Dagrenning - 01.08.1951, Síða 31

Dagrenning - 01.08.1951, Síða 31
10. Og hvar voru heimskerfin fyrir svo sem 3 300 milljónum ára — þegar elztu berg- lög jarðarinnar eiga að hafa myndazt — ef gert er ráð fyrir að þessi hraði eigi sér stað og ef þróunarferillinn er rakinn aftur á bak? Er hugsanlegt að þau hafi verið í milljóna- tali inni í Vetrarbrautinni eða jafnvel inni í henni miðri? 11. Er ef til vill til sú lausn: að heims- kerfin séu ýmist að sundrast eða safnast — og hvað ætti að valda því? Hefir sú fom- indverska speki: að verðandin sé andardrátt- ur Skaparans stoð í veruleikanum, sé henni breytt úr líkingamáli sjáandans í tæknimál nútímans? 12. Og hvað um stærð alheimsins? Hvar endar mergð vetrarbrautanna? Og ef hún endar er þá komið að yztu mörkum alheims- ins? Er ekkert þar fyrir utan, nema regin- djúpið autt og dimmt og endalaust? 13. Eða eru ný stórveldi vetrarbrauta enn utar í rúminu í öllum áttum og sköpunar- rnagnið allsstaðar og endalaust? 14. Og er fullkomin samsvörun í st/ornu- geimnum og atómgeimnum? Er útávið í djúpi stjamanna kerfi utanum kerfi, æ stærra og stærra, en innávið í djúpi efnisins kerfi innaní kerfi, æ minna og minna — og ráða ein eðlis- lög í stórheiminum og önnur í smáheimin- um? 15. Er ekki jafnlíklegt að sköpunarmagnið nái óendanlega langt inn í atómgeiminn, eins og að það nái óendanlega langt út í stjörnugeiminn? Er ekki hvortveggja jafn ofvaxið hugsun rnanns? 16. Eru líkur til þess að starf tilvemnnar sé eilíft — án upphafs og án endis? Og verður þá til nýr heimur á rústum gamals heims? Fæðast heimskerfin og deyja og gengur svo frá eilífð til eilífðar? 17. Eða eru líkur til þess að tilveran sé stundlegt fvrirbrigði? Á hún sjálf upphaf eins og hvað annað? Og gereyðast smám sarnan frumefni alheimsins — brenna út og leysast upp í útgeislan, sem fer út í rúmið, veg allrar veraldar, svo sem vísindi nútímans aðhyllast hvað helzt? Og hve langt yrði þess að bíða? 18. Er — svo að notuð sé samlíking — al- heimurinn og framvinda hans: eitt stef endur- tekið með nýjum og nýjurn tilbrigðum frá eilífð til eilífðar — eða eitt stef, sem einu sinni er flutt, og aldrei verður endurtekið? 19. Og hvað um lífið og aðbúnað þess? Er öll tilveran lifandi eða er lífið tengt ör- litlum hluta efnisins? Er aragrúi stjarnanna sólii sem lýsa dimma hnetti — þ. e. sólkerfi í líkingu við það sólkerfi sem vér byggjum — eða eru minnstu líkur til þess að vor sól, sem er áþekk miljónum miljóna annarra sólna, sé þar nokkur undantekning? Fæst nokkurn tíma nokkur vitneskja um lífsskilyiði í f jarlæg- um sólkerfum — og hvaða lífsskilyiði eiu á öðrum hnöttum í voiu sólkeifi? 20. Og loks: Getur ekki farið svo að ljóst verði, að framvinda alheimsins hafi orðið með svo miklum ólíkindum, að allar skýrskotan- ir til tilviljana verði gersamlega ónógar, nema að baki liggi alvitur skapandi máttui í tilvei- unni? Getur ekki farið svo að bókstaflega sannist spakmælið í Ritningunni: Heimsk- inginn segii í hjaita sínu: Enginn Guð ei til? Getur ekki farið svo: að aukin þekking og líkinda-tölvísin færi fram svo sterkar líkur fyrir tilvist Guðs í alheiminum, að það jafn- gildi fullum sönnunum, þó að heimspekinni og guðfræðinni hafi, sakir vanþekkingar, ekki tekizt að finna þvílíkar sannanir? IV. Ekki verða hér í þessari stuttu grein gerð- ar neinar tilraunir, til þess að leysa þau tor- ráðnu viðfangsefni, sem hér var getið, enda eru flest þeirra alveg óleyst, vegna vanþekk- ingar mannanna á alheiminum og lögmálum hans. Og sum þeirra munu aldrei verða leyst, DAGRENNING 29

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.