Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015
15% afsláttur
Sími: 528 8800
drangey.is
Smáralind
Stofnsett 1934
Töskur
Hanskar
Seðlaveski
Ferðatöskur
Tölvutöskur
Belti
Skart og skartgripaskrín
Góðar vörur
Sanngjarnt verð
Persónuleg þjónusta
Kíktu inn á drangey.is
Leðurlíkistöskur
Gott úrval – margir litir
Kr. 10.500/ Nú 8.500
úrlega bara ellefu ára gamall Íslend-
ingur svo ég þurfti að læra öll lögin,“
segir Jógvan og vísar þar til þess að
ellefu ár séu liðin frá því hann flutt-
ist hingað til lands. Þær Sigga og
Guðrún segja að ungi maðurinn sé
eldsnöggur að læra og tónvís með
eindæmum.
Með þeim þremur spila hljóð-
færaleikarar en þremenningarnir
annast útsetningu laganna. „En við
erum ekki bara að spila og syngja,
það er það skemmtilega við þetta
prógramm,“ segir Sigga. „Við segjum
sögur á milli laga, komum með fróð-
leik um sum lögin og segjum stund-
um frá þeim minningum sem við eig-
um um lögin. Við gerum grín hvert að
öðru og það er mikið hlegið!“ „Já, það
má alveg,“ segir Jógvan. „Fólk hlær
með okkur og helst að okkur líka. Það
er náttúrlega best en það er einhvers
konar „kemistrí“ á milli okkar
þriggja þannig að við skemmtum
okkur mjög vel saman,“ segir Guðrún
og undir það taka hin tvö. „Það sem
við þrjú höfum er að okkur þykir
mjög gaman að skemmta. Að mínu
mati er það ekki nóg að standa uppi á
sviði og kunna bara að syngja. Hinn
helmingurinn er að þú verður að
skemmta. Íslendingar eru bara þann-
ig. Og það er fátt leiðinlegra en að
sitja bara og hlusta og hlusta og
hlusta ef engin víxlverkun er. Þannig
að við erum að gera það sem við erum
best í,“ segir Jógvan.
Óhætt að syngja með
Já, það er sannarlega misjafnt
hvernig fólk passar saman og í tilviki
þeirra Guðrúnar, Jógvans og Siggu
smellpassa þau saman og segja þau
það kristallast á sviðinu. Sögurnar
sem þau segja fá að flæða frjálslega,
enda alvanir skemmtikraftar á ferð.
„Undirtitill tónleikanna er sem sagt
„Lögin sem allir elska“ því þetta eru
lög sem svo margir þekkja og það er
svo skemmtilegt því fólk getur al-
gjörlega sungið með ef það vill,“ seg-
ir Sigga. Lögin sem flutt eru á þess-
ari kvöldstund eru mörgum
hjartfólgin og jafnvel sést hrynja
einstaka tár af hvarmi áheyrenda.
Minningarnar eiga það til að skjót-
ast fram og það getur verið gott. Þó
svo að Jógvan eigi ekki minningar
um lögin sem ná langt aftur þá þykir
stelpunum mjög gaman að upplifa
lögin í gegnum hann. „Af því að hann
er að syngja þetta og heyra í fyrsta
sinn og hann segir: „Vá, hvað þetta
er flott!“ Og kannski eitthvað sem
okkur finnst nánast vera í blóðinu og
erum hættar að spá í hvort það sé
eitthvað æðislegt. Þá verðum við
fyrir hughrifum í gegnum hann,“
segir Guðrún.
Nokkur dæmi eru nefnd, þar á
meðal lagið Dagný eftir Sigfús Hall-
dórsson. „Það er bara eitt flottasta
lag sem ég hef heyrt og æðislegt að
fá að syngja það,“ segir Jógvan.
Hlustað á Óskalög sjúklinga
Í spjalli okkar fjögurra skipta
viðmælendur mínir nokkuð oft yfir í
söng og er bæði gaman að fá tón-
dæmi og að heyra hversu samstillt
þau eru. Rétt eins og þau hugsi á
sama hraða og sannarlega í sömu
tóntegund. Eitt tóndæmið er úr lag-
inu „Kveiktu ljós“ en það var flutt af
blönduðum kvartett frá Siglufirði.
„Þetta er erlent lag en textinn er
eftir Hafliða Guðmundsson. Tvær
konur og tveir karlar sungu lagið og
Malín Brand
malin@mbl.is
Fyrir um þremur árumákváðu Sigga, eins og Sig-ríður Beinteinsdóttir eroftast kölluð, Guðrún og
Jógvan að setja saman tónleika-
dagskrá sem samanstendur af eldri
lögum sem hljómuðu á heimilum
landsmanna og Ríkisútvarpið miðl-
aði. Tónlist sem þær Guðrún og
Sigga muna eftir frá barnæsku en
eru aftur á móti flest ný í eyrum
Færeyingsins Jógvans.
Gamlar sálir á ýmsum aldri
„Við Sigga vorum að tala um
sameiginlegan áhuga okkar á þess-
um gömlu lögum,“ segir Guðrún um
tildrög samstarfsins. „Þetta eru lög
sem við elskuðum þegar við vorum
litlar,“ segir Sigga og Guðrún skýtur
inn í að þær séu svo gamlar sálir.
Þess vegna höfði tónlistin svo mjög
til þeirra. „Jógvan er líka svona
gömul sál, þó hann sé svona ungur,“
segir Guðrún og ungi maðurinn hlær
því hann hefur oft fengið að heyra að
hann sé „gömul sál“. „Hugmyndin
með tónleikaprógramminu var að
nota það á þeim dögum sem ekki er
mikið að gera hjá söngvurum. Til
dæmis um miðja viku, þá gætum við
farið eitthvað og spilað og sungið,“
segir Jógvan. Þau hafa aðallega ver-
ið í Salnum í Kópavogi en einnig
flakkað töluvert um landið. Næsti
áfangastaður er einmitt Akureyri og
verða þau með tónleika í Hofi þann
7. mars. „Það hefur alltaf selst upp
um leið í Salnum og þess vegna höf-
um við haldið áfram,“ segir Guðrún.
Jógvan segir að í upphafi hafi
hann þurft að leggja töluvert á sig til
að læra öll þessi lög. „Ég er nátt-
Prúðbúnir sprellandi söng-
fuglar með svipaðan húmor
Gera má ráð fyrir að flestir söngvarar á Íslandi viti hver af öðrum en það er ekki þar með sagt að þeir hafi
unnið saman og hvað þá að þeir hreinlega smelli saman eins og flís við rass! Sú var einmitt raunin þegar þau
Guðrún Gunnarsdóttir, Jógvan Hansen og Sigríður Beinteinsdóttir fóru að vinna saman. Þau skemmta sér
konunglega við að rifja upp gömlu góðu lögin fyrir áheyrendum og njóta þess heiðurs að fá að flytja þau.
Kvöldstund Þau útsetja lögin sjálf, syngja og grípa í hljóðfæri ef sá gállinn
er á þeim. Gömlu góðu lögin flytja þau bæði af virðingu og gleði.
Nú nálgast þeir óðum dagarnir
skemmtilegu, bolludagur, sprengidag-
ur og öskudagur, og þá er um að gera
að huga að undirbúningi.
Núna um helgina býður Borgar-
bókasafn í samstarfi við Heimilis-
iðnaðarfélag Íslands upp á tvær
föndursmiðjur í gerð öskupoka og
bolluvanda á tveimur stöðum, í Menn-
ingarhúsinu í Gerðubergi í Breiðholti
dag kl. 14-16, og á morgun sunnudag í
Menningarhúsinu í Grófinni í aðal-
safninu í Tryggvagötu kl. 15-17.
Krakkar á öllum aldri eru velkomnir
í föndursmiðjurnar og um að gera að
taka foreldrana með, nú eða afa og
ömmu og eiga góða samverustund.
Öskupoka- og bolluvandagerðin er við
allra hæfi, þetta verður auðvelt og
skemmtilegt og fer fram undir leið-
sögn sérfróðra.
Allt efni verður á staðnum og að-
gangur er ókeypis. Gullið tækifæri til
að búa til fagran vönd til að flengja
svo foreldrana með eða aðra að
morgni bolludags og hrópa hátt
„bolla, bolla!“ og fá jafnmargar bollur
að launum síðar um daginn. Og ekki
er nú síður gaman að laumast til að
hengja öskupoka aftan á bak ein-
hvers, án þess að viðkomandi verði
þess var, og fylgjast með viðkomandi
spígspora grunlausan um að eitthvað
hangi aftan á honum.
Öskupokar og bolluvendir
Föndursmiðjur
um helgina
Gaman Gamall og góður siður er að
laumast til að hengja öskupoka á fólk.
Samhjálp félagasamtök hafa starfað
að góðgerðarmálum og hjálparstafi í
rúm fjörutíu ár með góðum árangri
og staðið vaktina fyrir þá aðila sem
minna mega sín og hafa átt við
áfengis- og vímaefnavanda að stríða.
Höfuðstöðvar Samhjálpar hafa verið
fluttar í nýtt og glæsilegt húsnæði að
Hlíðasmára 14 í Kópavogi.
Um 100 manns er tryggð nætur-
gisting hjá Samhjálp á hverri nóttu
allan ársins hring en á vegum sam-
takanna eru rekin ýmis úrræði, með-
ferðaheimilið Hlaðgerðarkot, Gisti-
skýlið við Lindargötu fyrir
útigangsmenn, eftirmeðferðar- og
áfangaheimilin Brú og Spor, stuðn-
ingsheimili að Miklubraut og Kaffi-
stofa Samhjálpar í Borgartúni en þar
er boðið upp á ókeypis morgunkaffi,
meðlæti og heita máltíð í hádeginu.
Um 180 manns koma þar hvern dag.
En allt kostar þetta og þess vegna
opnar Samhjálp markað í dag milli kl.
13 og 16 í Ármúla 11 í Reykjavík.
Markaðurinn er fjáröflun fyrir starf
Samhjálpar og þar verður tekið á
móti vörum alla virka daga frá kl. 11-
18. Á opnunarhátíðinni í dag verða
ýmsar uppákomur og allir velkomnir.
Opnunarhátíð og gleði hjá Samhjálp í dag
Um 100 manns er tryggð nætur-
gisting hjá Samhjálp hverja nótt
Til hjálpar Samhjálp hugar að þeim sem minna mega sín í þjóðfélaginu.