Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015 atburðarásina. Árni fylgir Óla fast eftir í daglegu amstri, með auðfæranlegri og léttri tökuvél og nær því jafnt að fanga mjög per- sónuleg samskipti og einlæg samtöl. Augljóst er að hann hefur myndað miklu meira efni en birtist í end- anlegri gerð frásagnarinnar og klippt það saman í heild. Árni er naskur sögusmiður sem ber gott skynbragð á „persónusköpun“. Hann veit greinilega að Óli er maður blæbrigða eins og kemur eftir- minnilega fram í þjálfunaraðferðum hans. Hann virðist einnig eiga auð- velt með að sjá hið spaugilega í hversdagsleikanum. Myndflétta af Óla að taka sín fjölmörgu daglegu vítamín kitlar til að mynda vel hlát- urtaugar áhorfenda sem og hressi- leg hreinskilni barna í nærumhverfi goðsagnarinnar og hispurslausar at- hugasemdir Bíbíar ömmu hans og Borisar, gamla þjálfarans hans hjá Val. Eini ljóður myndarinnar er tæknilegur því á tíðum er ekki nægi- leg myndskerpa í byrjun skota og stundum heyrist ekki gjörla í þeim sem tala í fjölmenni eða víðu rými en slíkt er svo sem eðli þessarar teg- undar heimildarmyndar og þekkt takmörkun hennar. Frásögnin er línuleg, með afmark- að upphaf, miðju og endi, þótt fram- vindan lægi augljóslega ekki fyrir þegar þeir Árni og Óli hófu sam- starfið. Myndin hefst á snarpri kynningu á ferli handboltakappans þar sem eldra myndefni er klippt saman. Með stigmagnandi sigrum verður þjóðhetjan til og hún er að lokum hyllt í ærlegri þakkargjörð Heimildarmyndin Óli priker nærgöngul en einlægpersónustúdía á hand-boltahetjunni Ólafi Stef- ánssyni. Hún hefst við þau merku tímamót á ferli hans þegar hann hættir að spila sem atvinnumaður, snýr heim eftir 17 ár erlendis og ger- ist aðalþjálfari meistaraflokks Vals. Myndin fylgir Óla eftir næsta hálft annað árið en á þeim tíma áttar hann sig á að þjálfarastarfið hentar hon- um ekki nægilega vel. Hann ákveður því að beina kröftum sínum í nýjan farveg en þau straumhvörf ganga ekki átakalaust fyrir sig. Leikstjórinn Árni Sveinsson hefur áður gert heimildarmyndirnar Í skóm drekans (2002), Með hangandi hendi (2010) og Backyard (2010). Árni setur sig í hlutverk mannfræð- ings sem fylgist jafnt með og tekur þátt í lífi viðfanga sinna. Þannig verður hann eiginleg persóna í myndinni og áhorfendur verða með- vitaðir um hvernig nærvera hans hefur áhrif á og jafnvel stuðar sem Óli sjálfur kallar jarðarför handboltamannsins. Í hartnær ann- an áratug dvaldi hann og starfaði er- lendis ásamt sinni samheldnu kjarnafjölskyldu. Þar tilheyrði hann alltaf afmörkuðum liðsheildum og ytra áreiti var í lágmarki. Hann gat því einbeitt sér til fulls og toppað á sínu sviði. Við heimkomuna til Ís- lands fær hann hvorki ráð né rúm til að hugsa hálfa hugsun. Hann er goð- sögn og sem slík almenningseign – meiri ímynd en einstaklingur. Hann ætlar sér einnig um of, rennir blint í sjóinn og sækir á of mörg mið sam- tímis sem leiðir til þess að hann lendir í tilvistarkreppu og örmagn- ast. Við lok myndarinnar virðist Óli vera að finna sjálfan sig á ný og eyg- ir endurfæðingu. Hann velur að vinna með börnum og vera aftur í af- mörkuðu liði. Sem tilfinningavera áttar Óli sig á að stundum þarf maður að draga seglin saman og sjá tækifæri í óbil- gjörnum mótvindi. Það er göfugt að geta viðurkennt slíkt fyrir sjálfum sér og öðrum. Í raun má líkja Óla við sprengistjörnu sem brennur ofur- skært en fuðrar um leið upp og tor- tímir sér. Ótrúleg útgeislun hans hefur lýst upp íslenskt samfélag og umheiminn í stærra samhengi en nú má kannski segja að tími sé kominn fyrir hann að líta sér nær. Reyndar virðist hann að einhverju leyti vera meðvitaður um það strax í upphafi myndarinnar því þá segir hann: „Þú getur farið út og reynt að taka inn allan heiminn, en í rauninni geturðu fundið allan heiminn inni í einni mauraþúfu. Stundum þarftu að fara í einhverja vitleysu til að fatta það. Nú er ég búinn að vera úti í 17 ár … og hlakka bara virkilega til að kom- ast heim!“ Nú er bara að vona að Óli njóti þess að vera kominn heim og finni sig í íslensku mauraþúfunni! Stjarna „Í raun má líkja Óla við sprengistjörnu sem brennur ofurskært en fuðrar um leið upp og tortímir sér,“ segir m.a. í gagnrýni um Óla prik sem fjallar um handboltakappann og hugsuðinn Ólaf Stefánsson. Þroskasaga sprengistjörnu Háskólabíó, Smárabíó og Borgarbíó Óli prik bbbbn Leikstjórn, kvikmyndataka og klipping: Árni Sveinsson. Handrit: Árni Sveinsson og Grímar Jónsson. Framleiðandi: Grím- ar Jónsson. Heimildarmynd, 93 mín. Ís- land, 2015. HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR KVIKMYNDIR Breski sálarsöngvarinn Sam Smith hlaut fern Grammy-tónlistarverð- laun um helgina og þ.á m. verðlaun sem besti nýliðinn, fyrir lag ársins og fyrir að vera eini tónlistarmað- urinn sem seldi yfir milljón eintök af plötu sinni bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum í fyrra. Pharrell Williams, Beyoncé og Rosanne Cash, dóttir Johnny Cash, hlutu hvert þrenn verðlaun og Beck tvenn og þá m.a. fyrir bestu plötu ársins, Morning Phase. Verðlauna- afhendingin fór fram í Los Angeles og meðal þeirra sem tróðu upp voru Madonna, Katy Perry, Rihanna, Ka- nye West og Paul McCartney. Madonna stal senunni á rauða dreglinum þegar hún svipti upp stuttum kjól sínum og sýndi á sér rassinn, klædd í netsokkabuxur. Ljósmyndarar brugðust hratt við, eins og sjá má af meðfylgjandi mynd. Smith var þó stjarna kvöldins en hann kvaddi sér hljóðs í fyrra með plötunni In the Lonely Hour. Hann starfaði áður sem barþjónn í Lund- únum og í ræðu þakkaði hann ást- manni sínum fyrir að hafa veitt sér innblástur við gerð lagsins „Stay With Me“ sem hann hlaut fyrir Grammy-verðlaun, fyrir besta lag ársins. Bandaríski tónlistarmaðurinn Pharrell Williams hlaut verðlaun fyrir bestu plötu í flokkinum „urban contemporary“, fyrir besta tónlist- armyndbandið, við lagið „Happy“ og besta frammistöðu popptónlist- armanns. Beyoncé hlaut verðlaun fyrir flutning þeirra Jay-Z, eig- inmanns hennar, á laginu „Drunk in Love“ og var lagið jafnframt valið besta R&B-lagið. Þá hlaut hún verð- laun fyrir bestu hljómplötuna í víð- ómi (e. best surround sound album), plötuna Beyoncé. Rosanne Cash hlaut m.a. verðlaun fyrir bestu Am- ericana-plötuna, The River & The Thread og besta lagið af þeim sem flokkast til slíkrar tónlistar, „A Feather’s Not A Bird“. Af öðrum verðlaunum má svo nefna að Aphex Twin hlaut verðlaun fyrir bestu dans- og raftónlistarplötuna, Syro. AFP Kampakátur Nýliðinn Sam Smith alsæll með fjóra verðlaunagripi á Grammy-tónlistarverðlaunahátíðinni í Los Angeles í fyrradag. AFP Rass Poppdrottingin Madonna sýndi rassinn á rauða dreglinum. Sam Smith fengsæll  Hlaut fern Grammy-verðlaun  Beck átti bestu hljómplötu ársins Rafmagnað samband við áskrifendur Þann 20. febrúar kemst einn heppinn áskrifandi Morgunblaðsins í samband við Volkswagen e-Golf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.