Skinfaxi - 01.05.2012, Qupperneq 24
24 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
„Ég er rosalega ánægð með mótið í heild
sinni og stolt af því hvað allir hlutir gengu
vel. Sjálfboðaliðarnir, sem komu að mótinu,
unnu gott starf sem og íbúarnir sjálfir.
Framkvæmd UMSK á mótinu var því til
sóma. Ánægjan skein úr hverju andliti og
veðrið lék við okkur alla keppnisdagana.
Öll dagskráin gekk upp og það var gaman
að sjá stórglæsileg dansatriði sem settu
skemmtilegan svip á mótið,“ sagði Helga
Guðrún Guðjónsdóttir, formaður Ung-
mennafélags Íslands, í mótslok.
Um 800 keppendur
2. Landsmót UMFÍ 50 ára og eldri fór
fram dagana 8.–10. júní sl. og það er mál
manna að vel hafi tekist til og ljóst sé að
þetta mót eigi bjarta framtíð fyrir sér. Þátt-
takendum fjölgaði töluvert milli ára en um
800 keppendur sóttu mótið í Mosfellsbæ.
Ljóst er nú þegar að fjölmörg önnur sveit-
Landsmót UMFÍ 50+ í Mosfellsbæ:
Framkvæmd UMSK á mótinu var því til sóma
arfélög hafa áhuga á að sækja um að
halda næsta mót. Ákvörðun um það verð-
ur tilkynnt á Unglingalandsmótinu sem
haldið verður á Selfossi um verslunar-
mannahelgina.
„Við erum hæstánægð með mótið og
gaman var að sjá hvað keppendum fjölg-
aði á milli ára. Það er alveg ljóst að þetta
mót er komið til að vera,“ sagði Sigurður
Guðmundsson, framkvæmdastjóri Lands-
móts UMFÍ 50+, í samtali við Skinfaxa.
Keppt í yfir 20 greinum
Á mótinu var keppt í yfir 20 greinum sem
voru jafnmismunandi og þær voru margar.
Þar má nefna sprettþraut sem samanstóð
af sundi, hlaupi og hjólreiðum, þá var
einnig keppt í pönnukökubakstri og 37
km sjö tinda hlaupi ásamt fleiri greinum.
Fólk naut þess að vera á mótinu og er ljóst
að mótið er mikil hvatning fyrir fólk á miðj-
um aldri til að hreyfa sig. Á mótinu fær það
tækifæri til að keppa við jafnaldra sína,
hittast og eiga góða stund saman.
Forsetinn flutti ávarp
Mótssetning fór fram á aðalvellinum í
Mosfellsbæ í fallegu veðri. Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, flutti ávarp við
setninguna. Auk hans fluttu ávörp Helga
Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ,
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra,
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, og Haraldur Sverris-
son, bæjarstjóri í Mosfellsbæ. Þá voru flutt
nokkur söngatriði og komu þar fram m.a.
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Vorboðinn, kór
eldri borgara í Mosfellsbæ, og söngsveitin
Hafmeyjurnar. Tómas Lárusson, fyrrum
íþróttakappi úr Mosfellsbæ, tendraði
landsmótseldinn sem logaði meðan á
mótinu stóð.