Dagrenning - 01.08.1951, Side 21
— og að aíarfjarlægum stjömuhópum eða
stjarnþokum og öðru sem er rannsakað ná-
kvæmt í einstökum atriðum.
Báðum þessum sjónaukum stjórna liámá-
kvæm sigurverk, sem vinna þannig gegn
snúningi jarðar, að hver sjónauki vísar ná-
kvæmlega á þann stað í rúminu sem athug-
aður er, þar til athugandinn brevtir stillingu.
Ein einasta ljósmyndun eða athugun getur
staðið yfir heila nótt.
En auk fjarsjánna eru þarna mörg og mikil
hjálpartæki. Einn þáttur í athugun á stjörn-
unurn er iitrófskönnun. Hún beinist að því
að greina frumefnin víðsvegar í himingeimn-
um og ákveða hraða efnis í áttina að eða frá
athugandanum. Þrístrent kristalsgler klýfur
ljós stjarnanna í frumliti sína, og af þverlín-
um, sem koma fram í brotnu ljósinu verður
efnafarið ráðið og hraðinn. Sérhvert efni
hefir sitt eigið litróf og mismunandi í föstu
eða fljótandi eða eirnuðu ástandi. Efnafar
fjölda stjarna er þekkt orðið, en komi í ljós
óþekkt litróf er verk efnafræðinga að kanna
það, og þeir hafa yfir efnasmiðjum og málm-
bræðsluofnum og þess háttar tækjum að ráða.
Fyrr eða síðar tekst þeim að finna 1 efna-
smiðjum sínum efni eða efnasambönd, sem
falla við hið óþekkta litróf línu fyrir línu og
þá eru kunn orðin hlutföll frumefnanna í
lofthvolfi þeirrar stjörnu sem athuguð er.
Litrófskönnunin og ýmsar athuganir á
háttum efnanna virðast hafa leitt í Ijós þá
óvæntu niðurstöðu: að allt að því 99% af
efnum stjarnanna — þ. e. sólnanna — sé ein-
ungis vetni — sem er einfaldast og léttast
allra frumefna — og að öll hin frumefnin,
yfir 90 að tölu, séu aðeins 1%. Sumir áætla
þó önnur hlutföll — jafnvel 10:1. Ýmsir ætla
því að vetnið sé það sem nefna mætti aðaí-
efni eða foreldri allra annarra frumefna al-
heimsins.
Svcipþokan í Bereníícuiiári.
Hún er svipuð Messiei 104. Sjá bls. 21.
Um efnafar annara hnatta en sólnanna er
fátt vitað, nema jarðarinnar. Þar skapar fjöldi
frumefnanna og afbrigði þeirra og aragrúi
efnasambanda þá óendanlegu fjölbreytni sem
raun ber vitni.
Samanburð á þeirn hluta alheimsins, sem
maðurinn skynjar með berum augum og
þeim, sem hann sér í fjarsjám þeim, er nú var
getið, er auðvelt að gera, með því að hugsa
sér þessa hluta geimsins gagnsæjar holkúlur,
hverja utanurn aðra. Brot úr þessháttar lík-
ani, umskapað í flatarmynd, myndi líta
þannig út:
DAGRENNING 19