Dagrenning - 01.08.1951, Page 10

Dagrenning - 01.08.1951, Page 10
ingja eða hjá einum stjórnmálaflokki, sem ekki leyfir starfsemi annarra flokka. Flokkseinræði er einræðisform vorra tíma og hefur breiðst mjög út síðan kommúnistar komu því á í Rússlandi 1917. í framkvæmd cr það þekktast í sambandi við ríki nasista, fasista og kommúnista. Nú býr um helmingui alls mannkynsins við þetta stjóinaifoim. 2. Þingiæði er það stjórnarform, þar sem þjóðþing, kjörið í meiia og minna fr/álsum kosningum á flokka giundvelli, fer með allt þjóðfélagsvaldið, annað hvort beint eða óbeint. Skilin milli framkvæmdarvalds og löggjaf- arvalds eru óglögg í öllum þingræðislöndum. Þetta stjórnarform þekkjum vér best, því það er það stjórnarform sem vér sjálfir bú- um við og það sem ríkjandi er í nágranna- löndum vorum. 3. Þjóðræði hefi ég levft mér að kalla það stjómarform, sem er í Bandaríkjum Norður- Ameríku og að nokkru leyti í Sviss. Mér er ekki kunnugt um neitt viðurkennt nafn á þessu stjórnarformi og þess vegna hef ég val- ið því þetta nafn, og ástæðan til þess er sú að þar skiptir þjóðin sjálf þjóðfélagsvaldinu í beinurn kosningum, milli þeirra aðila, sem samkvæmt stjómarskrá ríkisins eiga að hafa það með höndum. Greinilegasta einkenni þjóðræðisins er hin lireina skipting milli framkvæmdarvalds og löggjafarvalds. * Til þess að gera sér nokkra grein fyrir hverju þessara stjómarkerfa fyrir sig, er rétt að athuga þau nokkuð nánar, og hvernig þau eru byggð upp, og er þá rétt að taka ákveðin ríki sem dærni. Að dórni vestrænna og norrænna þjóða, eru Sovíetríkin tvímælalanst einræðisríki. Þau ættu því að vera glöggt dæmi um það, hvernig þjóðfélagsvaldinu er komið b'rir í einræðis- ríki. Samkvæmt 30. grein stjórnarskrár Sovíet- ríkjanna eru „æðstu stjórnarvöld Sovíet- ríkjanna Æðstaráð Sovíetríkjanna." Æðstaráð Sovíetríkjanna er þing. í 32. grein segir, að „löggjafarvald Sovíetríkjanna sé eingöngu í höndum Æðstaráðs þeirra,“ og í 31. gr. segir, að Æðstaráð Sovíetríkjanna sjái urn framkvæmdir allra þeirra málefna, „sem heyra undir Sovíetríkin samkv. 14. gr. stjórnarskrárinnar“, en í þeirri grein eru talin upp öll mikilvægustu málefni ríkisins, þar á meðal: „Löggjöf urn dómaskipun og réttarhöld, refsirétt og borgararétt." Af þessum tilvitnunum er það augljóst, að í einræðisríki, eins og Sovíetríkjunum, er allt þjóðfélagsvaldið í höndum þingsins. Æðstaráðið, — þ. e. þingið, — setur lögin, fer með framkvæmdar\'aldið á þann veg, að það velur sérstaka ríkisstjórn, — þjóðfulltrúaráð- ið, — og það kýs dómara Hæstaréttar og sér- dómstóla ríkisins til 5 ára í senn. Þannig er þá allt þjóðfélagsvaldið raun- verulega í höndurn þings Sovíetríkjanna — Æðstaiáðsins. * Ef vér tökum nú ísland sem dæmi um þingræðisríki og berum saman það skipulag, sem er hér á landi samkvæmt þeirri stjórnar- skrá, er vér búum við, verður sá samanburður á þessa leið: Alþingi vort svarar til Æðstaráðs Sovíetríkj- anna. Alþingi hefur allt löggjafarvald, en auk þess velur það ríkisstjórnina, eins og Æðstaráð Sovíetríkjanna velur þjóðfulltrúa- ráðið og hefur þá þannig framkvæmarvaldið, einnig í sínum höndum. Með öðrum orðum: Bæði í einræðisríki og þingiæðisiíki ei fiam- kvæmdarvald og lögg/afan'ald sameinað í höndum einnai og sömu stofnunai — þings- ins. Hvað þá um dómsvaldið? í Sovíetríkjun- um kýs Æðstaráðið dómarana til ; ára í senn, 8 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.