Morgunblaðið - 10.02.2015, Síða 33
AF TÓNLIST
Ingvar Bates
ingvarbates@mbl.is
Myrkir músíkdagar voruhaldnir í TónlistarhúsinuHörpu dagana 29. janúar
til 1. febrúar í 35. sinn. Almennt
voru gæðin vel yfir væntingum og
jafnvel þar sem síður tókst til er
ástæða til bjartsýni því forvitni í
bland við einlægni mátti hvarvetna
merkja. Almennt ríkti góð stemn-
ing er minnti helst á átthagamót
samlyndra.
Dagskrá Caput-hópsins var
áhugaverð. Verk Úlfars Inga Har-
aldssonar „Memoria fyrir píanó og
kemmehljómsveit“ dró í fyrsta
þætti fram músíkalskar minningar
og hugblæ úr ranni höfundar.
Þriðji þáttur var ágengur og hryn-
léttur, borinn uppi af snöfurleik
Tinnu Þorsteinsdóttur á píanó.
Verk Snorra Sigfúsar Birgis-
sonar „The Drift of Melancholy“
við ljóð Mary Jo Salter voru lituð
trega liðinna atvika í Parísarborg
sem Ingibjörg Guðjónsdóttir söng
af næmi.
Atli Heimir átti tvö tónverk
frá námsárum í Köln er hljómuðu
nú fyrst við upphaf árs 2015 á Ís-
landi – „Impressionen“ og „Ex-
pressionen“. Að sögn tónskáldsins
mættu þessar námsstúdíur mikilli
andstöðu íhaldsamra manna er
stóðu í vegi fyrir flutningi hér
heima. Kornungur gerði Atli upp
við formin punktalisma og seríal-
isma með nokkru spéi og óvenju-
legri hljóðfæraskipan, sá fyrir
skörp hornin, slétti úr og jafnaði.
Það var sláandi hversu þroskuð
verkin hljómuðu að upplagi og
hafa elst vel.
Tónleikar Nordic Affect voru
afar áhugaverðir og gáfu fyrirtaks
þverskurð af getu hópsins. Eins
heillaði verklagið; traverso (bar-
okkflauta) í bland við nútíma-
hljóðfæri í samvinnu við díleija- og
reverba-söfn hljóðmanns.
Hér var sérlega áleitin tilfinn-
ingin fyrir tónleik sem fræfils er á
langt þróunarferli að baki; við-
fangsefnið tekið í sundur, „abstra-
herað“ og sett saman aftur fyrir
eyrum viðstaddra.
Atonement var yfirskrift tón-
leikanna sem og heiti á samvinnu-
verkefni Páls Ragnars Pálssonar
og Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur á
mærum tónlistar, ljóðs og mynda.
Tilfinning höfunda við þann bræð-
ing var frelsun en heitið Atonem-
Bjart yfir Myrkum músíkdögum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Myrk sveifla Á upphafstónleikum hátíðarinnar „reis einleikari á fiðlu, Sigrún Eðvaldsdóttir, vel yfir jafningja í
stórkostlegri túlkun á fiðlukonsert Leifs Þórarinssonar“, skrifar rýnir í umfjöllun um Myrka músíkdaga.
ent gefur trúarlegri blæ, friðþæg-
ing. Svipmyndir birtust á tjaldi
jöfnum höndum meðan á flutningi
stóð, ýmist sviðsettar eða hvers-
dags en orkuðu því miður full-
handahófskenndar samhliða ann-
ars meitluðum tónvef og ljóði er
var vel flutt af Tui Hirv sópran.
Annar blær var á tónverkum
Brendans Faegres, „Transcending
Duality“ úr flokknum Three Aff-
ects. Áður hafði „Observing
youth“ seytlað fram í leiðslu í
myrkvuðum Norðurljósasalnum en
hér sló hljómsveitin í mikla rock ’n
roll-sveiflu hvar knéfiðlan var
sannarlega tekin á kné, spilað
djarft og snarpt samhliða seink-
uðum stafrænum innslögum tón-
skáldsins.
Kúbus-hópurinn, sem er að-
eins rúmlega árs gamall, bauð upp
á frumflutning á 21 nýrri tóna-
mínútu eftir íslensk tónskáld. Hin
yngri hrifu rýni fram yfir hin
(h)eldri með snöggum innslögum
er flutt voru á svalagangi Norður-
ljósa, í einni einingu, mínútu í
senn, berstrípuð og óvægin í anda
nútímans. Mínútan var miskunn-
arlaust slegin af af tímaverði, nýtt
ljós tendrað við hvert hljóðfæri,
slökkt á öðru og flutningurinn því
jafnvel innblásnari en ella, líkt og
lífsháskinn hefði girt hlutaðeig-
andi óvenju fast. Sjö mínútna
tónafbrigði Atla Heimis Sveins-
sonar undir lokin, með höfuðljós á
hverjum flytjanda í myrkvuðum
salnum, skapaði fráhrindandi
stemningu enda leiðist Atla, hinum
síunga uppreisnarsegg, ekki að
stuða og koma við okkur, þessa
tvífættu vitsmunalegu sem þrá
helst að taka allt sem gefið.
UR_ er vinnuheiti á óperu í
vinnslu hjá laustengdum félags-
skap er kannaði hljóð- og fram-
vindustrúktúra á opinni vinnu-
stofu. Hópurinn hóf störf á
Grænlandi við Diskóflóa, sótti inn-
blástur í ummerki lífsstíls okkar á
21. öld, bráðnun jökla og undan-
hald menningar. Vinnuskissum var
varpað á tjald. Á einni stóð
„Harmony: voices honour the cent-
ral being“. Á stundum hefur rýnir
heyrt það viðhorf, að ef tónskáld
eða tónlistarmaður tjáir sig í dúr
og moll þá er eins og viðkomandi
komi nakinn fram og allir tilbúnir
að rífa niður og gagnrýna, en ef
einum tón er haldið líkt og í
vinnusmiðjunni þá er það veg-
samað til hæstu hæða. Það verður
spennandi að fylgjast með fram-
vindunni.
Heimsósóminn
á myrkum tímum
Það er gömul saga og ný að
listir eru þefgjarnar á hvar krepp-
ir að í nútímanum. Heilt yfir mátti
greina áleitna gagnrýni á samtím-
ann og atferli mannsins. Þá var
áberandi hvernig listamennirnir
lögðu traust sitt á rýmið og verð-
andina fremur en form, því ef
form staðnar er leiðin greið yfir í
ritúal og loks dekadens, sem eru
reyndar mjög spennandi lendur út
af fyrir sig. Tónskáldin áttu ein-
mitt mörg það sameiginlegt að
setja spurningar við flæði, strúkt-
úr og form og hver væri styrkur
þess í undirdjúpunum gegnt yfir-
borðinu.
Í raftónlistarverki Camillu
Söderberg „Spa in Heaven“ birtist
rödd úr forneskjunni, yfirtónar og
dýrslegir rytmar leiða áheyrendur
um frumskóg hljóðanna. Sverrir
Guðjónsson nýtti röddina til hins
ýtrasta líkt og sjónhverfingamað-
ur; skrap-tónn seiðmannsins
framdi töfra frammi fyrir fólskum
lýðnum í veikri von um endurfundi
við ættflokk sinn. Þessi þáttur
bergmálaði nálgun Önnu Þorvalds
og félaga í óperustúdíóinu á heimi
á hverfanda hveli með einskonar
frumspekilegri nálgun: andi, and-
ardráttur, heilagur andi, andinn í
húsinu, atómið í rýminu.
Kammersveit Reykjavíkur sló
botninn í mótið líkt og áður, að
þessu sinni einungis búin strengja-
hljóðfærum. Tvö tónverk skáru sig
úr fyrir flutning og gjörvileik;
frumflutningur á „Alkuli“, konsert
fyrir kantele og strengjasveit eftir
Huga Guðmundsson í einum þætti,
og umritun á „Strengjakvartett nr.
2“ í fjórum þáttum eftir föður-
bróður Huga, Hafliða Hallgríms-
son. Einleikari á kantelehörpuna
var hin finnska Eva Alkula er
mætti með hvítlakkaða raftækni-
lega útgáfu, með innbyggðum
pikköpp, af þessu hljóðfæri er alla
jafna liggur lágt hljómur.
Blöndun kantelehörpu við
kammersveitina var áhugaverð.
Einleikur Alkula var sérlega fág-
aður og sannfærandi, í senn undir-
og meðleikur er á stundum
drukknaði í hljómasúpu strengja-
sveitarinnar sem virkaði heillandi
á rýni. Eftir hlé hófst flutningur á
útvíkkuðum hljómheimi strengja-
kvartetts Hafliða. Flestum inn-
vígðum er kunnugt um umritunar-
áráttu tónskáldsins, töktum ýmist
skeytt við milli tónflutninga eða
legið yfir stærri betrumbótum. Því
kom þessi tilfærsla milli tveggja
mismunandi hljóðfærahópa ekki á
óvart. Handbragð Hafliða var
óbrigðult sem fyrr. Þrátt fyrir
þéttari strengjasvelg og sviptingar
mátti greina taugahrúgu hins upp-
runalega strokkvartetts undir
niðri og allt um kring; ljóst meira
að segja þeim sem varla kunni skil
á upprunaverkinu.
Tónleikar Kammersveit-
arinnar á Myrkum músíkdögum
eru í raun seinna akkerið á þessari
merku listahátíð nútímtónlistar.
Fyrra akkerið er sem kunnugt er
Sinfóníuhljómsveit Íslands, sem
hefur hverja hátíð, en í ár voru
opnunartónleikarnir óvenju heil-
steyptir og á háu stigi. Þar reis
einleikari á fiðlu, Sigrún Eðvalds-
dóttir, vel yfir jafningja í stórkost-
legri túlkun á fiðlukonsert Leifs
Þórarinssonar, sem verður þó að
teljast, þegar öllu er á botninn
hvolft, klassískur innan um allt
avant-gardið.
»Hér var sérlegaáleitin tilfinningin
fyrir tónleik sem fræfils
er á langt þróunarferli
að baki; viðfangsefnið
tekið í sundur, „abstra-
herað“ og sett saman
aftur fyrir eyrum
viðstaddra.
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015
Danski listljósmyndarinn Pi Bartholdy heldur fyr-
irlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, í dag
þriðjudag klukkan 17. Fyrirlesturinn kallar hún „iList-
ljósmyndun Pi.“ Þar mun Bartholdy ræða fyrri verk sín
en einnig þau sem hún er að vinna að þessi misserin.
Bartholdy lauk námi við danska listljósmyndaskólann
Fatamorgana árið 2011 og úr mastersnámi við Escuela
de Fotografia Y Centro de Imagen í Madrid ári síðar.
Þetta er fjórði „Þriðjudagsfyrirlestur ársins“ og sem
fyrr fer hann fram í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi.
Aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verk-
menntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á
Akureyri. Meðal annarra fyrirlesara í vetur eru Margeir Dire Sigurðsson,
Elísabet Ásgrímsdóttir, Katrín Erna Gunnarsdóttir, María Rut Dýrfjörð,
Jón Páll Eyjólfsson og Guðmundur Heiðar Frímannsson.
Danskur listljósmyndari með fyrirlestur
Pi Bartholdy
Listaháskóli Íslands býður í dag,
þriðjudag, klukkan 10-18 til mál-
stofu um arkitektúr, iðnað og um-
hverfi í húsnæði hönnunar- og arki-
tektúrdeildar í Þverholti 11,
fyrirlestrasal A.
Meðal annars tekur þátt hópur
prófessora og nemenda í arkitektúr
í Sviss sem hafa undanfarið misseri
rannsakað Ísland með áherslu á að
skoða þær breyttu aðstæður í um-
hverfi og iðnaði sem einkenna sam-
tíma okkar. Meðal þeirra sem taka
til máls eru Kolbeinn Árnason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í
sjávarútvegi, Edward H. Huijbens,
forstöðumaður
Rannsókn-
armiðstöðvar
ferðamála á Ís-
landi, Sigrún
Birgisdóttir,
deildarforseti
hönnunar- og
arkitektúrdeildar
Listaháskóla Ís-
lands, Pétur
Thomsen ljósmyndari, Guðbjörg R.
Jóhannesdóttir, kennari við LHÍ og
umhverfisheimspekingur, og Ragna
Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Lands-
virkjunar.
Málstofa um arkitektúr og umhverfi
Kolbeinn Árnason
48
RAMMA
STÆRSTA OPNUNAR-
HELGI ALLRA TÍMA Á
ÍSLANDI!
E.F.I -MBL
BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND
2 VIKUR
Á TOPPNUM!
Spenna, hasar og ótrúlegar tæknibrellur í
frábærri ævintýramynd með stórleikurunum
Jeff Bridges og Julianne Moore
www.laugarasbio.isSími: 553-2075
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS
- bara lúxus