga- verður og á ekkert nema bjarta framtíð fram undan. Undirbúningur fyrir 15. Unglinga- landsmót UMFÍ er nú í fullum gangi og hafa mótshaldarar haft í nógu að snúast síðustu mánuði. Það er í mörg horn að líta þegar halda skal mót eins stórt og þetta er en eflaust létta undir þær glæsilegu aðstæður sem eru á Selfossi. Það búa ekki margir við aðstöðu eins og er á Selfossi og hvert sem litið er eru íþróttamann- virkin fyrsta flokks og aðrar aðstæð- ur til þessa mótshalds einstakar. Tjaldsvæðið er einkar glæsilegt og vel aðgengilegt öllum sem þar ætla að dvelja meðan á mótinu stendur. Stutt er á milli keppnisstaða, göngu- leiðir góðar og allt aðgengi með besta móti. Sveitarfélagið, með heimamönnum, hefur notað tímann vel við að lagfæra og fegra bæinn þannig að Selfossbær mun skarta sínu fegursta þegar stóra stundin rennur upp. Unglingalandsmótin hafa slegið í gegn og á þau mæta keppendur ár eftir ár með fjölskyld- um sínum. Mótið er fjölskylduhátíð og hvað er betra en að fylgjast með börnunum sínum í leik og keppni og verja tímanum með þeim um þessa helgi? Unglingalandsmótun- um hefur vaxið fiskur um hrygg með hverju árinu og það stefnir í mikla þátttöku að þessu sinni. Það er alveg ljóst að tímanum á Unglingalands- mótinu á Selfossi um verslunar- mannahelgina verður vel varið. Unglingalandsmótin eru með stærstu íþróttamótum sem haldin eru hér á landi. Þau eru kjörinn stað- ur fyrir alla fjölskylduna til að koma á og eiga skemmtilega og viðburða- ríka daga um þessa stærstu ferða- helgi ársins. Mótin draga til sín þús- undir gesta sem skemmta sér saman í heilbrigðu umhverfi. Aðsókn í Frjálsíþróttaskóla UMFÍ hefur aldrei verið meiri en einmitt í sumar. Skólinn var starfræktur á fimm stöðum víðs vegar um landið, við frábærar aðstæður. Mikil vakning hvað varðar frjálsar íþróttir á meðal barna og unglinga hefur orðið síð- ustu misseri og má eflaust rekja hana að einhverju leyti til þeirra íþrótta- mannvirkja sem risið hafa í tengsl- um við Unglingalandsmótin. Frjáls- íþróttaskóli UMFÍ nýtur þessa og ýtir um leið undir áhuga barna og unglinga á íþróttum sem skilar sér þegar fram í sækir. Góðar aðstæður hafa verið til gönguferða í sumar og fjöldi fólks hefur gengið á fjöll. Áhuginn fyrir fjallgöngum hefur líklega aldrei ver- ið meiri. Fréttir berast af einstakling- um og hópum sem hafa það mark- mið að ganga á sem flest fjöll sér til skemmtunar og til að hreyfa sig. Göngum um Ísland er landsverk- efni UMFÍ. Verkefnið er unnið í sam- starfi við ungmennafélög um land allt, ferðaþjónustuaðila og sveitar- félög. Ísland hefur að geyma mikinn fjölda gönguleiða og hafa verið vald- ar heppilegar gönguleiðir í hverju byggðarlagi. Fjölskyldan á fjallið er einn liður í verkefninu. Settir eru upp póstkassar með gestabókum á 24 fjöllum víðs vegar um landið en öll þessi fjöll eiga það sameiginlegt að tiltölulega létt er að ganga á þau. Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi en umfram allt: Njótum þess að eiga skemmtilegt sumar. Hver stórviðburðurinn rekur annan hjá Ungmennafélagi Íslands Jón Kristján Sigurðsson – ritstjóraspjall: Sabína Steinunn Halldórsdóttir hefur hafið störf sem landsfulltrúi Ungmennafélags Íslands. Verk- efni hennar eru m.a. fræðslu- og forvarnamál ungmennafélags- hreyfingarinnar og erlend samskipti. Sabína Steinunn Halldórsdóttir ráðin landsfull- trúi UMFÍ Sabína útskrifaðist með BS- gráðu í íþróttafræðum frá Kenn- araháskóla Íslands 2002 og M.Ed.- gráðu í íþrótta- og heilsufræðum frá Háskóla Íslands 2010. Áður en Sabína kom til starfa hjá UMFÍ vann hún við endurhæfingu blindra og sjónskertra. „Ég er mjög spennt fyrir að hefja störf innan UMFÍ. Ég hef lifað og hrærst í íþróttum frá unga aldri og einnig komið mikið nálægt þjálfun. Áhugamál mín lúta að almennri hreyfingu, íþrótt- um og útivist,“ sagði Sabína Steinunn Halldórsdóttir. Sabína Steinunn Halldórsdóttir. Velkomin á Unglingalandsmót Selfossi 3.–5. ágúst

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.