Morgunblaðið - 14.02.2015, Side 12

Morgunblaðið - 14.02.2015, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015 Jón Þór Ólason, lektor við laga- deild Háskóla Ís- lands, telur dóm- inn hafa ótvírætt fordæmisgildi. „Það er mikil- vægt að hafa í huga að allir dómar sem reyna með einhverjum hætti á umboðs- svikaákvæðið kunna að vera mikil- vægt fordæmi. Í umboðssvikaákvæð- inu er að finna mjög sveigjanlega verknaðarlýsingu sem nær betur en önnur ákvæði hegningarlaga yfir það oft flókna viðskiptaferli sem liggur að baki efnahagsbrotum. Það er merkilegt hvað sagt er um at- hafnaskyldu stjórnenda bankans með hliðsjón af til að mynda um- boðssvikaákvæðinu. Sigurður Ein- arsson er t.a.m. í raun dæmdur á grundvelli athafnaleysis,“ segir Jón Þór. Horft til fjártjónshættu „Annað sem er merkilegt er grein- ing á því hver er aðalmaður í broti og hver er hlutdeildarmaður í broti. Síð- an er beiting tilslökunarreglunnar, þ.e. sú lögfræðilega aðferðafræði að sakfella á grundvelli verulegrar fjár- tjónshættu, ávallt athygliverð frá refsiréttarlegu sjónarhorni. Það hafa mjög fáir dómar gengið um mark- aðsmisnotkun. Þar af leiðandi hlýtur niðurstaða Hæstaréttar varðandi túlkun á markaðsmisnotkunar- ákvæðinu að vera fordæmisgefandi að þessu leyti,“ segir Jón Þór. Ótvírætt fordæmis- gildi dóms  Lektor bendir á umboðssvikaákvæði BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Arnar Þór Jónsson, lektor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík, telur að- spurður að dómurinn í Kaupþings- málinu hafi ótvírætt fordæmisgildi. „Ég held að það sé enginn vafi á því. Málið er gríðarlega vel unnið af hálfu Hæstaréttar. Rétturinn hefur plægt í gegnum frumgögn málsins og byggir niðurstöðuna á mati á þeirri mynd sem þar birtist. Hæstiréttur hefur verkað þetta mál alveg ofan í kjölinn og velt við hverjum steini. Ég tel ljóst að við getum leyft okkur að draga þá ályktun að málið muni að sjálfsögðu hafa mikið vægi ef horft er til fram- tíðar.“ – Hvers vegna hefur málið mikið fordæmisgildi? „Í fyrsta lagi varðar þetta mjög mikla hagsmuni og brotin teljast því með samsvarandi hætti sérlega alvar- leg. Í öðru lagi er dómurinn sérlega vandaður og vel ígrundaður, svo sem ég nefndi áðan. Í þriðja lagi má ekki vanmeta þá staðreynd að hér hefur þetta stóra mál verið leitt til efnislegr- ar niðurstöðu. Ég vil skýra þetta síð- asta atriði örlítið nánar. Dómsforsend- urnar greina glögglega hvernig þess hefur verið freistað af hálfu ákærðu að leita allra ráða til að standa í vegi fyrir því að leyst verði efnislega úr þeim brotum sem þeim var gefið að sök að hafa framið. Út frá sjónarhóli ákærðu er það vissulega skiljanlegt og rétt- arríkið þarf vissulega að gæta þess að sakaðir menn fái haldið uppi réttmæt- um vörnum,“ segir Arnar Þór. Standi undir meginverkefninu Hann heldur áfram: „Að þessu sögðu skiptir ekki minna máli fyrir hagsmuni réttarríkisins að réttar- kerfið geti staðið undir því megin- verkefni sem því er ætlað, þ.e. að dómstólar leysi efnislega úr lagaleg- um ágreiningi þannig að bundinn sé endi á þrætuna. Ef dómstólar standa ekki undir þessu hlutverki þá getur það valdið margháttuðum skaða. Við getum horft margar aldir aftur í tím- ann þessu til stað- festingar. Nefna má Njálssögu til dæmis. Megin- gagnrýni höfund- ar Njálu á lögin og réttarkerfi þess tíma er að þau nái ekki utan um stærstu mál samtímans, sem fyrir vikið koðna niður í karp um tæknileg smáatriði. Dómur Hæstaréttar [í fyrradag] varðar með sanni eitt stærsta málið sem komið hefur upp í kjölfar banka- hrunsins. Það er því mjög mikilvægt að fengist hafi efnisleg niðurstaða í málið. Það skiptir máli fyrir réttar- kerfið í heild. Þetta hefur verið þol- raun fyrir íslenska réttarkerfið sem ég tel að það hafi staðist. Að lokum vil ég bæta því við að ég tel að Hæstiréttur Íslands hafi með dómi sínum í gær lyft spegli að ásjónu lögmannsstéttarinnar og ég tel að lögmenn geti ekki vikið sér undan því að horfa vel og lengi í þann spegil í þeim tilgangi að svara því gagnvart sjálfum sér og öðrum fyrir hvað þeir standa og hvað hugtakið ,,góðir lögmannshættir“ felur í reynd í sér,“ segir Arnar Þór. Jókst eftir Baugsmálið Hrafn Bragason, fyrrverandi hæstaréttardómari, telur verjendur sakborninga í hrunmálum hafa geng- ið langt í málsvörn sinni. Sú fram- ganga hafi færst í vöxt eftir að Baugsmálið komst í hámæli. „Mér finnst sem eftir hrun hafi jafnvel bestu lögmenn, sem hafa alla virðingu manns, gengið ansi langt í sínum störfum fyrir menn sem hafa verið hafðir fyrir sök í þessum hruns- málum,“ segir Hrafn. Rifjaði Hrafn þá upp að þegar hann var dómari í Hæstarétti hafi Haf- skipsmálið verið í algleymingi. Þá hafi borið á þeirri skoðun meðal lögmanna að lögfræðingar í málinu hafi gengið langt. Slík umræða hafi aftur komið upp í tengslum við Baugsmálið. „Eftir hrunið og upp úr þessu Baugsmáli hefur þetta orðið algeng- ara – og ég byggi þetta á engu nema tilfinningu – að menn hafi gengið dá- lítið langt í þessum stóru málum,“ segir Hrafn og nefnir tilraunir til að fá málum frestað, ellegar málsástæð- ur fyrir frávísunarkröfum. Hann telur aðspurður að slík fram- ganga lögmanna sé ekki til fram- dráttar fyrir þjóðfélagið. „Framganga af þessum toga er ekki gagnleg í hinu stóra samhengi. Ef lögmenn fara almennt að koma fram eins og upplýsingafulltrúar – og þetta fer að verða föst rútína fyrir þá sem er verið að verja – að þá held ég að gagnvart almenningi sé þetta of- urlítið erfitt. Hverju á almenningur sem er ekki inni í málum að trúa? Margir gera engan mun á lögmönn- um og dómurum. Maður sér líka á skoðanakönnunum að tortryggni gætir gagnvart dómstólunum, sem ég held að sé engin ástæða til. Ég hef aldrei séð það gerast fyrir félaga mína [í dómarastétt] að þeir séu ekki að leggja sig fram fyrir dómstólana og komast að réttri niðurstöðu. Ég á því bágt með að átta mig á þessum viðhorfum og hvers vegna fólk virðist ekki treysta dómstólum. Traustið á þá virðist á niðurleið, samkvæmt skoðanakönnunum,“ segir Hrafn. Megi aldrei villa fyrir um Skúli Magnússon, héraðsdómari og formaður Dómarafélags Íslands, segir félagið og Lögmannafélag Ís- lands hafa fjallað um ýmis atriði sem lúta að störfum verjenda undanfarin ár. „Það hefur komið fram gagnrýni í röðum lögmanna á málsmeðferð fyrir dómstólum. Dómarar taka þessa gagnrýni alvarlega. Þótt skipuðum verjanda beri að sjálfsögðu að gæta hagsmuna skjól- stæðingsins til hins ýtrasta má það aldrei verða til þess að lögmaður taki þátt í að villa um fyrir dómstól- um, eða að tefja fyrir greiðri máls- meðferð. Það er ein af skyldum lög- manna að stuðla að greiðri og góðri málsmeðferð, meðal annars í saka- málum. Það að tefja fyrir dómstól- um við að leysa efnislega úr málum samrýmist ekki góðum lögmanns- háttum. Ég get ekki lagt mat á það hvort um það var að ræða í þessu máli [Kaupþingsmálinu]. En auðvit- að lá fyrir í því máli að tveir lögmenn voru sektaðir með vísan til þess að þeir hefðu tafið fyrir meðferð máls- ins,“ segir Skúli. Lögmenn horfist í augu við sjálfa sig  Lektor í lögfræði við HR telur dóm Hæstaréttar í Kaupþingsmálinu kalla á sjálfskoðun lögmanna  Fyrrverandi hæstaréttardómari segir Baugsmálið hafa markað þáttaskil í framgöngu lögmanna Mál rekin með mögulega sömu vísanir í lagaákvæði* Markaðsmisnotkun (m) og umboðssvik (u) * Lausleg samantekt, þarf ekki að vera tæmandi. BK-44 mál (Glitnir) Imon og Azalea (Landsb.) Aurum-málið (Glitnir) Mál IngunnarWernersdóttur (Milestone) Kaupréttarsamningur Landsbanka Íslands Markaðsmisnotkunarmál Kaupþings Stím-málið (Glitnir) Chesterfield-málKaupþings(svonefntCLN-mál) Markaðsmisnotkunarmál Landsbankans (var klofið frá Imon og Azalea) Spron/Exista-málið Sakfelling Sakfelling og sýknað að hluta Sýknudómur í héraði Sýknudómur í héraði Sýknudómur í héraði Verður flutt fyrir héraðsdómi í apríl Í málsmeðferð í héraði Í málsmeðferð í héraði Sakfelling og sýknað að hluta Í málsmeðferð í héraði Í áfrýjun Í áfrýjun Í áfrýjun Í áfrýjun Í áfrýjun Í áfrýjun m & u m & u u u u m & u u u m & u u Arnar Þór Jónsson Hrafn Bragason Dómur í Al-Thani málinu Jón Þór Ólason 12 TA K TI K /4 33 1/ fe b 15 Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ég er mjög ánægð með dóminn og er afar stolt yfir því hvað Ísland hef- ur gert. Ísland er eina landið sem hefur dregið „bankstera“ til ábyrgð- ar og látið dæma þá,“ sagði Eva Joly, þingmaður á Evrópuþinginu og fv. ráðgjafi sérstaks saksóknara, í síma- viðtali frá París í gærkvöldi. „Þetta er fordæmi fyrir aðrar þjóðir og dæmi um það sem hvorki Bandaríkjamenn né Bretar hafa gert. Þeir hafa ekki farið inn í banka og rannsakað þá. Í Bandaríkjunum voru lagðar gríðarháar sektir á banka en hins vegar látið ógert að rannsaka hverjir bæru þar persónu- lega ábyrgð,“ segir Joly. Líkindi með Barclays banka „Al Thani-málið er dæmigert fyrir framgöngu banka … Það er athygl- isvert að forystumenn Kaupþings skyldu segja umheiminum að Al Thani hefði áhuga á að kaupa hlut í bankanum. Við vitum nú að það var ekki satt,“ segir Joly og rifjar upp fléttuna í þessum viðskiptum. „Ég hefði viljað sjá sambærilega rannsókn á bresku bönkunum. Það má til dæmis draga líkindi með þessu máli og fram- göngu Barclays- banka.“ Spurð um það sjónarmið sem viðrað er í grein hér fyrir ofan, að reynt hafi verið að hafa áhrif á dómara í Al Thani-málinu segist Joly hafa varað við þessu í sjónvarpsviðtali á Íslandi skömmu eftir efnahagshrunið. „Þessir menn eru mjög valdamikl- ir og nota almannatengla til að hafa áhrif á almenningsálitið. Það góða við þróun mála á Íslandi er að dóms- kerfið hefur getað fylgt málum til enda. Það er mjög gott fyrir lýðræð- ið á Íslandi.“ Spurð út í þau ummæli Ólafs Þór Haukssonar, sérstaks saksóknara, að fjárþörf hamli embættinu við lokaúrvinnslu mála segir Joly að Ís- lendingar hafi hafið rannsókn á erf- iðum tímum sem var svo mikil að umfangi að ekki séu dæmi um slíkt í Frakklandi. „Ef stjórnvöld skera á framlögin, þrátt fyrir góðan árang- ur, þýðir það að þau vilja taka sér stöðu með bankamönnum. Ég hvet stjórnvöld til að auka framlögin.“ „Mjög gott fyrir lýðræðið á Íslandi“  Eva Joly telur dóminn mikilvægan Eva Joly Skúli Magnússon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.