Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.01.2015, Side 26
Heimili
og hönnun *Sænski bílaframleiðandinn Volvo kynnir, í sam-starfi við Ericsson og POC, frumgerð hjóla-hjálms sem tengir notandann við nálæg ökutækiog kemur þannig í veg fyrir slys. Hjálmurinnmiðar að því að gera vegfarendur meðvitaðrihvern um annan með því að deila upplýsingumum staðsetningu og senda tilkynningar þegar
ökutæki nálgast.
Hjálmur sem sendir tilkynningar
Stofan er björt og stór. Ragnhildur
segist kaupa mest inn á heimilið í
IKEA og þá sérstaklega stóru hlut-
ina. Einnig er hún mjög hrifin af
skandinavískri hönnun og verslar því
einnig í Epal, Lífi og list og Hrími.
Morgunblaðið/Þórður
HEILLANDI HEIMILI Í HAFNARFIRÐI
Minna er meira
HJÓNIN RAGNHILDUR OG STEFÁN BÚA Í SÉRSTAKLEGA BJARTRI OG FALLEGRI ÍBÚÐ Í
HAFNARFIRÐI ÁSAMT SONUM SÍNUM BJARTI INGA OG ARNARI HELGA.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Hnöttur með ljósi
sem gefur milda
birtu er sérlega
flottur í stofunni.
Ragnhildur Sigurbjartsdóttir sækir meðal annars inn-
blástur í blogg og skandinavískar fasteignasíður.
R
agnhildur Sigurbjartsdóttir lögfræðingur og
Stefán Sveinsson lögreglumaður hafa komið
sér vel fyrir í Hafnarfirði ásamt sonum sín-
um, Bjarti Inga, sem verður fjögurra ára í
febrúar, og Arnari Helga, sem er níu mánaða. „Ætli
heimilið myndi ekki flokkast sem stílhreint og einfalt.
Ljósir litir eru mjög ríkjandi og hugtakið „minna er
meira“ á, held ég, ágætlega við. Á sama tíma vil ég
hafa heimilið hlýlegt og er ég til dæmis kertasjúk.
Maðurinn minn gerir óspart grín að mér þegar ég tek
kvöldrúntinn og slekk á öllum 27 kertunum áður en
við förum að sofa,“ segir Ragnhildur og bætir við að
við innréttingu heimilisins sé mikilvægt að öllum líði
vel enda sé heimilið sá staður þar sem fjölskyldan
eyðir mestum tíma saman. „Mér finnst gaman að hafa
fallegt í kringum mig og við eigum mikið af fallegum
hlutum en á sama tíma reyni ég að hafa heimilið eins
barnvænt og kostur er þar sem við eigum jú tvo
drengi sem verða að fá að njóta sín líka.“
Ragnhildur segist kaupa mest inn á heimilið í
IKEA og þá sérstaklega stóru hlutina. „Ég er hins
vegar mjög hrifin af skandinavískri hönnun og Epal
er með mjög gott úrval af henni svo ég slysast tals-
vert oft þar inn sem og í Líf og list og Hrím.“ Ragn-
hildur segist sækja innblástur í smáforritið Instagram,
blogg og skandinavískar fasteignasíður. „Ég er til-
tölulega nýbúin að læra á pinterest sem opnaði nýjan
heim fyrir mér í þessu. Það sem ég sé hefur ósjálfrátt
mikil áhrif á það hvernig ég innrétta heimilið.“
Sófinn í stofunni er í miklu eftirlæti hjá fjölskyld-
unni og segjast þau eiga góðar stundir þar saman.
„Þar förum við yfir málin þegar allir koma heim að
loknum vinnudegi. Ég kann annars líka voðalega vel
við mig í eldhúsinu, ég hef mjög gaman af því að
prófa mig áfram þar og ég og kitchenaid-hrærivélin
mín eigum vel saman,“ bætir Ragnhildur við að lok-
um.
Skemmtilegt safn
af iittala-vörum og
gullfiskur í vasa.
Snotrir smáhlutir gefa eldhúsinu sjarma.