Skinfaxi - 01.05.2012, Blaðsíða 11
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 11
VIÐ ERUM AFSKAPLEGA ÁNÆGÐ
MEÐ AÐ FÁ AÐ HALDA ÞETTA MÓT
„Í huga mínum er frábært fyrir okkur að
fá alla þessa gesti til okkar í tengslum við
Unglingalandsmótið og um leið að nýta
öll þau íþróttamannvirki sem búið er að
byggja markvisst upp hér undanfarin ár.
Við erum afskaplega ánægð með að fá að
halda þetta mót, erum á fullu í undirbún-
ingi og hlökkum til að taka á móti gestun-
um. Það er mikil áskorun fyrir okkur að fá
mótið en eins og ég sagði, síðustu ár hafa
risið hér íþróttamannvirki með það að
markmiði að hægt væri að halda stórmót
hér í bænum. Allt íþróttasvæðið er mið-
svæðis og því tiltölulega stutt að fara á
milli staða. Frjálsíþróttavöllurinn, sund-
laugin, knattspyrnuvöllurinn og íþrótta-
húsin eru á nokkuð afmörkuðu svæði og
mjög aðgengileg í alla staði,“ sagði Ásta
Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Árborgar,
í samtali við Skinfaxa nú skömmu fyrir
Unglingalandsmótið. Ásta situr í fram-
kvæmdanefnd mótsins.
Áhersla á vel skipulagt og
markvisst ungmennastarf
– Hefur Árborg ekki lagt mikla áherslu á
að byggja upp glæsilega aðstöðu fyrir
íþróttafólk?
„Jú, það hafa farið gríðarlega miklir fjár-
munir síðustu ár í uppbyggingu á íþrótta-
mannvirkjum. Að auki styrkir sveitarfélagið
ungmennafélögin með fjárframlögum og
það lætur talsverða fjármuni af hendi rakna
í rekstur á íþróttahreyfingunni. Mikil áhersla
er lögð á að ungmennastarfið sé vel skipu-
lagt og byggt upp með markvissum hætti.
Það er unnið frábært starf í deildunum
inni í félögunum og því ber að fagna.“
Fjölskyldan fær tækifæri til
að vera saman
– Það er mál manna að Unglingalands-
mótið hafi sannað gildi sitt og leiki stórt
hlutverk á vettvangi unglingastarfs. Ertu
sammála því?
„Tvímælalaust. Unglingalandsmótið er
eitt það besta sem hægt var að finna upp
og það að halda það síðan um verslunar-
mannahelgina. Mótin hafa mikið forvarna-
gildi og þar fær fjölskyldan kjörið tækifæri
til að vera saman. Mér finnst Ungmenna-
félag Íslands eiga mikið hrós skilið fyrir að
hafa komið þessum mótum af stað. Sama
fólkið sækir þau ár eftir ár en skipulag
sumarfría hjá mörgum snýst um að kom-
ast á mótin um þessa helgi. Unglinga-
landsmótin hafa góða ímynd,“ sagði Ásta.
Njótum helgarinnar í fallegu
umhverfi á Selfossi
– Er ekki almennur áhugi á mótinu hjá
heimamönnum og allir tilbúnir að leggja
hönd á plóg?
„Það er mjög mikill áhugi og á síðustu
dögum hefur verið lögð áhersla á að snyrta
bæinn og verslanir og önnur þjónusta verð-
ur með rýmri opnunartíma en áður. Það
má búast við mikilli umferð og við viljum
þjóna fólki með sem bestum hætti. Ég er
mjög spennt fyrir þessu móti og er viss um
að þeir sem leggja leið sína hingað eiga eftir
að njóta helgarinnar í fallegu umhverfi,“
sagði Ásta Stefánsdóttir.
„Við erum ofsalega hrifin af Unglingalands-
mótunum og það segir sína sögu í þeim
efnum að við erum búin að fara með börn-
unum okkar þremur á öll mótin frá árinu
2000. Það er gríðarlega gaman að fara á
þessi mót og ekkert annað hefur komið til
greina hjá krökkunum okkar. Börnin hafa
verið mikið íþróttum og notið þess inni-
lega að fara á Unglingalandsmótin,“ sagði
Grétar Einarsson í Vík.
Grétar sagði að af þessum mótum væri
mótið, sem haldið var í Vík 2005, mjög
minnisstætt. USVS hefði séð um fram-
kvæmd þess móts og það voru sann-
kallaðir draumadagar meðan mótið stóð
yfir. Undirbúningurinn var mjög skemmti-
legur.
„Það er tilhlökkun hjá okkur að fara á
mótið á Selfossi,“ sagði Grétar Einarsson.
Hjónin Sædís Íva Elíasdóttir og Grétar Einarsson og fjölskylda:
Höfum mætt á öll mótin frá árinu 2000
Sædís Íva Elíasdóttir, eiginkona Grétars og
fyrrverandi formaður USVS, segir Unglinga-
landsmótin ómissandi þátt í tilverunni.
„Þetta er eru frábær mót á allan hátt og
krakkarnir okkar hafa notið þess fram í
fingurgóma að mæta á þau. Áhuginn hef-
ur síður en svo minnkað eftir því sem þau
hafa orðið eldri. Unglingalandsmótin eru
frábær fjölskylduhátíð og hver keppnis-
staður hefur sinn sjarma. Ég hlakka mikið
til að mæta á mótið á Selfossi,“ sagði
Sædís Íva Elíasdóttir í spjallinu við
Skinfaxa. Sædís Íva var formaður USVS á
árunum 2004–2007.
Frá vinstri: Fjölnir Grétarsson, Þorfinnur
Pétursson, Grétar Einarsson og Sædís Íva
Elíasdóttir.
Ásta Stefáns-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
Sveitarfélagsins
Árborgar.
15. Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi:
Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar