Morgunblaðið - 11.02.2015, Síða 31

Morgunblaðið - 11.02.2015, Síða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015 Uppfærsla Möguleikhúss-ins á Eldbarninu – Ham-faraleikriti fyrir börn ogfullorðna er gott dæmi um hvernig minningar, geymdar jafnt í rituðum heimildum og munn- mælum, skapa hlutum merkingu. Í upphafi sýningar sýnir unga stúlkan Sólveig Þorgrímsdóttir áhorfendum hraunmola sem tilheyrði því hrauni sem rann yfir æskuheimili langa- langa-langa-langa-langömmu henn- ar og nöfnu árið 1783 í Skaftár- eldum, en steinninn hefur takmark- aða þýðingu fyrir nútímastúlkuna. Stuttu síðar fer hún ásamt móður sinni í heimsókn á æskuslóðir for- móður sinnar þar sem Halldór gamli ábúandi í sveitinni segir henni sögu nöfnu hennar sem lifnar fyrir augum áhorfenda með þeim hætti að klukkutíma síðar sjá bæði leikhús- gestir og Sólveig nútímans hraun- molann með merkingarþrungnari augum. Sólveig nútímans setur sig bókstaflega í spor formóður sinnar, því Andrea Ösp Karlsdóttir leikur báðar Sólveigarnar. Áhorfendur fá að fylgjast með því hvernig litla stúlkan bregst við þegar veröld hennar umturnast vegna ógnvæn- legra náttúruhamfara. Jörð skelfur, það rignir dauðum fuglum þar sem askan í loftinu er baneitruð og hraunstraumur steypist ofan af há- lendinu. Ásamt móður sinni neyðist Sólveig til að flýja heimahagana og þær lenda á vergangi í sveitinni í leit að húsaskjóli og matarbita. Þótt sagan um Sólveigu sé skáld- uð af hendi Péturs Eggerz eru at- burðirnir í kringum hana raunveru- legir og sumar þær persónur sem bregður fyrir í verkinu voru til í raun og veru, s.s. eldklerkurinn Jón Steingrímsson sem skráði ítarlega frásögn af eldgosinu og afleiðingum þess. Eins og aðstandendur sýning- arinnar benda réttilega á virka hrakningar Sólveigar á köflum nán- ast fjarstæðukenndir fyrir íslensk börn í samtímanum, en þá er ágætt að minna sig á að aðstæðurnar voru raunverulegar á sínum tíma. Á stöku stað renna Sólveig samtímans og Sólveig fortíðar saman með áhrifa- ríkum hætti, eins og t.d. í eldmessu Jóns þar sem Sólveig setur spurn- ingarmerki við það að eldgosið sé leið guðs til að refsa mannfólkinu fyrir syndsamlegt líferni, enda skil- ur hún ekki í hverju synd hennar fel- ist í lífinu sem er nokkuð nútímaleg afstaða. Leikmynd og búningar Guðrúnar Øyahals eru stílhreinir og bjóða upp á einfaldar lausnir. Með aðeins átta trékassa í mismunandi stærðum búa leikararnir til ólíkar vistarverur, far- artæki og landslag, en umskiptin fara iðulega fram með afar látlaus- um hætti. Grunnbúningar Öldu og Péturs eru dökkir, en með því einu að skipta út einu höfuðfati eða setja á sig prestakraga og breyta lát- bragðinu tekst að draga upp skýrar persónur í fjölmennu persónugall- eríi verksins. Mest mæðir á Andreu í hlutverki Sólveiganna tveggja enda er hún á sviðinu alla sýninguna. Andrea býr yfir mikilli orku og gríð- arlegum sviðssjarma, en hún gefur mikið af sér til áhorfenda. Henni tekst einstaklega vel að miðla undr- un barnsins og sorg í erfiðum að- stæðum. Hljóðmynd Kristjáns Guð- jónssonar og lýsing Arnþórs Þórsteinssonar ýtir með áhrifamikl- um hætti undir ógn náttúrunnar og er reykur nýttur til áhrifaauka til að minna á þungt loftið samfara eldgos- inu. Sýningin fer hægt af stað, en vinn- ur jafnt og þétt á. Sigrún Valbergs- dóttir leikstjóri hefur næmt auga fyrir góðum sviðslausnum eins og sést m.a. vel í skemmtilegum út- færslum á ólíkum farartækjum. Eins og undirtitill verksins gefur til kynna er hér um að ræða sýningu fyrir jafnt börn sem fullorðna. Sjálf miða aðstandendur við að verkið sé fyrir börn níu ára og eldri, enda er innihaldið býsna drungalegt og dramatískt. En á sama tíma veitir sýningin kjörið tækifæri fyrir for- eldra til að ræða við börn sín um áhrif hamfara sem og aðstæður og kjör fólks fyrr á tímum. Möguleik- húsið á hrós skilið fyrir áhrifamikla og vandaða afmælissýningu á 25 ára starfsafmæli sínu. Ljósmynd/Geirix Orkumikil „Andrea [Ösp Karlsdóttir] býr yfir mikilli orku og gríðarlegum sviðssjarma, en hún gefur mikið af sér til áhorfenda. Henni tekst einstaklega vel að miðla undrun barnsins og sorg í erfiðum aðstæðum,“ segir m.a. í rýni. Tjarnarbíó Eldbarnið – Hamfaraleikrit fyrir börn og fullorðna bbbbn Eftir Pétur Eggerz. Sérlegur ráðgjafi við handritsgerð: Kristín Helga Gunnars- dóttir. Leikstjórn: Sigrún Valbergs- dóttir. Leikmynd og búningar: Guðrún Øyahals. Tónlist og hljóðmynd: Kristján Guðjónsson. Lýsing: Arnþór Þór- steinsson. Leikarar: Andrea Ösp Karls- dóttir, Alda Arnardóttir og Pétur Egg- erz. Önnur sýning Möguleikhússins í Tjarnarbíói 8. febrúar 2015. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Minningar skapa merkingu Duo Landon frumflytur verkið Já, sú var tíðin … fyrir tvær fiðlur eftir Báru Grímsdóttur á Háskólatónleikum í kapellu Háskóla Íslands í dag kl. 12.30. Á efnisskránni er einnig sónata eftir Sergei Prokofiev og Tíu myndir fyrir tvær fiðlur eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Duo Landon skipa fiðluleikararnir Hlíf Sigurjóns- dóttir og Martin Frewer. „Duo Landon er kennt við hinn þekkta fransk-bandaríska fiðlu- og bogasmið Christophe Landon, en þau leika bæði á fiðlu frá honum. Árið 2012 kom út geisladiskur dúósins, Íslensk fiðludúó, með verk- um eftir sex íslensk tónskáld. Þar af voru þrjú verkanna samin að beiðni Duo Landon. Hlaut sá diskur m.a. fimm stjörnur hjá tónlistargagnrýnanda Morgunblaðsins,“ segir í m.a. tilkynningu. Samkvæmt henni lýsir Bára eig- in verki með þessum orðum: „Við sjáum fyrir okkur tvær mannverur, glaðar og kátar, sveiflast um saman í dansi, kannski í pínulitlu samkomuhúsi eins og voru í sveitum landsins hér áður fyrr, úti á túni í kvöldsólinni, eða á síldarplani. En efinn og treginn eru líka til staðar. Þeim finnst lífið vera dans á rósum, það er alltaf hætta á að stinga sig á þyrnunum.“ Verkið var skrifað fyrir Duo Landon undir lok árins 2014. Hádegistónar Duo Landon  Nýtt verk eftir Báru Grímsdóttur frumflutt í dag Samspil Martin Frewer og Hlíf Sigurjónsdóttir skipa Duo Landon og hafa leikið saman síðustu ár. Breytingar hafa verið innleiddar á tónlistarverkefninu Made in Ice- land sem ætlað er að auka veg ís- lenskrar tónlistar í Bandaríkj- unum. Sjö safnplötur hafa verið gefnar út með lögum hljómsveita sem eru í eldlínunni á Íslandi og þeim dreift á 840 útvarpsstöðvar í Bandaríkjunum auk þess sem kynningarveislur á plötunum hafa verið haldnar árlega í Los Angel- es og til þeirra boðið lykilaðilum sem sjá um innkaup á tónlist í sjónvarp, kvikmyndir og auglýs- ingar. Breytingarnar í ár eru þær að ekki verður gefinn út geisladiskur heldur verður tónlistin sett á netið í formi spilunarlista, skv. tilkynn- ingu frá Útflutningsmiðstöð ís- lenskrar tónlistar, ÚTÓN. „Meiri kraftur verður settur í kynningu á samfélagsmiðlum og hefur ÚTÓN stofnað til samstarfs við sérfræð- inga á því sviði í Bandaríkjunum. Af þeim sem verða með lög á list- anum verða síðan valin tvö atriði til þess að fara til Bandaríkjanna og spila á kynningartónleikum í apríl næstkomandi. Á þessa kynn- ingartónleika verður boðið vel völdum aðilum sem flykkjast til Kaliforníuríkis til þess að sækja Coachella-hátíðina,“ segir í til- kynningu. Þátttökuskilyrði fyrir tónlistarmenn og hljómsveitir sem vilja taka þátt í verkefninu má finna á vef ÚTÓN, uton.is. Umsóknarfrestur er til mið- nættis 20. febrúar. Breytingar gerðar á Made in Iceland Um liðna helgi var opnuð í sam- tímaliststofnuninni Institut für moderne Kunst Nürnberg í Þýskalandi, í Galeriehaus Defet, sýning á málverkum eftir Helga Þorgils Friðjónsson. Sýningin nefnist Stækkunargler á nál- arauga – Mit einer Lupe durch ein Nadelöhr blicken og er Dan Ree- der sýningarstjóri. „Heimur drauma og trúar,“ seg- ir í fyrirsögn umsagnar Bernds Zachows um sýningu Helga í blaðinu Nürnberger Nachrichten. Hann vísar til orða Halldórs Lax- ness um að Íslendingar hafi óþreytandi áhuga á hinu skrítna, ólíkindalega og óútskýranlega og bætir við að verk listamannsins sýni hvernig nýta megi þennan áhuga með skapandi hætti. Rýn- irinn segir að myndir Helga beri vitni skopskyni og kaldhæðni og stundum standi áhorfandinn furðu lostinn fyrir framan sköpunarverk málarans þegar hann hefur gefið ímyndunaraflinu lausan tauminn. Að sögn Zachows eru myndir Helga Þorgils „í besta skilningi ævintýraleg blanda af raunveru- leika og ímyndun, af samtímanum og hinu liðna“. Helgi Þorgils tekur á næstunni þátt í tveimur sýningum á Ítalíu. Morgunblaðið/Golli Listamaðurinn Á sýningu Helga Þorgils Friðjónssonar í samtímasafn- inu í Nürnberg gefur að líta málverk sem hann hefur unnið á síðustu árum. „Ævintýraleg blanda“ á sýningu Helga Þorgils Lína langsokkur (Stóra sviðið) Lau 14/2 kl. 13:00 Sun 1/3 kl. 13:00 Sun 22/3 kl. 13:00 Sun 15/2 kl. 13:00 Sun 8/3 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00 Lau 21/2 kl. 13:00 Lau 14/3 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00 Sun 22/2 kl. 13:00 Sun 15/3 kl. 13:00 Lau 28/2 kl. 13:00 Táknmálst. Lau 21/3 kl. 13:00 Táknmálstúlkuð sýning 28.febrúar kl 13 Billy Elliot (Stóra sviðið) Fös 6/3 kl. 19:00 frums. Sun 15/3 kl. 19:00 6.k. Fim 26/3 kl. 19:00 aukas. Lau 7/3 kl. 19:00 2 k. Þri 17/3 kl. 19:00 aukas. Fös 27/3 kl. 19:00 aukas. Sun 8/3 kl. 19:00 3.k. Mið 18/3 kl. 19:00 7.k. Sun 29/3 kl. 19:00 10.k Þri 10/3 kl. 19:00 aukas. Fim 19/3 kl. 19:00 8.k. Mið 8/4 kl. 19:00 11.k Mið 11/3 kl. 19:00 4.k. Fös 20/3 kl. 19:00 aukas. Fim 9/4 kl. 19:00 12.k Fim 12/3 kl. 19:00 5.k. Sun 22/3 kl. 19:00 9.k Lau 11/4 kl. 19:00 aukas. Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki Dúkkuheimili (Stóra sviðið) Sun 15/2 kl. 20:00 Sun 22/2 kl. 20:00 Síðustu sýningar Kenneth Máni (Litla sviðið) Fös 13/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Lau 7/3 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00 Lau 28/2 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 Fös 6/3 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00 Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni Öldin okkar (Nýja sviðið) Lau 14/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 17:00 Lau 28/2 kl. 20:00 5 stjörnu skemmtun að mati gagnrýnanda Beint í æð (Stóra sviðið) Fös 13/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00 Lau 14/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00 Lau 28/2 kl. 20:00 Lau 21/3 kl. 20:00 Sprenghlægilegur farsi Ekki hætta að anda (Litla sviðið) Mið 11/2 kl. 20:00 aukas. Sun 15/2 kl. 20:00 11.k Sun 22/2 kl. 20:00 Fim 12/2 kl. 20:00 10.k Mið 18/2 kl. 20:00 12.k Fim 26/2 kl. 20:00 Lau 14/2 kl. 20:00 Aukas. Fim 19/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00 Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur Taugar - Íslenski dansflokkurinn (Nýja sviðið) Fim 12/2 kl. 20:00 2.k Sun 22/2 kl. 20:00 4.k. Sun 15/2 kl. 20:00 3.k. Fim 26/2 kl. 20:00 5.k. Tvö nýstárleg og óhefðbundin dansverk Beint í æð! –★★★★ , S.J. F.bl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.