Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 43
árum. Fatimusjóðurinn fagnar því
10 ára afmæli í dag.
Brostu út í annað
,,Ég ákvað að stofna Fatimusjóð-
inn þegar ég fékk verðlaun Hag-
þenkis 2005 fyrir bókina Arabíu-
konur. Ég lagði til 350 þúsund
krónur og svo komu félagar mínir í
Vináttu- og menningarfélagi Mið-
Austurlanda snarlega til aðstoðar.
Þetta var sem sagt árið 2005, um
svipað leyti og menn voru að stofna
góðgerðasjóði með 500 milljóna
króna stofnframlagi. Sumir brostu
því út í annað yfir hinum örlitla
Fatimusjóði,“ segir Jóhanna er hún
rifjar þetta upp. „En málið er að
mér datt aldrei í hug að við eða
aðrir gætu bjargað heiminum í eitt
skipti fyrir öll. Það er í mesta lagi
hægt að gera sér vonir um að
maður geti hjálpað og lagt góðum
málum lið. Fatimusjóðurinn hefur
komið að ýmsum brýnum verk-
efnum á þessum 10 árum og ég hef
góðar vonir um að margir leggist
nú á eitt í þágu sýrlensku flótta-
barnanna. Sjálf hef ég búið í Sýr-
landi bróðurpartinn af þremur vetr-
um, og það var mjög eftirtektarvert
að finna hvað fjölskyldur voru
metnaðarsamar þegar kom að
menntun barna þeirra.“
Fatimusjóðurinn haslaði sér völl
á Facebook í vikunni og þar verður
hægt að fylgjast með söfnuninni
fyrir sýrlensku flóttabörnin. Reikn-
ingsnúmer Fatimusjóðs er 512-04-
250461 og kennitala 680808-0580.
Æviferill
Jóhanna er fædd og uppalin í
Reykjavík, dóttir Elísabetar Engil-
ráðar Ísleifsdóttur (1910-2001) og
Kristjóns Kristjónssonar (1908-
1984). Systkini hennar eru Bragi, f.
1938, og Valgerður, f. 1945. Jó-
hanna giftist Jökli Jakobssyni rit-
höfundi árið 1957 og eignuðust þau
þrjú börn, Elísabetu, Illuga og
Hrafn. Jóhanna og Jökull skildu
1969. Dóttir Jóhönnu og Höskuldar
Skarphéðinssonar skipherra er
Kolbrá. Jóhanna á ellefu barnabörn
og tíu barnabarnabörn.
Jóhanna gekk í Landakotsskóla
og Kvennaskólann og lauk stúd-
entsprófi utanskóla frá MR árið
1959. Hún stundaði nám í guðfræði
við HÍ 1962-64 og lauk prófi í hebr-
esku 1962. Hún lagði stund á
arabískunám í Kaíró 1995-96, í
Damaskus 1998-2000, í Jemen 2001
og aftur í Sýrlandi 2002-3.
Jóhanna hefur lengst af stundað
blaðamennsku og ritstörf, en auk
þess unnið við smábarnakennslu,
síldarsöltun, afgreiðslu, blaðaútburð
og sitthvað fleira. Hún var blaða-
maður á Vikunni 1958-59, Tímanum
1962-66 og Morgunblaðinu 1967-95.
Þá hefur hún haldið fjölda nám-
skeiða, einkum um arabísku og
arabískan menningarheim.
Hún varð fyrsti formaður Félags
einstæðra foreldra 1968 og gegndi
embættinu um árabil. Þá stofnaði
hún Vináttu- og menningarfélag
Mið-Austurlanda 2004 með það að
markmiði að auka skilning og þekk-
ingu á löndum sem voru flestum Ís-
lendingum framandi. Í því skyni
hefur hún skipulagt meira en 40
hópferðir til Mið-Austurlanda og
Afríku, og hafa á sjötta hundrað Ís-
lendingar notið leiðsagnar hennar
um fjarlæg lönd.
Jóhanna hefur ritað fjölmargar
bækur, allar götur síðan skáldsagan
Ást á rauðu ljósi kom út árið 1960.
Hún hefur gefið út ferðabækur,
skáldsögur, ljóð, endurminningar
og bækur um mannlíf og menningu
í Mið-Austurlöndum. Nýjasta bók
hennar, Svarthvítir dagar, kom út á
síðasta ári og hlaut 1.-2. verðlaun
Félags íslenskra bóksala sem besta
endurminningabókin 2014.
Nú þegar Jóhanna fagnar 75 ára
afmælinu og lítur yfir farinn veg
kveðst hún lengstum hafa verið
mikið afmælisbarn. ,,Þegar ég var
stelpa átti ég oft erfitt með að
hemja eftirvæninguna þegar af-
mælisdagurinn nálgaðist. Síðustu
ár hefur verið minna um hátíð-
arhöld vegna veikinda. Og nú
hlakka ég kannski meira til afmælis
Fatimusjóðsins. Það myndi kæta
mig mjög ef hann fengi sem flestar
gjafir á þessum tímamótum.“
Úr frændgarði Jóhönnu Kristjónsdóttur
Jóhanna
Kristjónsdóttir
Helga Steinsdóttir
húsfr. í Keldudal og gistihúshaldari á Sauðárkróki
Jónas Halldórsson
bóndi í Keldudal í Skagafirði,
flutti til Kanada
Engilráð Valgerður Jónasdóttir
húsfr. á Sauðárkr. og verkakona
Ísleifur Gíslason
kaupmaður og skáld á
Sauðárkróki
Elísabet Engilráð
Ísleifsdóttir
aðalgjaldk. í Rvík
Elsa Dóróthea Jónsdóttir
húsfreyja í Ráðagerði
Gísli Halldórsson
sjómaður og bóndi í Ráðagerði
á Vatnsleysuströnd
Kristín Þorsteinsdóttir
húsfr. á Torfastöðum í
Fljótshlíð
Bergsteinn Vigfússon
bóndi og hreppstj. á
Torfastöðum
Sigríður Bergsteinsdóttir
ljósmóðir og húsfr. í Útey
Kristjón Ásmundsson
bóndi í Útey í Laugardal
Kristjón Kristjónsson
framkvæmdastjóri í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Neðra-
Apavatni
Ásmundur Eiríksson
bóndi á Neðra-Apavatni í Grímsnesi
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015
Laugardagur
85 ára
Björg H. Sigurðardóttir
Halyna Nyshchun
Margrét Guðmundsdóttir
Sigríður J. Valdimarsdóttir
Sigþrúður Steffensen
Þorbjörg Gísladóttir
80 ára
Alice Pauline G. Berg
Erla Hannesdóttir
Trausti Þorsteinsson
75 ára
Kristín Jónsdóttir
Sæberg Guðlaugsson
Sævar Sigurpálsson
70 ára
Erna Anine Thorstensen
Guðfinna Sigurbjörnsdóttir
Karl Kristmundsson
Ketill Ágústsson
60 ára
Guðbjartur Jónsson
Jóna Aðalheiður
Aðólfsdóttir
Jón Ásgrímur Ásgeirsson
Kristjana Jónsdóttir
Ólafur Ólafsson
Ryszard Krzeminski
Sigrún Óskarsdóttir
50 ára
Ármann Jónasson
Brynjólfur Jónsson
Dóra Kristjánsdóttir
Haraldur Magnússon
Helga Guðrún Sverrisdóttir
Hjördís Árnadóttir
Hugi Einarsson
Inga Dóra Björgvinsdóttir
Jens Pétur Sigurðsson
Jón Ingi Valdimarsson
Kristín Hreiðarsdóttir
Kristján Birgir Skaftason
Leonora Raustiené
May Margrét Zapanta
Sigurbjörg Kristjánsdóttir
Þorsteinn Jóhannesson
Össur Emil Friðgeirsson
40 ára
Davíð Þórðarson
Guðmundur Vignir
Þórðarson
Halla Margrét Ólafsdóttir
Hjörtur Hólm Hermannsson
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Karólína Baldvinsdóttir
Kristjana Skúladóttir
Óskar Eiðsson
Róbert Jóhannsson
Sigrún Sif Jóelsdóttir
30 ára
Amor Joy Magno Pepito
Anna Margrét Björnsdóttir
Árni Bergmann Þórðarson
Björk Harðardóttir
Daníel Hrafn Kristleifsson
Daníel Þór Hjaltason
Guðmundur Örn Jónsson
Hildur Einarsdóttir
Jónas Freyr Guðbrandsson
Kristín Steinunnardóttir
Kristján Óli Sigurðsson
Sunnudagur
90 ára
Feodosija Jacentjuka
85 ára
Jóhanna I. Birnir
80 ára
Benedikt Vilhjálmsson
Óskar Karlsson
Vigdís Elín Ágústsdóttir
70 ára
Baldur M. Geirmundsson
Einar A. Kristinsson
Guðmundur H. Haraldsson
Guðmundur Lárusson
Ingibjörg Norberg
Kristín Thea Pétursdóttir
60 ára
Bjarni Þór Guðmundsson
Gerður Guðmundsdóttir
Guðmundur Freyr
Gunnlaugsson
Guðrún Jónsdóttir
Halldór Björgvinsson
Ragnheiður Ólafsdóttir
Valdimar Heimir Lárusson
Viðar Ólafsson
50 ára
Ásta Pálsdóttir
Bára Magnúsdóttir
Elísa Baldursdóttir
Enreque Ares Pontillas
Gregory Mark Eiden
Gunnar R Kristinsson
Halldór Þorsteinn
Þórólfsson
Hannibal Sigurvinsson
Hulda Ingibjörg
Rafnarsdóttir
Inga Bára Þórðardóttir
Magnús Kristinsson
Monika Dagný Karlsdóttir
Sólveig Sól Einarsdóttir
Stefán Erlingur Helgason
Zdzislaw Domszy
40 ára
Aðalsteinn Martin
Grétarsson
Agnar Þór Á. Breiðfjörð
Ari Sigfússon
Ásgeir Þór Arnar Muller
Bergljót Borg
Birna Jóhanna
Sævarsdóttir
Eyþór Guðmundsson
Ingibjörg Alma
Benjamínsdóttir
Jón Helgason
Ólafur Ágúst Haraldsson
Sigurður Rúnar Steinsson
Sladjana Valdís Radinovic
Sunna Björg Sigfríðardóttir
Sveinborg Lovísa
Hauksdóttir
Valentina Ansano Ycot
30 ára
Andrea Dan Árnadóttir
Margrét Kristín Pálsdóttir
Rakel Kristinsdóttir
Rakel Ósk Hafsteinsdóttir
Sigríður Heiða
Sigurðardóttir
Sævar Markús Óskarsson
Vigdís Elfa Jónsdóttir
Víkingur Ari Víkingsson
Til hamingju með daginn
Guðmundur Sæmundsson hefur varið
doktorsrannsókn sína við Íþrótta-,
tómstunda- og þroskaþjálfadeild
Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Heiti rannsóknarinnar er Það er næsta
víst… Hvað einkennir einkum umfjöll-
un um íþróttir í íslenskum bók-
menntum og fjölmiðlum?, eftir frægu
orðatiltæki höfðingjans í hópi ís-
lenskra íþróttafréttamanna, Bjarna
Felixsonar.
Markmið doktorsritgerðarinnar er
að draga saman þekkingu um umfjöll-
unina um íþróttir í íslenskum bók-
menntum og fjölmiðlum. Beitt er ýms-
um afbrigðum orðræðu- og texta-
greiningar. Í niðurstöðum rannsókn-
arinnar kemur meðal annars fram að
gera megi ráð fyrir því að innan ís-
lenskra íþrótta ríki svipuð sjálflægni
og einstaklingshyggja og annars stað-
ar á Vesturlöndum. Þessa sjáist þó lítt
merki í íslenskum nútímasagnaskáld-
skap, þar ráði ríkjum rómantísk sið-
ferðisafstaða til íþrótta í anda fornrita,
ungmennafélags-
hugsjóna og ól-
ympíuhugsjónar. Í
íslenskri íþrótta-
orðræðu fjöl-
miðlanna ber hins
vegar mest á þjóð-
ernisstolti og af-
rekshrifningu.
Þöggun eða veru-
lega skert umfjöllun ríkir gagnvart
flestum íþróttagreinum öðrum en
knattspyrnu og handbolta, gagnvart
íþróttakonum og gagnvart fötluðum
íþróttamönnum. Loks einkennist ís-
lenskt íþróttamálfar í fjölmiðlum af
gáska og gamansemi, ýktu orðafari,
nýjungum í málfari og ríku skáldmáli.
Lokaniðurstaða rannsóknarinnar er
að umfjöllun um íþróttir á Íslandi ein-
kennist fyrst og fremst af sterkum til-
finningum og geðshræringum sem
lýsa sér í siðrænni afstöðu til íþrótta, í
íþróttaorðræðu bókmennta og fjöl-
miðla og í íþróttamálfari fjölmiðlanna.
Guðmundur Sæmundsson
Guðmundur Sæmundsson lauk BA-prófi í íslensku og norsku frá HÍ 1971, cand.
mag.-prófi í norrænu, málvísindum og íslensku frá Óslóarháskóla 1974 og M.Ed.-
prófi frá KHÍ 2002. Guðmundur hefur m.a. starfað við rit- og útgáfustörf og verið
framhaldsskólakennari við Framhaldsskólann í Skógum og Menntaskólann á
Laugarvatni. Frá 1996 hefur hann starfað sem fjarkennari við Verkmenntaskól-
ann á Akureyri og frá 2011 sem fjarkennari við Linné-háskólann í Växjö í Svíþjóð.
Hann hefur starfað við Kennaraháskóla Íslands, síðar Menntavísindasvið HÍ, frá
2001, fyrst sem stundakennari og síðan aðjunkt í 50% starfi en frá 2005 sem
aðjunkt í fullu starfi í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands á Laugarvatni.
Guðmundur er kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur Kolka, MA og doktorsnema við
Háskóla Íslands, og á 6 börn, 9 barnabörn og 1 barnabarnabarn.
Doktor
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
NÝ SENDING
UNGBARNALÍNAN
ECCO - KRINGLAN - SÍMI: 5538050
STEINAR WAAGE KRINGLAN & SMÁRALIND
WWW.SKOR.IS
Ecco Mimic
Stærðir: 19-26
Verð kr. 10.995