Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.01.2015, Side 43
Skipulögð
fatakaup
Úr sumarlínu Etro 2015.
Blómamunstur
Blómamunstur eru auðvitað
alltaf vinsæl yfir sumartímann en
í ár verða það blómamunstrin í
dempaðri eða dekkri litum, inn-
blásin af áttunda áratugnum.
Úr sumarlínu Saint Laurent 2015.
Þykkbotna skór.
Tom Ford og Saint Laurent sýndu
þykkbotna hælaskó á sumarlínum
sínum fyrir sumarið 2015. Þykk-
botnaskór hafa verið vinsælir und-
anfarið og því um að gera að næla sér
í par á útsölunni í janúar.
Úr sumarlínu Thakoon 2015
Léttar prjónapeysur.
Vandaðar prjónapeysur eru
góð eign og ættu allar konur
að eiga allavega eina slíka.
Peysurnar henta ekki síður á
svölum sumarnóttum og það
sem eftir er vetrar. Einfaldar
prjónapeysur fara aldrei úr
tísku og eru oft not fyrir slíka.
Úr sumarlínu Givenchy 2015.
Leður.
Leður er búið að vera gríð-
arlega vinsælt í vetur og er ekk-
ert að fara að detta úr tísku.
Leður er klassíkt efni sem auð-
velt er að para við önnur efni
enda passar leður við flest.
AFP
HVAÐ Á AÐ KAUPA Á ÚTSÖLUM?
NÚ ERU ÚTSÖLUR AÐ HEFJAST Í FLESTUM VERSLUNUM OG
MARGIR NÝTA SÉR ÞÆR TIL FATAKAUPA. FYRIR ÚTSÖLUR
GETUR VERIÐ GOTT AÐ FARA Í GEGNUM FATASKÁPINN
TIL ÞESS AÐ SJÁ HVAÐ VANTAR. ÞÁ GETUR VERIÐ GOTT
AÐ SKIPULEGGJA KAUPIN FYRIRFRAM. NOKKUÐ AF ÞVÍ SEM
ER GOTT AÐ KAUPA Á JANÚAR-ÚTSÖLUNUM ERU
VETRARFÖTIN, KÁPUR, HANSKAR, HÚFUR OG SVO
FRAMVEGIS ÁSAMT ÞVÍ AÐ KYNNA SÉR ÞAÐ SEM VERÐUR
ÁFRAM LEIÐANDI Í TÍSKUSTRAUMUM NÆSTA SUMAR.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Úr sumarlínu
Gucci 2015
Gallaefni
Gallaefni heldur
áfram að vera heitt
með nýju ári.
Úr sumarlínu Louis Vuit-
ton 2015.
Áttundi áratugurinn.
Áttundi áratugurinn held-
ur áfram að vera vinsæll í
sumar og því upplagt að
fjárfesta í flík innblásinni
af áttunda áratugnum.
Útvíðar buxur, flauel,
mildir litir og kálfasíð pils.
Leikkonan og fyrirsætan
Olivia Palermo.
Vetrarkápur.
Fyrir þá sem þurfa vetr-
arkápur er janúar tíminn
til að fjárfesta í einni
slíkri. Vetrarkápur eru
klassísk og góð eign sem
dettur aldrei úr tísku.
Úr sumarlínu Christian Dior 2015.
Háir kragar.
Háir kragar og rúllukragar voru gríð-
arlega vinsælir í vetur. Rúllukragar
verða áfram vinsælir í sumar, á peys-
um, kjólum og samfestingum.
4.1. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Hágæða flísar frá Ítalíu
60 x 60 cm