Morgunblaðið - 14.02.2015, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 14.02.2015, Qupperneq 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015 ✝ Stefán EinarBöðvarsson fæddist í Reykja- vík 14. janúar 1958. Hann varð bráðkvaddur 25. janúar 2015 á Gran Canaria. Stefán var sonur hjónanna Böðvars Sigvaldasonar frá Brekkulæk í Mið- firði, f. 28.1. 1921, d. 26.1. 2007, og Ásu Guð- laugar Stefánsdóttur, Mýrum, Hrútafirði, f. 7.7. 1925. Bróðir Stefáns er Böðvar Sigvaldi, f. 1.12. 1964, kvæntur Ólöfu Þor- steinsdóttur, f. 16.10. 1970. Þeirra börn eru Ása Berglind, f. 13.2. 1997, Inga Rósa, f. 5.9. 1998, og Stefán Páll, f. 29.8. 2002. Stefán ólst upp á Mýrum í Hrútafirði, tók landspróf frá Reykjaskóla 1974. Lærði vélvirkjun í Reykjavík og tók sveinspróf í þeirri iðn 1980. Vann í nokkur ár á Véla- verkstæðinu á Laugarbakka. Hóf búskap á Mýrum um 1980. Var odd- viti Ytri-Torfu- staðahrepps 1994-1998 og sveitarstjórnarmaður í Húna- þingi vestra frá 2002. Var auk þess ýmist stjórnar- maður eða endurskoðandi hjá fjölmörgum fyrirtækjum og félagasamtökum. Útför Stefáns fer fram frá Melstaðarkirkju í dag, 14. febr- úar 2015, kl. 14. Jarðsett verð- ur í heimagrafreit á Mýrum. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn.) Í dag verður Stefán á Mýrum lagður til hinstu hvílu við hlið föð- ur síns í heimagrafreitnum á Mýrum. Góður vinur minn og fé- lagi hefur verið kallaður til æðri starfa langt um aldur fram. Stebbi eins og hann var oftast kallaður var bóndi á Mýrum í fé- lagi við foreldra sína og bróður og fór það vel úr hendi eins og annað sem hann tók sér fyrir hendur. Hann unni jörð sinni og var áhugasamur um að rækta, byggja og bæta. Hann átti einnig jörðina E-Svertingsstaði, sem er næsta jörð við Mýrar og þar sem tölu- verður tími fór í milliferðir þang- að um heyskapinn tók hann þá ákvörðun að byggja upp veg þangað stystu leið yfir hálsinn setti sér ákveðið tímamarkmið í því efni. Þetta var ekkert áhlaupaverk því langt var að keyra og mikla möl þurfti í veg- inn. Síðastliðið sumar bauð hann mér í ökuferð til að sýna mér framkvæmdina og einnig hvar hann ætlaði að fara að grafa skurði á hálsinum til að geta nýtt landið betur til beitar. Gaman var að hlusta á Stebba þegar hann var fullur af stolti og ánægju að segja frá ýmsu sem fyrir augu bar í þessari ferð. Þó að þessi fram- kvæmd væri stór reyndist hún Stebba ekkert erfið þar sem hann var afburðagóður véla- og við- gerðamaður og átti mikið af góð- um tækjum sem hann var smám saman alltaf að bæta við. Hann var mikill félags- málamaður og var oddviti Y- Torfustaðahrepps þegar samein- ing hreppanna 7 varð 1998 og Húnaþing-vestra varð til og síðan þá hefur hann verið einn af burð- arásum sveitarstjórnarinnar enda þaulkunnugur öllum mála- flokkum þar og fljótur að átta sig á hinum flóknustu tölum enda var hann eftirsóttur sem skoðunar- maður reikninga og starfaði sem slíkur m.a. hjá Kaupfélagi V-Húnvetninga og Veiðifélagi Miðfirðinga. Hann vann ötullega í sveitarstjórn að því áhugamáli sínu að lögð yrði hitaveita um Miðfjörð, Hrútafjörð og Víðidal og stefnir nú í að hafist verði handa í því mikla verkefni næsta vor. Þá var hann í stjórn Veiði- félags Arnarvatnsheiðar og Tví- dægru frá stofnun þess félags ár- ið 1997 til dauðadags. Alls staðar gat hann sér gott orð fyrir ár- vekni, framsýni og hógværð. Stebbi hafði unun af því að starfa að afréttarmálum og unn- um við mikið saman í þeim mála- flokk. Margar ferðirnar fórum við saman fram á heiðar, ýmist á bíl- um, dráttarvélum, fjór-sexhjólum eða á vélsleðum í hin ýmsu verk- efni eða þá bara okkur til gamans. Einnig unnum við alltaf saman við að skipuleggja og vinna við – ásamt fleirum – vegagerð á heið- arvegum fram í Vesturárdal og Núpsdal. Þá eru ófá símtölin milli okkar í gegnum tíðina þar sem málin voru rædd og var gott að leita ráða hjá honum. Að leiðar- lokum vil ég þakka Stebba fyrir trausta vináttu, allar samveru- stundir okkar og samvinnu, ég sakna hans sárt. Skarð hans hér í samfélaginu er vandfyllt en gott er að eiga góðar minningar um hann sem ylja. Aðstandendum öll- um sendum við Inga innilegar samúðarkveðjur. Rafn Benediktsson. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Já, þannig er nú einmitt það, þegar maður fer yfir myndir horf- inna daga læðast fram ótal marg- ar skemmtilegar sögur af Stefáni vini mínum sem genginn er á vit feðra sinna allt of snemma. Ég var það heppinn að fá að kynnast Stebba ungur og fá að þvælast með honum og pabba bókstaflega út um allt sem var mikill og skemmtilegur skóli. Það var alveg sama hvort það var innan sveitar eða uppi á heiðum og jöklum þá hafði Stebbi alltaf góðar og skemmtilegar sögur að segja. Það lýsir Stefáni einmitt svo vel, hon- um var alveg sama hvort með í för voru krakkar eða gamlir karlar, hann gerði aldrei mannamun. All- ir voru jafnir í hans augum. Í seinni tíð unnum við mikið saman í sveitarstjórnarmálum þar sem Stebbi var á heimavelli og var hreint ótrúlegt hvað hann var inni í öllum málum og alltaf hægt að leita til hans með ráð- leggingar. Já, það er sárt að kveðja svona snillinga langt fyrir aldur fram og á þessum krossgöt- um er mér efst í huga góður dagur sem við áttum saman nokkrir í göngum fyrir tveimur árum. Þar var Stebbi hrókur alls fagnaðar og sagði okkur sögur og skrítlur langt fram á nótt. Sérstaklega fannst mér fyndið þegar hann sagði okkur frá ferðalagi sem hann fór til Siglufjarðar og upp á Siglufjarðarskarð, þá spurði einhver: „Hvað fórstu hátt upp í skarðið?“ Án þess að blikna var Stebbi búinn að svara: „Alveg upp í þoku“ svo glotti hann út í annað eins og honum einum var lagið. Ég á eftir að sakna þess að sjá hann ekki koma vestan úr rima í göngunum með góða sögu í far- teskinu og bros á vör. Það er einna helst eins og vel þekkt kennileiti hafi verið þurrkað út við fráfall hans. Ég er alveg klár á því að ég er ríkari eftir að hafa kynnst Stebba. Góðir kostir hans, svo sem að geta alltaf séð björtu hlið- arnar á málum, alveg sama þó það væri djúpt á þeim, er kostur sem allir mættu taka sér til fyrir- myndar. Stefáns verður sárt saknað en til að taka sér hann til fyrirmyndar þá hefur maður ógrynni af góðum minningum til að ylja sér við og jafnvel skella upp úr yfir. Ég og fjölskylda mín vottum aðstandendum hans okkar dýpstu samúð. Með honum er genginn mikill kappi sem snerti marga með vináttu og góðmennsku. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Guð blessi minningu Stefáns á Mýrum. Þórarinn Óli Rafnsson. Stefáni á Mýrum kynntist ég á vordögum árið 2010 þegar við vorum í framboði saman hér í sveitarfélaginu. Eftirtektarverð- ur og merkilegur maður að mjög mörgu leyti. Hann var einn af fá- gætum karakterum sem einfald- lega lita lífið skærari litum og maður kann virkilega vel að meta að kynnast og verða samferða. Rólegur, ráðagóður, traustur og gegnheill í öllu. Glettinn og skemmtilegur húmoristi. Við urðum strax góðir félagar sem var mér mikils virði. Til hans leitaði ég með allt pólitíska ves- enið meðan ég var í því og hann var alltaf tilbúinn að hlusta og veita ráðleggingar. Hann ráðlagði mér snemma eftir að við fórum að vinna saman að oft væri nú gott að sofa á hlutunum, ekki rjúka af stað og gera einhverja vitleysu í óðagoti. Betra að segja minna, gæta orða sinna. Margoft síðan hafa þessi orð hans líka komið upp í huga minn þegar mikið gengur á og hafa reynst mér vel. Honum hefur sennilega þótt ég fullfljót- fær og kappsöm stundum og ráð- lagði mér það sem hafði reynst honum vel sjálfum enda hafði hann áratugalanga reynslu af bæði hreppsnefndar- og sveitar- stjórnarstörfum. Hann gerði ein- mitt stundum grín að því að hann hefði nú verið byrjaður að vinna í þessu á svipuðum tíma og ég fæddist – svo hann þekkti vel til í þessum málum. Stefán var klár karl. Einstak- lega töluglöggur og fljótur að átta sig á hlutunum. Ég var mjög ánægð með að hann var áfram í meirihluta í sveitarstjórn eftir seinustu kosningar og sagði hon- um það líka margoft. Hann hafði það sem þurfti í þessum störfum. Réttsýnn, ákveðinn, passlega þrjóskur og sanngjarn. Hann tal- aði aldrei illa um nokkurn mann, orðvar og hélt sinni skoðun á hlut- unum. Heiðarlegur og stóð við það sem hann sagði. Við spjölluðum oft saman og um allt annað en það sem viðkom sveitarstjórnarsetunni. Hann var minnugur og sagði mér ótal sögur af fólki og atburðum. Gjarnan sögur af Mið- og Hrútfirðingum og rakti ættir þeirra flestra. Bændastörfin, daglegt líf, sauð- burð og heyskap og hvernig þetta allt gengi nú. Við ræddum oft um ferðalög og hvert væri nú næsta ferðalag planað enda hafði hann og við bæði mjög gaman af að ferðast. Töluðum um tónlist og oft minntist hann á Rolling Stones en þar hafði hann vinninginn, var bú- inn að fara á tónleika með þeim, eitthvað sem yrði sennilega ekki toppað. Mér fannst það alltaf virðing- arvert og til eftirbreytni hjá hon- um að fylgja því sem hann hafði áhuga á að framkvæma, ferðast og lifa. Hann hefði án efa viljað gera mun meira af því en hann vann mikið bæði fyrir samfélagið hérna og var svo bundinn af búinu sem bændur oftast eru. Nýtti samt þau tækifæri sem komu inni á milli vinnutarna og skrapp í frí – gjarnan til útlanda. Hugsaði út fyrir kassann. Fleiri ferðalög verða ekki farin núna. Við erum óþægilega minnt á hversu stutt er í raun milli lífs og dauða. Eftir lifa minningar um Stefán og þau góðu gildi sem ein- kenndu hann í þessu lífi. Eigin- leika og viðhorf sem við sem eftir lifum ættum sannarlega að taka okkur til fyrirmyndar og eftir- breytni. Þorbjörg Inga Ásbjarnardóttir. Í dag kveðjum við góðan og tryggan vin okkar, Stefán Böðv- arsson, bónda og sveitarstjórnar- mann, sem kvaddi þennan heim svo skyndilega á Kanarí. Það eru orðin allmörg ár síðan við kynnt- umst þessum harðduglega heið- ursmanni sem vildi allt fyrir alla gera og gott var að heimsækja. Fyrir það viljum við þakka af heil- um hug. Stefán var mikill maður á velli svo eftir honum var tekið, ræðinn að eðlisfari, hafði gaman af að tala um landsins gagn og nauðsynjar og var fróður um marga hluti. Hann hafði fastmót- aðar skoðanir á ýmsum málum, var fylginn sér ef á þurfti að halda en þó var alltaf stutt í húmorinn. Hann átti auðvelt með að segja glettnar sögur af sjálfum sér og öðrum sem kættu marga sem á hann hlýddu, bæði voru þetta sög- ur úr sveitinni og ferðalögum hans erlendis, sem hann gerði töluvert af. Hann hafði gaman af að kynnast menningu og mannlífi annarra þjóða. Við félagarnir minnumst margra góðra stunda sem við áttum saman með Stefáni á heiðum uppi við gæsaveiðar og lifa lengi í minningu okkar. Nú þegar við kveðjum þennan öðling með þökk og virðingu fyrir alla þá velvild og vinsemd sem hann sýndi okkur vottum við Ásu móð- ur hans, Böðvari Sigvalda og öðru venslafólki okkar dýpstu samúð með von um að hann haldi áfram að ferðast og njóta, en á öðru til- verustigi. Blessuð sé minning hans. F.h. Landsliðsfélaga, Thulin Johansen. Ekki hefði okkur grunað þegar Stefán Einar Böðvarsson vinur okkar og samstarfsmaður kvaddi á leið í langþráð frí að kveðjan yrði sú hinsta. Með fráfalli hans er höggvið stórt skarð í samfélag- ið í Húnaþingi vestra. Í litlum samfélögum eins og okkar hefur hver íbúi sitt hlut- verk þótt misstór séu. Við verðum öll að hjálpast að við að knýja gangverk samfélagsins. Hlutverk Stefáns var viðamikið og honum hafði um langt skeið verið treyst fyrir ýmsum ábyrgðarstöðum. Um árabil hafði hann meðal ann- ars látið til sín taka sem sveitar- stjórnarmaður með sín sterku gildi að leiðarljósi. Stálheiðarleg- ur, bóngóður og vinnusamur. Stefán var afburðagóður sveit- arstjórnarmaður. Hann gaf sér alltaf góðan tíma til að setja sig inn í mál, nálgaðist þau með já- kvæðu hugarfari sama hversu snúin þau voru, staðráðinn í að finna bestu lausnina. Alltaf hafði hann hag okkar litla samfélags í fyrsta sæti, gerði aldrei manna- mun og heyrðist aldrei hallmæla nokkrum manni. Fyrir það naut hann virðingar samferðamanna sinna, sama hvar í flokki þeir stóðu. Fyrir okkur sem minni reynslu höfðum af sveitarstjórnarmálum var hann óþrjótandi þekkingar- og reynslubrunnur. Ekki bara um pólitíkina sjálfa heldur líka um mannlegar hliðar þess að vera í pólitík. Að leyfa fólki að halda virðingu sinni, koma vel fram, virða skoðanir og vinna saman. Í því var Stefán afar flinkur, heill og sannur í orðum sínum og gerð- um. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Þótt missir samfélagsins við fráfall þessa merka manns sé mikill er missir fjölskyldunnar þó mestur. Við biðjum góðan Guð að styrkja Ásu, móður Stefáns, í sorginni. Mannkostir Stefáns komu vel í ljós þegar hann talaði um móður sína, ávallt af mikilli elsku og virðingu. Böðvari Sig- valda, bróður Stefáns, og fjöl- skyldu sendum við innilegar sam- úðarkveðjur sem og skyldmennum öllum. Við kveðjum höfðingjann og öðlinginn Stefán Einar Böðvars- son með söknuði en um leið kærri þökk fyrir samfylgdina og vinátt- una. Blessuð sé minning hans. F.h. sveitarstjórnar Húna- þings vestra, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, oddviti. Stefán Einar Böðvarsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Hjartkær sonur minn, bróðir, frændi, mágur og barnabarn, KRISTJÁN GUÐNI JÓNSSON frá Hrísdal og Vetleifsholti, lést á heimili sínu í Svíþjóð miðvikudaginn 19. nóvember. Útförin fór fram föstudaginn 6. febrúar í Svíþjóð. . Matthildur Monika Kristjánsdóttir, Snjólaug Kristín Lundgren, Roger E. L. Lundgren, Eðvarð Jónsson, Anja Carina Kristoffersen, Theo Edvard Kristoffersen, Ide Marie Kristoffersen, Jóna Björk Jónsdóttir, Öystein Helvik Höiland, Guðrún Jónsdóttir. Einlægar þakkir, kæru ættingjar og vinir, fyrir auðsýnda virðingu og samhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra ÞORSTEINS EGILSSONAR, fyrrum aðalendurskoðanda Landsbanka Íslands, Fróðengi 9, áður til heimilis í Stóragerði 28, Reykjavík. Þökkum einnig af heilhug starfsfólki deildar 11-G við Hringbraut og sérstakar þakkir fá þau Helga Hansdóttir og Árni Tómas Ragnarsson læknar fyrir einstaka umönnun, tryggð og vináttu í gegnum árin. . S. Alda Jónsdóttir, Helga Þorsteinsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Egill Þorsteinsson, Béatrice Burlin, Perla Ösp Ásgeirsdóttir, Sverrir Arnar Baldursson, Þorsteinn Ýmir Ásgeirsson, Álfheiður Sigmarsdóttir, Agathe Egilsdóttir Burlin, Stella Egilsdóttir Burlin, Áróra Glóð og Aþena Ósk Sverrisdætur. Ástkær maður minn, faðir og bróðir, TORFI Þ. ÓLAFSSON, andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 11. febrúar. Jarðarförin mun fara fram frá Neskirkju fimmtudaginn 19. febrúar kl. 13. Fyrir hönd aðstandenda, . Guðrún Elín Kristinsdóttir, Sæbjörg Torfason, Ingólfur R. Torfason, Kristinn G. Torfason, Elísabet Ingólfsdóttir og fjölskyldur þeirra. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA GÍSLADÓTTIR sjúkraliði frá Patreksfirði, Hólabergi 84, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju laugardaginn 14. febrúar kl. 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. . Lovísa Birgisdóttir, Hanna Ingibjörg Birgisdóttir, Guðmundur Jónasson, Pétur Birgisson, María Aðalbjarnardóttir, Gísli Kristján Birgisson, Elín Eva Lúðvíksdóttir, Ágústa Hera Birgisdóttir, Hlynur Freyr Birgisson, Stefanía Arnardóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.