Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklumeira, en bara ódýrt
Viðgerðarkollar
hækkanlegir
10 kg. 9.999
40 kg. 39.895
25 kg. 24.995
7.995
Ný sending af steðjum
á frábæru verði:
REYKJAVÍK
GRAFARHOLT OG ÚLFARSÁRDALUR
H
EI
MS
ÓKN Á HÖFUÐBO
R
G
A
R
S
V
Æ
Ð
IÐ
2015
Í stjórnsýslukerfi Reykjavíkur-
borgar eru íbúðarhverfin Grafar-
holt og Úlfarsárdalur talin einn
borgarhluti. Atvinnusvæði við
Vesturlandsveg tilheyra
einnig borgarhlutanum ásamt
stórum útivistarsvæðum til aust-
urs, suðurs og vesturs. Eitt af
einkennum svæðisins er mikil
nánd við náttúruna og eru þar
náttúruperlur eins og Úlfars-
fellið, Reynisvatn og Hólms-
heiðin.
Byggðin og opnu svæðin í
Grafarholti eru að mestu í föst-
um skorðum og yfirbragð byggð-
ar er heildstætt. Í Úlfarsárdal er
byggðin í þróun og verður það
næstu árin. Byggð í Grafarholti
er víðast hvar smágerð og ein-
kennist af blöndun sérbýlis og
fjölbýlis, sérstaklega í vesturhluta
hverfisins, en mun hærra hlutfall
fjölbýlishúsa er í austurhlutanum.
Í Úlfarsárdalnum er fjölbreytt
blanda af íbúðum í fjölbýli og sér-
býli með skjólgóðum útirýmum.
Þéttleiki byggðarinnar er svip-
aður því sem þekkist í eldri hverf-
um borgarinnar.
Borgarhverfi í
nánd við náttúruna
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Skammt frá bökkum Úlfarsár
leynist Dalskóli sem þykir um margt
sérstakur, þó sérstaklega fyrir þær
sakir að hann er allt í senn, leik-, frí-
stunda- og grunnskóli. Hildur Jó-
hannesdóttir, skólastjóri Dalskóla,
segir kostina við þessa nálgun vera
ótvíræða.
„Reynslan hefur sýnt okkur að
það myndast ákveðin heildarnálgun
á hvert barn fyrir sig auk þess sem
skólinn virkar sem einn þjónustu-
staður fyrir öll börn fjölskyldunnar,“
segir Hildur og bætir við að daglegt
líf barna verði fyrir litlu raski sökum
þessa.
„Það koma ekki þessi högg á líf
barnsins við skólaskiptin. Enn frem-
ur skapast mikil sameiginleg þekk-
ing á þörfum barnsins á leikskóla-
stiginu sem tapast svo ekki þegar
það flyst yfir í grunnskóla- og frí-
stundastarfið.“
Af þessu leiðir að allir starfs-
menn skólans hafa samræmda
starfsdaga sem geta auðveldað
mörgum foreldrum lífið til muna.
„Þá bjóðum við einnig ungling-
unum okkar upp á val þar sem þau
kynna sér líf og starf í leikskóla- og
frístundahlutanum. Þar aðstoða þau
við starfið, læra um þroska barna,
bjóða fram klúbbastarf í frístundinni
og skrá upplifun sína. Þannig horfa
þau á uppeldismál frá hinni hlið-
inni.“
Spárnar voru fjarri lagi
Hildur segir að í upphafi hafi
fólk haft áhyggjur af því að grunn-
skólastarfið myndi gleypa starf leik-
skólahlutans.
„Fólk óttaðist að vegna þess-
arar nálægðar myndu eldri börnin
bara hlaupa leikskólakrakkana um
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleði Í Dalskóla iðar allt af lífi og fjöri og börnin fá útrás fyrir sköpunargleði sína frá unga aldri til unglingsára.
Skóli lífsorku og náttúru
í hjarta Úlfarsárdals
Grunnskóli, leikskóli og frístundir undir einum hatti í Dalskóla
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Öll starfsemi Fisfélags Reykjavík-
ur, sem nú er að hluta til að Grund
við Úlfarsfell, verður á næstu miss-
erum flutt á nýtt athafnasvæði að
Heiði, skammt
ofan við Geitháls
þar sem heitir
Reynisvatns-
heiði. Þar hafa
fisflugmenn á
síðustu árum
komið upp
ágætri aðstöðu.
Byggt skýli fyrir
25 flygildi og
lagt þrjár flug-
brautir, þar af
eina 400 m langa sem liggur frá
austri til vesturs.
Þrengt að Grundarvelli
Svifdrekafélag Reykjavíkur
var stofnað árið 1978. Í samræmi
við fjölbreyttari starfsemi var nafn-
inu síðar breytt í Fisfélag Reykja-
víkur. Var meginstarfsemi þess
lengstum að Grund, þar sem er
flugbraut skammt ofan við stórhýsi
byggingavöruverslunar Bauhaus.
Á síðari árum hefur íbúða-
byggð þrengt að aðstöðu fismanna
að Grund, sem 2007 hófu vall-
argerð að Heiði. Árið 2006 var
gerður samningur sem gildir til
2025 við Reykjavíkurborg um afnot
af landi á heiðinni, sem á að-
alskipulagi er skilgreind sem fólk-
vangur og athafnasvæði fyrir flug-
ið. Uppbyggingarstarfið hefur
gengið vel, þrátt fyrir að mest sé
Flogið á litlum fisum
á heiðinni við borgina
Fismenn að yfirgefa Úlfarsfell Framtíð-
arvöllur á Hólmsheiði sagður óraunhæfur
Óli Öder
Magnússon
Úlfarsfell Þessi völlur mun víkja
fyrir byggð á allra næstu misserum.