Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.01.2015, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.1. 2015
Matur og drykkir
1 pakki Lu Bastogne kex
500 ml vanilluskyr (ekki með
gervisykri)
500 ml rjómi
nokkrar msk. sýrður rjómi,
fituinnihald eftir smekk
200 g smjör
1 krukka kirsuberjasósa frá
Gammel fabrik
Myljið kexið, hægt að nota mat-
vinnsluvél eða setja kexið í plast-
poka og rúlla yfir pokann með
kökukefli. Bræðið smjörið og
hrærið saman við kexmulninginn.
Þrýstið blöndunni niður í djúpt
form eða kökudisk, kælið í ísskáp í
nokkrar klst. Hrærið sýrða
rjómann og skyrið vel saman, þeyt-
ið rjómann og blandið honum var-
lega saman við skyrblönduna. Hell-
ið blöndunni yfir kökubotninn og
sléttið yfirborðið. Setjið þá kökuna
aftur inn í ísskáp og kælið betur.
Setjið kirsuberjasósuna yfir herleg-
heitin.
Morgunblaðið/Þórður
Skyrterta með kandís-
og kanelkexi
1 kg nautatunga, Vigdís not-
aði bæði reykta og saltaði og
sauð þær saman
1-2 tsk. svört piparkorn
lárviðarlauf
vatn eins og þarf
2 pokar klettasalat
Skolið tunguna og hreinsið tung-
urætur frá ef þarf. Setjið vel af
vatni í pott, miðað er við að
vatnið fljóti yfir tunguna, ásamt
piparkornum og lárviðarlaufum
og látið vatnið ná suðu áður en
tungan er sett út í. Ef potturinn
er ekki víður er allt í lagi að skera
tunguna í tvennt áður en hún er
sett út í pottinn Þegar tungan er
komin út í má taka vatn af ef það
er of mikið. Sjóðið við vægan
hita í um 2-3 klst. Ef tungan er
snædd köld er best að láta hana
kólna í vatninu, taka samt pott-
lokið af, en hún er góð jafnt köld
sem heit. Berið fram með kletta-
salati og piparrótarsósunni.
Hægelduð nautatunga á ein-
faldasta mátann
Kartöflusalat Vigdísar Hrefnu
FYRIR 6-8
1 kg kartöflur
250 g majónes
100 g sýrður rjómi, fituinnihald eftir
smekk
½ dl sýrðar gúrkur
1 stk. laukur
3 dl. sýrður rjómi
½ dl sætt sinnep
½ dl sýrðar gúrkur, saxaðar
salt og nýmalaður pipar
Skrælið kartöflurnar hráar, skerið í bita, sjóðið
í 20-30 mínútur, fer eftir stærð og kælið. Hrærið
saman sýrðum rjóma, sinnepi og majónesi,
kryddið með salti og pipar eftir smekk. Afhýðið
eplin og skerið í litla teninga, sneiðið niður súru
gúrkurnar og hráan lauk. Blandið epla- og kart-
öflublöndunni saman við sósuna.
Stór hluti þess hóps sem kemur að
sýningunni fann tíma til að setjast
niður saman.
Högni Egilsson á spjalli við Atla Rafn en Högni sér um tónlistina í verkinu
ásamt Guðmundi Óskari Guðmundssyni.
Málsverðurinn var sérlega hátíðlegur og umhverfið notalegt við kertaljós í skammdeginu.
Stefán Hallur Stefánsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Elma Stefanía Ágústsdóttir.