Morgunblaðið - 10.02.2015, Side 26

Morgunblaðið - 10.02.2015, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015 Vigfús Bjarni Albertsson er sjúkrahúsprestur á Landspít-alanum og hefur starfað við það síðan hann kom úr sérnámiárið 2005. Hann lærði guðfræði hér heima og tók meist- aranám í sorgar- og áfallahjálp í Bandaríkjunum. „Vinnan dags- daglega gengur mest út á samtöl og samfylgd við fólk í erfiðum að- stæðum og sorgaraðstæðum, en einnig eru margar gleðistundir sem maður gengur í gegnum með því.“ Vigfús kennir einnig sorgar- og áfallafræði sem er þverfaglegt nám við Endurmenntun Háskóla Ís- lands. „Það er mest fólk sem er menntað úr heilbrigðisvísindunum sem nýtir sér það.“ Kona Vigfúsar er Valdís Ösp Ívarsdóttir, fíknifræðingur og fjöl- skylduráðgjafi, og rekur hún sína eigin stofu. „Störf okkar tvinnast því mikið saman.“ Börn þeirra eru Rannveig, 17 ára, Albert Elí, 14 ára, og Patrekur Veigar, 6 ára. Vigfús hefur gaman af útivist og veiðum. „Það er gott að komast út í náttúruna og upplifa tengslin við hana. Maður er hvergi nær raunveruleikanum en úti í náttúrunni og einnig þegar maður er í tengslum við fólk. Starf sjúkrahúsprestsins eru samskipti, þar sem fólk verður grímulaust gagnvart lífinu. Ég ætla að halda veislu í heimahúsi í tilefni afmælisins 14. febr- úar. Maður skynjar vel í gegnum vinnuna að það eru forréttindi að eldast. Ef maður myndi ekki átta sig á því þá skildi maður lítið. Þess vegna vil ég fagna þessum tímamótum.“ Vigfús Bjarni Albertsson er fertugur í dag Sjúkrahúsprestur Vigfús fyrir utan kapellu Barnaspítala Hringsins. Forréttindi að eldast Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Skagafirði Óskírður Stefánsson fæddist 31. janúar 2015 kl. 00.32. Hann vó 4.238 g og var 55 cm langur. Foreldrar hans eru Stefán Gísli Haraldsson og Unnur Gottsveinsdóttir. Nýr borgari G unnhildur fæddist á Akranesi 10.2. 1965 og ólst þar upp til níu ára aldurs að undan- skildum þremur árum þegar fjölskyldan bjó á eyjunni Mauritus þar sem faðir hennar starfaði við þróunaraðstoð á veg- um FAO. „Ég er mikill Garðbæingur, hef búið í Garðabæ nær óslitið frá níu ára aldri, var í Barnaskóla Garða- bæjar og Garðaskóla, fór síðan í Verslunarskólann, síðan í lögfræði og lauk embættisprófi í lögfræði frá HÍ vorið 1992.“ Að loknu lögfræðiprófi flutti Gunnhildur til Ísafjarðar, var þar fulltrúi sýslumanns í þrjú ár, var síðan fulltrúi á lögmannstofu Ingi- mundar Einarssonar í tæpt ár en hóf þá störf við lögfræðideild Hús- næðisstofnunar ríkisins í árslok 1995. Hún hefur svo starfað hjá Íbúðalánasjóði frá stofnun sjóðsins í ársbyrjun 1999, hefur gegnt þar ýmsum ábyrgðar- og stjórnunar- stöðum en er nú framkvæmda- stjóri lögfræðisviðs sjóðsins. Gunnhildur hefur átt sæti í fjöl- mörgum nefndum og starfshópum um húsnæðismál í tengslum við starf sitt. Þegar starfinu sleppir leggur Gunnhildur einkum áherslu á sam- verustundir fjölskyldunnar en hún á þrjú börn, fjóra stjúpsyni og fjögur stjúpömmubörn. Það er því í mörg horna á líta: „Þrátt fyrir miklar annir okkar hjóna í vinnu undanfarin ár höfum við verið mjög dugleg að ferðast, bæði innanlands og utan. Ég stunda líka reglulega jóga og aðra Gunnhildur Gunnarsdóttir, framkv.stj. hjá Íbúðalánasjóði – 50 ára Í Noregi Gunnhildur og Guðmundur, eiginmaður hennar, á rómantískri kvöldsiglingu í norska skerjagarðinum. Lífsglöð og þakklát fyrir barnalán og góða heilsu Skíðafólk Gunnhildur með Agnesi Ástu og Kára Steini í Bláfjöllum. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.