Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.01.2015, Síða 17
Menn ferðast um allan heim í leit að ein-
hverju sem þeir þarfnast, en finna það loks
þegar þeir snúa aftur heim.
George Moore
Mundu að brosa og mundu að hafa
gaman af lífinu!
Minion
4.1. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Agnes Marinósdóttir
flutti fyrir stuttu til
Barcelona með
manni sínum, Aroni
Þór Arnarssyni, og
tveimur sonum sín-
um, Ólafi Árna, 11
ára og Birni Darra,
2 ára. Hún stundar
nám í tísku- og
markaðsfræði en áð-
ur var hún með fyrirtæki hér á landi
sem heitir AGGYSTAR og hannaði
hún töskur sem henta túristum. Einnig
hefur hún verið að fikta við myndlist og
tekið þátt í nokkrum samsýningum. Fjöl-
skyldan er dugleg að njóta sólarinnar og
gera margt skemmtilegt saman í sólinni í
Barcelona.
Þátturinn sem allir geta horft á? Sko, það er nú ansi mikil
bjartsýni að tala um að við getum öll horft á eitthvað saman!
„Epic Fails videos“ á Youtube hentar einhvern veginn
öllum, sérstaklega þeim yngsta sem hlær dátt þegar
fólk dettur.
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum? Við
búum á Spáni þar sem matarmenningin er öðru-
vísi en heima. Burritos er í uppáhaldi hér en að
sjálfsögðu er íslenskt lamb í allra mestu uppá-
haldi. Kjötið er svo miklu betra heima, það er
bara þannig.
Skemmtilegast að gera saman? Veðrið í Barce-
lona er rosalega gott, vetur hér er eins og sumar
á Íslandi þannig að við erum mikið úti að leika
saman. Róló-menningin í hverfinu okkar, sem
heitir Gracia, er mikil og kaffihús með stórri ver-
önd eru allstaðar. Við förum öll saman að fá okk-
ur að borða og litla dýrið fær að hlaupa um
frjálst. Einnig förum við stundum á ströndina
með hlaupahjól og lítið barnamótorhjól og renn-
um meðfram strandlengjunni. Alveg dásamlegt.
Borðið þið morgunmat saman? Við borðum alltaf morgunmat saman og
knúsumst inn í sólardaginn. Það eru þó tvö skipti í viku sem ég þarf að
mæta mjög snemma og þarf að rjúka út en strákarnir knúsast þá bara án
mín.
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar?
Þegar við erum heima þá reynum við að slaka á sem mest. Við eldum
góðan mat, horfum á „epic fail“ og stundum reynum við að spila spil en það
er varla hægt þegar litli gaurinn er vakandi (ég er búin að kaupa fjóra
spilastokka á þremur mánuðum!). Þá lesum við íslenskar bækur þar sem
strákarnir eru í katalónskum skóla og mikilvægt fyrir þá að halda íslensk-
unni við.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Agnes
Marinósdóttir
Fara iðulega á ströndina
í góða veðrinu
1Hægt er að spara pláss með þvíað setja spil og púsl í taupoka.
Hægt er að merkja nöfnin á pok-
ana með tússpenna.
2 Ef Legókubbar eru vinsælir áheimilinu er ef til vill snjallt að
raða þeim eftir litum.
6 Glærirgeymslukass-
ar eru hentugir
og þægilegir,
einkum vegna
þess að auðvelt
er að sjá hvað er
í þeim. Þá er
sniðugt að
merkja þá með
límbandi og fal-
legri skrift.
ÞEGAR GÖMUL OG NÝ LEIKFÖNG SAMEINAST VERÐUR OFT PLÁSSLEYSI
Barnaherbergið
skipulagt á ný
JÓLIN ERU TÍMI BARNANNA
OG EFLAUST HAFA ÞAU
FENGIÐ NÓG AF NÝJUM
LEIKFÖNGUM SEM BÆTAST
VIÐ Í FLÓRUNA. PLÁSSLEYSI
VERÐUR ÞAR IÐULEGA TIL
VANDRÆÐA OG ÞVÍ ER
GOTT AÐ VERA SNJALL Í
SKIPULAGSMÁLUM. HÉR
KOMA NOKKUR SKIPULAGS-
RÁÐ SEM GOTT ER AÐ
STYÐJAST VIÐ.
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn
3 Það gerir herbergið hreinlegraog fínna að fela hirslur, einfald-
lega með því að setja tjald fyrir.
4 Ef hugsað er aðeins útfyrir kassann dettur
manni ýmislegt í hug.
Hirslur sem eru hugsaðar
fyrir ákveðna hluti henta oft
einnig fyrir eitthvað allt
annað. Til dæmis er sniðugt
að nota skóhirslu fyrir allt
föndurdótið og hengja það
aftan á hurðina eða einfald-
lega beint á vegginn.
5 Skóhillur á vegg geta líka hent-að til dæmis fyrir alla bílana.
HÁR
Dreifingaraðili
Óskum landsmönnum gleðilegs nýs árs
og þökkum viðskiptin á liðnu ári
Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305 – Vertu vinur okkar á