Morgunblaðið - 10.02.2015, Side 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þrátt fyrir að vinir og vandamenn
séu ekki á sömu leið og þú líður þér mjög
vel. Hafðu hægt um þig þangað til þú nærð
áttum.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er ekkert hlaupið að því að raða
lífsbrotunum saman svo vel fari til fram-
tíðar. En nú er best að viðurkenna að það er
óraunhæft og skemmta sér smá í staðinn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Andartök fullkomnunar eru dem-
antar hvers dags og fyrir þá ertu tilbúin að
fórna mikilli orku. Gefðu þér líka tíma til að
eiga samverustundir með fjölskyldunni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Styrking persónuleikans, sem nú er
vanmetið ferli, er alltaf í tísku. En hvað með
verkefnið sem þú varst búin að lofa sjálfri
þér? Settu sjálfa þig ofar á forgangslistann.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Enn og aftur ertu að semja um þarfir
þínar. Maður getur ekki búist við of miklu ef
maður nennir bara að vökva einu sinni á ári.
Hvort er það núna?
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Að lifa í botn hefur ekki sömu merk-
ingu í þínum huga og ástvina þinna. Ekki
vera óþolinmóður því þitt tækifæri kemur
fyrr en varir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú átt hreint ekki að lúffa fyrir öðrum
með hluti sem þú hefur sterka trú á. Að
skrifa gæti ekki bara hjálpað til við að vinna
úr þessum tilfinningum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Dagurinn í dag er kjörinn til
þess að sinna skriffinnsku af einhverju tagi,
svo sem tryggingamálum, reikningum,
skuldum og þess háttar. Tjáðu þig um málið
og þér mun líða betur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hæfileiki þinn til þess að ná ein-
beitingu er aðdáunarverður. Fólk er mjög
móttækilegt fyrir því sem þú hefur fram að
færa.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú er upplagt að ferðast eða
gera ferðaáætlanir. Og af því að þú trúir, í
eitt lítið augnablik, að þú sért ósigrandi,
ertu það.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekkert blómstrar án ljóss. Ef þú
lætur þetta tækifæri framhjá þér fara muntu
iðrast þess alla tíð.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú færð hverja hugmyndina á fætur
annarri en gengur illa að gera þær allar að
raunveruleika. Og þér kann að takast að
lægja deilur um sameiginlegar eigur.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkirog ekki að ástæðulausu:
Á ferðum sínum flestu búast við.
Fatlaðir, þá skreppa milli húsa,
hafa með sér hertan fisk og svið,
hálfan nautsskrokk, graut og
kaffibrúsa.
Hallmundur Kristinsson lýsir á
Boðnarmiði áhyggjum sínum með
þessari yfirlýsingu: „Til að fyrir-
byggja misskilning og hverskyns
óþægindi sem slíkur skilningur get-
ur valdið skal það tekið fram að í
limrum mínum eru nöfn tekin af
handahófi og vísa yfirleitt aldrei í
ákveðna einstaklinga. Þannig var
t.d. í eftirfarandi limru hvorki
Steinunn Ólína né Stefán Karl höfð
í huga.
Hjá Steinu og Stefáni törnin
var stöðug, en brotakend vörnin.
Tuttugu og tvö
(tvíburar sjö)
urðu því blessuð börnin.“
Kristján Karlsson hafði sömu
áhyggjur, sem m.a. olli því að í
handritum hans er ýmist sagt Stein-
grímur eða strikað yfir og krotað
Steinólfur í þessari limru, sem að
síðustu birtist þannig í Limrum:
„Í stríðum örlagastraumi,“
mælti Steinólfur, „þó að kraumi
þá stend ég sem fastast
hvert sem strengurinn kastast.
Aftur stendur mér fastast í draumi.“
Sigrún Haraldsdóttir gerir
„gras“ að yrkisefni á Leirnum:
Friðlaus er og fátt um hlé,
fram af hugsun dregin;
getur skeð að grasið sé
grænna hinum megin?
Og segir síðan: „Það er furðulegt
að yrkja svona vísu á þessum árs-
tíma þegar hvergi sést grænt gras!“
Friðrik Steingrímsson kann
skýringu á því:
Letur marga lífsins þras
þó lengist dagsins skíma,
það er bara gervigras
grænt á þessum tíma.
Málið horfir þannig við Ólafi
Stefánssyni: „Geri ráð fyrir að þú
etir ekki gras, Sigrún, en margur
garðeigandi hefur bölvað garðafál-
um sem komist hafa í blóm og trjá-
gróður þegar síst skyldi og skilið
eftir sig viðurstyggð eyðileggingar.
Ef þú, Sigrún, átt við fé,
árans rollugreyin,
bóka mátt að betra sé,
blómið hinum megin.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af ferðanesti, nafnleysi og
grænu grasi
Í klípu
„VIÐ VILJUM EINNIG NÝTA ÞETTA
TÆKIFÆRI TIL ÞESS AÐ LÝSA YFIR
GJALDÞROTI OKKAR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HUNDRAÐ OG EIN LEIÐ TIL ÞESS AÐ
SVINDLA Á KORTAFYRIRTÆKJUNUM“ ...
MUNTU BORGA MEÐ REIÐUFÉ EÐA KORTI?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að halda sér of
ungum til þess að verða
gamall.
ÉG ÆTLA AÐ LESA
Í HUGA JÓNS.
HANN VILL AÐ ÉG BORÐI
SÍÐUSTU SMÁKÖKUNA.
KONUNGURINN VEIT AÐ ÞAÐ
GETUR REYNT Á AÐ SJÁ OKKUR
SKATTHEIMTUMENNINA...
OG HANN VILL AÐ
VIÐ DRÖGUM ÚR
STREITUNNI...
ÞANNIG AÐ Í NÆSTA MÁNUÐI
VERÐUM VIÐ KLÆDDIR Í
KANÍNUBÚNINGA!
Víkverji heyrði á dögunum bráð-skemmtilega sögu hafða eftir
Ragnari Gunnarssyni, stórsöngvara
úr Skriðjöklum, Ragga sót. Mun
hann hafa látið hana flakka í viðtali í
útvarpinu.
Þegar Raggi var yngri rak móðir
hans vefnaðarvöruverslun á Akur-
eyri og einhverju sinni fékk hann að
fljóta með henni til Amsterdam, en
tilgangur ferðarinnar var að fylla á
lager búðarinnar. Með í för var vinur
Ragga, einlægur maður og hrein-
skilinn. Ferðin gekk eins og í sögu
en við komuna heim var vinurinn
stöðvaður í tollinum.
„Jæja, vinur minn, hvaðan ert þú
að koma?“ spurði tollvörðurinn.
„Frá Amsterdam,“ svaraði vinur-
inn.
„Nú, jæja. Og ertu bara einn á
ferð?“ spurði tollvörðurinn.
„Nei, ég er með vini mínum og
móður hans,“ svaraði vinurinn.
Nema hverjum?
„Og hvað voruð þið að gera í
Amsterdam?“ spurði tollvörðurinn.
„Kaupa efni!“
Tollvörðurinn bretti upp ermar.
x x x
Skriðjöklar eru ógleymanlegir.Leitun er að hressari hljómsveit
með dansara á heimsmælikvarða.
Hver man ekki eftir lögum eins og
Ég sé um hestinn, Búmm tsjagga
búmm og Mikki refur?
Svo var það Tengja, þar sem
komu við sögu kappar á borð við
Hannes í Tungu, Sindra á Fitjum og
Dengsa í Felli. Svo er það þessi
óborganlega setning: Féll ekki Jó-
hannes Sæmundsson aftur og enn?
Af samhenginu að ráða tengjast
föll þessi skólagöngu Jóhannesar
Sæmundssonar. En því getur auð-
vitað enginn svarað af meiri vissu en
höfundur textans, Arnar Björnsson,
íþróttafréttamaður hjá 365. Og svo
auðvitað Jóhannes sjálfur. Hvernig
ætli sá ágæti maður kunni annars að
meta það að skólaganga hans hafi
verið gerð ódauðleg með þessum
hætti?
Er ekki tími til kominn að tengja?
Er ekki tími til kominn að tengja?
Tengja, tengja, tengja?
víkverji@mbl.is
Víkverji
Einn er Guð. Einn er og meðalgangarinn
milli Guðs og manna, maðurinn Kristur
Jesús sem gaf sjálfan sig til lausnargjalds
fyrir alla. Það var vitnisburður hans á sett-
um tíma. (Fyrra Tímóteusarbréf 2:5-6)