Morgunblaðið - 11.02.2015, Page 12

Morgunblaðið - 11.02.2015, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015 Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi og formaður umhverfis- og skipu- lagsráðs Reykjavíkur, segir það verða tekið fyrir á fundi ráðsins í dag hvaða framkvæmdir verða áfram á áætlun borgarinnar fyrir árið 2015 þegar kemur að stíga- og hjólastíga- gerð. Unnið sé eftir metnaðarfullri hjól- reiðaáætlun sem gerir ráð fyrir að tíu kílómetrar af hjólastígum séu lagðir ár hvert. Meðal þess sem hefur verið á framkvæmdaáætlun borgarinnar er að þrengja Grensásveg sunnan Miklubrautar úr fjórum akreinum í tvær og gera hjólastíga beggja vegna götunnar til að hægja á bíla- umferð, auka öryggi í umferðinni og lyfta undir hjólreiðar. Strætisvagnar geti vikið Upphaflega var gert ráð fyrir að umferð biði fyrir aftan strætisvagna á meðan farþegar væru afgreiddir en Stefán Agnar Finnsson, yfirverk- fræðingur á umhverfis- og skipu- lagssviði Reykjavíkurborgar, segir að eftir að ábending barst frá slökkviliði sé nú gert ráð fyrir að strætisvagnar geti vikið þannig, að umferð geti farið fram hjá vagninum á meðan hann er kyrrstæður. „Það kom ábending frá slökkvilið- inu vegna neyðaraksturs að Borgar- spítala og þá var það dregið til baka. Þeir gera ráð fyrir að strætó geti vikið upp á núverandi kant þannig að það sé frí umferð framhjá strætó á meðan hann er stopp,“ segir Stefán og bætir við að Grensásvegurinn sé oft ekinn af sjúkraflutningabílum samkvæmt þeim upplýsingum sem hann hefur fengið frá slökkviliðinu. „Neyðarmóttakan er á Borgar- spítalanum og þeir [slökkvilið höfuð- borgarsvæðisins] segjast oft nota Grensásveginn. Eins þegar þeir eru á leið í austurborgina frá Skógarhlíð þá velja þeir oft þessa leið: Bústaða- veg, Grensásveg, Miklubraut,“ segir Stefán. Fari svo að umhverfis- og skipu- lagsráð samþykki fjárveitingu til þrengingar Grensásvegar fer verkið í útboð. Stefán segir að ef allt gangi að óskum megi gera ráð fyrir að fyrstu hjólin fari um nýja hjólastíg- inn í haust. asg@mbl.is Hjólastígar á dagskrá í dag Morgunblaðið/Ómar Grensásvegur Áformað er að leggja hjólastíga við götuna. Áttu fullt af græjum sem liggja ótengdar? Leyfðu okkur að aðstoða! S: 444 9911 – hjalp@taeknisveitin.is – www.taeknisveitin.is Tengjum heimabíóið Setjum upp þráðlaust net Standsetjum nýju tölvuna Tengjum saman ólíkar græjur Sjónvarpsmerki í öll sjónvörpin Lagnavinna á heimilinu ...og margt, margt fleira! Hvað gerum við? TÆKNISVEITIN til þjónustu reiðubúin! Við komum til þín, veitum ráðgjöf, setjum tækin upp, gerum við, leggjum lagnir, tengjum tækin saman við önnur og fáum allt til að virka. Svo færðu kennslu líka ef þörf er á því. Við yfirferð á fjármálum sveitarfé- laga verður ekki annað séð en fjár- málin einkennist af stöðugleika og að þróunin sé jákvæð þegar á heildina er litið, segir meðal annars í inngangi skýrslu Eftirlitsnefndar með fjármál- um sveitarfélaga fyrir starfstímabilið janúar 2013 til september 2014. Í skýrslunni segir: „Veltufé frá rekstri er stöðugt en áframhaldandi stöðugleiki er forsenda þess að skuld- settum sveitarfélögum takist að greiða niður skuldir sínar. Þrátt fyrir góða stöðu á heildina eru mörg sveit- arfélög það skuldsett að fyrirséð er að nokkur ár þarf til að sjá hvernig þau ná að ráða við stöðuna. Mörg sveit- arfélög vinna enn eftir aðlögunar- áætlun en 11 sveitarfélög eru yfir 150% skuldaviðmiði við lok ársins 2013. Sveitarfélög eru samkvæmt lög- um bundin af aðlögunaráætluninni þar til viðmiðum laganna hefur verið náð.“ Fyrirbyggjandi aðgerðir Í skýrslunni er gerð grein fyrir starfsemi nefndarinnar og þar er einnig að finna yfirlit yfir þróun fjár- mála sveitarfélaga frá 2007 til 2013. Farið er yfir þróun fjármála sveitar- félaga, gerð grein fyrir störfum nefndarinnar, sérstökum aðgerðum og samningum við sveitarfélög og að- lögunaráætlunum. Hlutverk nefndar- innar er að fylgjast með fjármálum, þ.m.t. reikningsskilum og fjárhags- áætlunum, og bera saman við viðmið- anir samkvæmt sveitarstjórnarlögum og reglum settum samkvæmt þeim. Verkefni eftirlitsnefndar beinast fyrst og fremst að fyrirbyggjandi að- gerðum. Þeim sinnir nefndin með því að vekja athygli á tilteknum þáttum í rekstri og efnahag sveitarfélaga. Stöðugleiki í fjár- málum sveitarfélaga  Í lok árs 2013 voru 11 sveitarfélög yfir 150% skuldaviðmiði Oddur Helgason hjá ORG- ættfræðiþjónustunni hefur lokið við að skrá gögn, sem hann fékk frá Atla Steinarssyni blaðamanni um afkomendur vesturfara, og voru frumgögnin afhent Landsbókasafn- inu til varðveislu í gær. Atli safnaði upplýsingum um fólk af íslenskum ættum vestanhafs á árunum 1996 og 1997 og lét Odd síðan fá gögnin. „Þetta eru 13 möppur,“ segir Odd- ur. Fyrir skömmu fékk Oddur mikið ættfræðisafn frá Þorsteini Jóns- syni, útgefanda og ættfræðingi. Hann segir að það fari síðan að mestu á viðeigandi héraðs- skjalasöfn víða um land, þar sem verði farið yfir gögnin og þau borin saman við ættfræðigrunn Odds. „Við dreifum vinnunni um allt land,“ segir Oddur. Morgunblaðið/Ómar Ættfræðigögn koma og fara Vegurinn inn með Skorradalsvatni er stórhættulegur á hálfs annars kílómetra kafla, á milli Vatnshorns og Hvamms, að mati Valdimars Reynissonar, skógarvarðar á Vest- urlandi, sem býr í Hvammi. Mikil hjólför eru nú í lélegum ofaníburði og ástand vegarins versnar svo þegar þau frjósa. Valdimar segir að Vegagerðin hafi sett efni í nýtt yfirlag á kafl- ann í sumar. „Það er lélegt efni því vegurinn versnaði við viðgerðina en það tel ég að sé ekki eins og menn vilja hafa það,“ segir Valdimar. Hann segir að í þíðum í vetur verði vegurinn eitt leðjusvað. „Vatnið er að síga úr honum núna, það koma för í drulluna og svo er komin hálka í þetta. Hann er stór- hættulegur yfirferðar,“ segir Valdi- mar. Hann vekur athygli á því að þetta er eini vegurinn inn dalinn. Þar séu tvær fjölskyldur með fasta búsetu og önnur hjónin þurfi að fara daglega til vinnu úr dalnum. Þá sé starfsstöð Skógræktar ríkis- ins í Hvammi. Unnið sé að grisjun skóganna og efnið selt Elkem á Grundartanga. Einhvern veginn þurfi að koma því úr dalnum. Þá séu mörg hundruð sumarbústaðir þarna fyrir innan og fólk þurfi að komast í þá allt árið og iðnaðar- menn sem þar vinna. „Ef það kem- ur eitthvað fyrir hér inni í dalnum er ekki hlaupið að því að komast þangað með sjúkrabíl eða slökkvi- bíl,“ segir Valdirmar. Hann fékk í gær þau svör frá Vegagerðinni að sennilega yrði sendur hefill í næstu þíðu til að ryðja drullunni af veg- inum. Þangað til verði ástandið óbreytt. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Davíð Pétursson Óvegur Djúp för hafa myndast í slitlag vegarins og er hann illur yfirferðar. Ekki skánar ástandið þegar förin frjósa. Hættulegur vegur í Skorra- dal vegna lélegs efnis

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.