Reykjalundur - 01.06.1947, Qupperneq 31

Reykjalundur - 01.06.1947, Qupperneq 31
Vistmenn geta boðið gestum sinum inn i bjarta og vistlega dag- stofu. fjáraflanir og sölu. Þeirra starf krefst fórn- fýsi og skilnings á því hlutverki, sem þeir takast á hendur að leysa, og verður seint fullmetið. Með aðstoð mætra manna tókst okkur þó að yfirstíga alla þessa byrjunar- örðugleika vegna hins stórkostlegasta happ- drættis, sem efnt hefur verið til hér á landi. Það sem var mikilsverðast í þessu sam- bandi, var það, að við nutum enn sem fyrr, velvildar og skilnings valdhafanna á þeim framkvæmdum, sem við höfum með hönd- um fyrir þjóðina. Þjóðin mun áreiðanlega kunna þeim þakkir, sem studdu að því, að okkur gæfist tækifæri að stofna til jafn glæsilegs happdrættis til fjáröflunar vegna byggingaframkvæmdanna, og trauðla mun nokkur iðrast þess, að hafa veitt því máh brautargengi. Miklar vonir eru tengdar við happdrættið, og ef allir leggjast á eitt með að gera árangur þess sem beztan, er því máli vel borgið. A síðastliðnu ári ákvað miðstjórn sam- bandsins, að afla fjár til byggingafram- kvæmdanna með því að gefa út skuldabréf og selja. Þetta kom til framkvæmda á fyrsta fjórðungi þessa árs og tókst okkur fljótlega að selja helming bréfanna, en alls voru þau að verðmæti kr. 600.000.ÓO Vonir standa til að síðar verði hægt að selja þau bréf, sem eftir eru, enda þótt ekki sé markaður fyrir þau sem stendur. Meiri óvissa ríkir nú á peningamarkaðinum en nokkru sinni áður, og kemur þar margt til greina. A fjárlögum fyrir árið 1947 var samband- inu veittur byggingastyrkur að upphæð kr. 600.000.00. Þótt það fé kæmi ekki til útborg- unar fyrr en á þessu ári, var það að mestu notað- á síðasta ári, því að þá var tekið bankalán út á það. Almennt er litið svo á, að ríkinu beri að greiða % byggingakostnaðar að Reykja- lundi, eins og byggingakostnað annarra op- inberra sjúkrahúsa. Ennþá vantar þó all- mikið. á að þær greiðslur hafi verið inntar af hendi. En ákvörðun um þær greiðslur er tekin, þegar-gengið er frá fjárlögum hvers árs. Yfirleitt erum við bjartsýnir á það, að okkur takist að halda linnulaust áfram með þessar byggingar, þar til þeim er að fullu lokið eins og ráð var fyrir gert í upphafi. Við treystum á, að þjóðin styðji okkur áfram á þeirri braut. Þá mun öllum erfiðleikum verða rutt úr vegi. Reykjavík, 8. sept. 1947. Reykjalundur 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Reykjalundur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.