Morgunblaðið - 14.02.2015, Síða 22

Morgunblaðið - 14.02.2015, Síða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár                                    !  ! !"" " # " !"# $# !% &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 !% !" ! !!% " %  !% ! $ %   !%# !$ !$ " $ $#  ! $" %"" ! ! Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Viðræður eru í gangi við fjársterka erlenda fjárfesta um kaup á 95% hlut slitabús Glitnis í Íslandsbanka að sögn Steinunnar Guðbjartsdóttur, formanns slitastjórnarinnar. Ekki liggi fyrir skuld- bindandi tilboð og því ótímabært að greina nánar frá málinu. Fullyrt var í DV í gær að skrifað hefði verið undir viljayfirlýsingu í síðustu viku þar sem fjárfestar frá Mið-Austur- löndum skuldbundu sig til að kaupa hlutinn. Steinunn vildi ekki staðfesta að svo væri og sagði að ótímabært væri að tjá sig um þetta núna. „Það er ekki fyrr en við verðum komin með skuld- bindandi tilboð sem ástæða er til að tjá sig um þessar viðræður. Ef hins vegar þær leiða til samkomulags munum við ekki hika við að upplýsa kröfuhafa, stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila um það,“ sagði Steinunn. Viðræður um kaup á hlut Glitnis í Íslandsbanka ● Fátt virðist réttlæta miklar hækkanir á álverði miðað við núverandi efnahags- umhverfi, að því er fram kemur í nýrri greiningu frá IFS. Aukin framleiðsla við- haldi lækkunarþrýstingi á álverð enn um sinn. Spáir IFS því að álverð verði á bilinu 1.775-1.900 dollarar tonnið á fyrsta fjórðungi þessa árs. Spá svipuðu álverði STUTTAR FRÉTTIR ... BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Engar breytingar hafa verið gerðar á kröfuhafaskrá í þrotabú Icebank (SPB) þrátt fyrir að Morgan Stanley hafi haft milligöngu um tugmilljarða viðskipti með kröfur í hinn fallna banka, eins og greint var frá í Við- skiptaMogganum hinn 29. janúar síðastliðinn. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að hluti þeirra krafna sem boðnar voru í skiptum fyrir kröfurnar á SPB hafi verið í eigu Eignasafns Seðlabanka Íslands (ESÍ). Í samtali við Morgunblaðið segir Tómas Jónsson, formaður slit- astjórnar SPB, að engar tilkynning- ar hafi borist honum vegna viðskipta á grundvelli tilboðs frá Morgan Stanley og því sé engin vissa fyrir því að viðskipti hafi átt sér stað. Slit- astjórnin heldur utan um breytingar þær sem verða á kröfuhafaskránni þegar kröfur eru framseldar nýjum eigendum. „Ég get staðfest það að okkur hafa ekki borist neinar stað- festar upplýsingar um að viðskipti með kröfur í þrotabúið hafi átt sér stað. Af þeim sökum get ég ekki full- yrt að nein viðskipti hafi verið með kröfur í búið.“ Á þessari stundu eru skráðir kröfuhafar rétt rúmlega 80 talsins. Mikil viðskipti Fyrrnefnd viðskipti byggðu á til- boði sem Morgan Stanley gerði í kröfur þrotabúsins og var tilboðið háð því að safnast myndu að lág- marki kröfur að fjárhæð 55 milljarð- ar króna að nafnvirði. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var því lágmarki náð. Ekki er ljóst hvert heildarraunvirði viðskiptanna er, en slitastjórn SPB hefur sent kröfuhöf- um sínum bréf vegna sáttaboðs sem hún hefur gert ESÍ vegna ágrein- ings sem milli aðila hefur risið og ViðskiptaMogginn fjallaði um á fimmtudag. Í því tilboði er gert ráð fyrir að endurheimtur verði að jafn- aði 28,5% og samkvæmt því nemur raunvirði hinna keyptu krafna að lágmarki 15,7 milljörðum króna. Fari mál á versta veg fyrir þrotabúið og tapi það máli sem höfðað hefur verið fyrir héraðsdómi vegna fyrr- nefnds ágreinings gæti virði krafn- anna við uppgjör legið nærri 11,7 milljörðum króna. ESÍ tjáir sig ekki Eins og fyrr segir herma áreið- anlegar heimildir Morgunblaðsins að hluti þeirra krafna á Kaupþing sem Morgan Stanley notaði til greiðslu fyrir kröfunum á SPB hafi verið í eigu Eignasafns Seðlabanka Íslands. Þegar Haukur C. Bene- diktsson, framkvæmdastjóri ESÍ, var spurður út í hvað skýrði þá stað- reynd sagðist hann ekki tjá sig um málið og bar við trúnaði milli ESÍ og þeirra aðila sem félagið ætti í við- skiptum við á hverjum tíma. „Að svo stöddu mun ég ekki tjá mig um þessi mál,“ sagði Haukur. Viðurkenna ekki kaup á 55 milljarða kröfum á Icebank Morgunblaðið/Ómar Þrotabú Eignasafn Seðlabanka Íslands neitar að tjá sig um viðskipti sem átt hafa sér stað með kröfur í þrotabú Icebank. Margþættur ágreiningur » Slitastjórn Icebank hefur ekki viðurkennt allar kröfur ESÍ á hendur þrotabúinu. » Slitastjórnin telur sig eiga kröfu á hendur ESÍ. » Sáttaboð hafa gengið á víxl milli aðila frá því í byrjun febrúar. » Ef ekki verður leyst úr ágrein- ingi slitastjórnar og ESÍ fyrir 15. apríl verður deilan útkljáð fyrir dómstólum.  Skrá yfir kröfuhafa hefur ekkert breyst þrátt fyrir tugmilljarða viðskipti Wow air tilkynnti í gær kaup á tveimur Airbus A321-211-farþega- þotum sem afhentar verða um miðj- an mars. Þær voru upphaflega keyptar af rússnesku flugfélagi sem féll frá kaupunum vegna lélegs ár- ferðis í efnahagsmálum Rússlands. Stefnt hafði verið að afhendingu vél- anna til fyrirtækisins undir lok síð- asta árs. Vegna breyttra aðstæðna í rekstri rússneska félagsins voru vél- arnar aldrei afhentar kaupanda en þess í stað stuðlaði flugvélaframleið- andinn, með milligöngu evrópsks fjármögnunarfyrirtækis, að því að Wow air gæti gengið inn í kaup- samninginn sem upphaflega hafði verið gerður um vélarnar. Svanhvít Friðriksdóttir, upplýs- ingafulltrúi flugfélagsins, segir að stefnt hafi verið að kaupum af þessu tagi allt frá því að félagið fékk flug- rekstrarleyfi. „Við erum mjög ánægð með niðurstöðuna enda ekki hægt að finna hentugri flugvélar fyr- ir Norður-Ameríkuflugið okkar heldur en nýju Airbus A321-vélarn- ar.“ Vélar af þessari tegund eru fram- leiddar til að flytja allt að 220 far- þega en í vélum Wow air eru aðeins 200 sæti. Breyta þurfti vélunum til þess að þær hentuðu í hið langa flug yfir Atlantshafið og var það gert með aukaeldsneytistönkum. Rýmið sem þeir taka hefur ekki áhrif á nýting- armöguleika farangursrýmis þar sem vélar Wow air taka tæplega 10% færri farþegar en vélarnar geta bor- ið við fulla nýtingu. Fyrstu ferðir vélanna verða til Boston 27. mars næstkomandi en svo bætast við ferðir til Washington frá og með 8. maí. Morgunblaðið/Ómar Flug Skúli Mogensen segir draum rætast með kaupum á flugvélunum. Þotur Wow áttu að fara til Rússlands  Aukaeldsneytis- tönkum verður komið fyrir um borð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.