Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.01.2015, Síða 64
SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2015
„Ég er í senn stoltur og hrærður. Í starfi eins og þessu, þar sem maður situr mikið einn við og heyrir stundum ekki
tóna eftir sjálfan sig mánuðum saman, er það mikils virði að til sé fólk sem vill veita manni svona viðurkenningu. Það
hefur raunar meiri þýðingu en hægt er að koma í orð því það er hæg hrynjandi í þessu fagi og getur verið mjög langt
á milli hápunkta,“ segir Hugi Guðmundsson tónskáld sem hlaut í gær Íslensku bjartsýnisverðlaunin. Verðlaunin eru
hugsuð sem hvatning og viðurkenning til íslenskra listamanna. Rio Tinto Alcan hefur verið bakhjarl verðlaunanna frá
árinu 2000 en þau voru fyrst veitt 1981 og þá kennd við upphafsmann sinn, danska athafnamanninn Peter Bröste.
Hugi segir engan vafa á því að verðlaun af þessu tagi hafi þýðingu. „Alla vega finnst okkur listamönnum það. Þetta
er klapp á bakið fyrir okkur og vísbending um að við séum að gera hluti sem skipta máli. Það er heldur ekkert bón-
usakerfi á launareikningum okkar, þannig að þetta kemur sér vel,“ segir Hugi og bætir við að ekki dragi það úr lotn-
ingu sinni að margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar hafi hlotið verðlaunin gegnum tíðina.
Hann segir fleiri íslensk fyrirtæki mega taka Rio Tinto Alcan sér til fyrirmyndar. Það þurfi ekki endilega að vera í
formi viðurkenninga, styðja megi við menningu og listir með margvíslegum öðrum hætti, eins og að panta tónverk.
Hugi fékk á nýliðnu ári starfslaun til þriggja ára í Danmörku, þar sem hann býr og starfar, og í kjölfarið kom pönt-
un um að skrifa óperu byggða á Hamlet í tilefni af 400 ára ártíð Williams Shakespeares 2016. Hún verður frumsýnd í
Hamletkastalanum í Helsingör. „Þetta mun taka bróðurpartinn af mínum tíma á næstunni, með öðrum verkefnum
inn á milli,“ segir Hugi sem á m.a. nýtt verk á Myrkum músíkdögum nú í janúar, auk þess sem barnaverk eftir hann
verður flutt á skólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. „Ég hlakka mjög til að sjá hvernig það gengur.“
Hugi Guðmundsson tekur við Íslensku bjartsýnisverðlaununum úr hendi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands.
Morgunblaðið/Kristinn
HUGI GUÐMUNDSSON HLÝTUR ÍSLENSKU BJARTSÝNISVERÐLAUNIN
Meiri þýðing en orð fá lýst
Geirfinnur Einarsson er ekki leng-
ur í tölu lifenda og lík hans liggur í
sjó eða vatni í átta hundruð eða
eitt þúsund metra fjarlægð frá
heimili hans í Keflavík. Og alls
ekki lengra. Þetta kom fram í
símasamtali Morgunblaðsins við
hinn heimsþekkta hollenska sjá-
anda Gerard Croiset í ársbyrjun
1975. Fáeinar vikur voru þá liðnar
frá þessu umtalaðasta manns-
hvarfi Íslandssögunnar.
Lögreglan hafði greint frá því
opinberlega að hún hefði leitað til
Croisets í þeirri von að hann gæti
hjálpað til við að upplýsa hvarf
Geirfinns og fyrir vikið þótti
Morgunblaðinu eðlilegt að hafa
samband við sjáandann, að því er
segir í baksíðufrétt blaðsins. Í
samtalinu er haft eftir Croiset að
lík Geirfinns liggi í einhverju „tré-
verki“, sem er hálft í kafi og hálft
upp úr vatninu. Um væri að ræða
hús eða skipsflak en bryggja kæmi
líka til greina. Þegar Croiset var
spurður um aðdragandann að
hvarfi Geirfinns vildi hann ekkert
tjá sig um það en kvaðst mundu
gefa lögreglunni upplýsingar um
það mál.
Ekki leiddu þær upplýsingar til
þess að Geirfinnur fyndist.
GAMLA FRÉTTIN
Sá lík
Geirfinns
Gerard Croiset, hollenski sjáandinn
heimsfrægi, sem leitað var til.
Geirfinnur Einarsson hvarf spor-
laust frá heimili sínu síðla árs 1974.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Tobey Maguire
kvikmyndaleikari.
Garðar Thor Cortes
óperusöngvari.
Jake Gyllenhaal
kvikmyndaleikari.
ILVA.DK
ÚTSALA
YFIR 2500 VÖRULIÐIR Á
LÆKKUÐU VERÐI
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
SPARAÐU
25%
af öllum
handklæðum
SPARAÐU
25%
af öllum
púðum
SPARAÐU
25%
af öllum
kertum
Ýmsir litir. 50 x100cm. 995kr. Nú695kr.
70 x140cm. 1.995kr. Nú1.495kr.
100 x150cm. 2.995kr. Nú1.995kr.
Nessa-handklæði
ZigZag.Púði. 50 x50 cm. 4.995kr. Nú3.695kr.Contrast. Púði. Svartur/natur. 3.995kr.
Nú2.995kr. Love is...Púði. 40 x60 cm. 6.995kr. Nú5.195kr.One.Púði. 40 x40 cm.
2.995kr. Nú2.195kr.
Púðar