Morgunblaðið - 14.02.2015, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 45. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Ófótósjoppuð Cindy Crawford …
2. Prófaði allt 50 Shades kynlífið
3. Hefja afplánun í Hegningarhúsinu
4. Bobbi Kristina lenti í bílslysi
Aðdáendur hins sígilda tölvuleikjar
PONG hafa ástæðu til að gleðjast því
leikinn er nú hægt að spila á gler-
hjúpi Hörpu á meðan tónlistarhátíðin
Sónar stendur yfir í húsinu en í dag
er lokadagur hátíðarinnar. Milli leikja
mun tónlistin sem leikin er í Silfur-
bergi stýra ljósunum utan á húsinu.
Listamennirnir Atli Bollason og Owen
Hindley buðu upp á PONG-leik sl.
sumar á Hörpu og hafa nú endurtekið
leikinn. Þeir sem vilja leika PONG
koma sér fyrir framan við Hörpu,
tengjast þráðlausa netinu ,Play
PONG’ með snjallsíma og bíða þess
svo að röðin komi að þeim.
Leikið á Hörpu
Heimilislegur
sunnudagur verð-
ur á morgun kl. 13
á Kex hosteli.
Margrét Eir Hjart-
ardóttir mun
syngja lög úr
teiknimyndinni
Frozen, eða Fros-
in, saga mynd-
arinnar verður lesin og fléttugerð
kennd.
Frosin á Kex hosteli
Tónlistin við Fortitude, þáttaröð
ensku sjónvarpsstöðvainnar Sky sem
tekin var upp að mestu á Reyðarfirði í
fyrra og sýnd er á RÚV, var samin af
tónlistarmanninum Ben Frost sem
búið hefur og starfað hér á landi um
árabil. Frost sá um upptökur ásamt
Paul Evans og fóru þær
fram í hljóðverinu
Gróðurhúsinu. Um
flutning sá íslenski
tónlistarhópurinn
Reykjavík Sinfonia
auk Ben Frost,
Shahzad Ismaily,
Nadia Sirota og
Paul Corley.
Frost í Fortitude
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi suðaustanátt og víða 15-23 m/s síðdegis. Slydda og síðar
rigning, talsverð úrkoma á Suður- og Vesturlandi seinni partinn. Hlýnar, hiti 2 til 8 stig.
Á sunnudag Sunnan 15-23 m/s og rigning eða slydda, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 1
til 7 stig. Vestlægari síðdegis, él fyrir vestan og kólnandi veður. Á mánudag Suðvestan 8-
15 m/s og él en léttskýjað á Norðausturlandi. Frost yfirleitt 2 til 8 stig. Á þriðjudag
Suðvestanátt og dálítil él, en bjartviðri á Austurlandi.
Lengi leit út fyrir að keppnin í Aust-
urdeildinni væri lítið meira en auka-
keppni samanborið við barninginn
vestanmegin þar sem öll sterkustu lið-
in voru að blóðga hvert annað vikulega
í stórviðureignum. Á undanförnum vik-
um hefur Atlanta Hawks hinsvegar far-
ið hamförum austanmegin. Liðið vann
nítján leiki í röð, sem er fjórða lengsta
vinningsröð í sögu deildarinnar. »2-3
Haukarnir frá Atlanta
hafa farið hamförum
Bandaríkjamaðurinn Ted
Ligety varð í gærkvöldi
heimsmeistari í stórsvigi.
Mikil gleði braust út á
meðal áhorfenda á mótinu
en mótið er haldið í Vail í
Bandaríkjunum. Einar Krist-
inn Kristgeirsson var einnig
á meðal keppenda. Var hann
í 55. sæti eftir fyrri ferðina
og hafnaði í 48. sæti, um 15
sekúndum á eftir heims-
meistaranum. »1
Heimamaður varð
heimsmeistari
Kári Kristján Kristjánsson var besti
leikmaðurinn í öðrum þriðjungi Olís-
deildar karla í handknattleik að mati
Morgunblaðsins, sem gerir upp stöðu
mála í deildinni í dag. Hann er einn
þriggja Valsmanna sem
eru í úrvalsliði um-
ferða tíu til átján.
»2-3
Kári Kristján besti
leikmaðurinn
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Tilviljanir geta oft verið skemmti-
legar. Iðunn Steinsdóttir rithöfundur
samdi textann „Sumarást“ við lag
eftir Þorgeir D. Hjaltason, sem Jó-
hanna Linnet söng í Söngvakeppni
Sjónvarpsins 1987. Í kvöld syngur El-
ín Sif Halldórsdóttir, 16 ára sonar-
dóttir hennar, „Í kvöld“, frumsaminn
texta við eigið lag í úrslitum sömu
keppni.
Iðunn er ekki aðeins þekktur rit-
höfundur heldur hefur hún samið
marga texta sem hafa lifað í kunnum
lögum með þjóðinni. Þar má nefna
„Bíddu pabbi“, „Jón er kominn
heim“, „Ég fer í fríið“ og „18 rauðar
rósir“. Hún vill ekki gera upp á milli
ljóðanna en segir að sér þykir samt
einna vænst um ljóðin sem hún hafi
samið fyrir sjálfa sig.
„Ég vissi ekki að amma hefði átt
texta í keppninni, en hún er rosalega
flink og mér finnst allir textarnir
hennar sérlega flottir,“ segir Elín.
Amman sparar heldur ekki
stóru orðin um barnabarnið. „Hún er
yndisleg, stelpan, og ég er mjög
ánægð með hana. Hún er mjög list-
feng, flutningurinn var flottur hjá
henni í undanúrslitum Söngvakeppn-
innar og hún stendur sig mjög vel.“
Sérstök afmælisgjöf
Þegar Iðunn varð 75 ára í liðn-
um mánuði gaf Elín henni sérstaka
afmælisgjöf. „Ég fór heim til hennar
eftir skóla og spurði hana hvenær
hún hefði byrjað að semja ljóð. Þá
sýndi hún mér mörg eldgömul ljóð
eftir sig, meðal annars um vinkonu
sína, sem mér fannst ótrúlega falleg.
Þá sagði ég henni að ég ætlaði ein-
hvern tíma að semja lag við ljóð eftir
hana og ákvað síðan að gera það í
jólafríinu og gefa henni í afmæl-
isgjöf. Ljóðið heitir „Vefurinn“ og ég
kom henni á óvart í afmælinu með
því að flytja lagið.“ Iðunn tekur und-
ir það. „Hún er mjög skapandi og
skemmtileg og þetta var mjög gam-
an.“
Elín á ekki langt að sækja hæfi-
leikana. Helga Rut Guðmundsdóttir,
móðir hennar og dósent í tónmennt
við Háskóla Íslands, er doktor í tón-
listaruppeldi barna og á og rekur
tónlistarskólann Tónagull, þar sem
boðið er upp á námskeið fyrir for-
eldra og nýfædd börn þeirra. „Ég fór
fyrst með Elínu á tónlistarnámskeið
þegar hún var átta mánaða gömul, í
Bandaríkjunum,“ segir Helga og
áréttar að Elín hafi verið í tónlistar-
umhverfi frá blautu barnsbeini. Hún
æfði lengi dans og þar lék tónlistin
stórt hlutverk. „Mér hefur alltaf þótt
ótrúlega gaman að dansa og syngja
með,“ segir Elín og bætir við að hún
eigi mörg frumsamin lög í handrað-
anum.
Ekki hefur komið til tals að Elín
og Iðunn vinni saman að lagi og
texta en þær taka ekki fyrir að sam-
vinna á þessu sviði geti orðið að
veruleika. „Það er góð hugmynd,“
segir Iðunn.
Elín komst í úrslit Söngva-
keppninnar eftir að hafa flutt lag sitt
á fyrra undanúrslitakvöldinu. Fjöl-
skyldan og þar á meðal Iðunn var í
salnum og Elínu leist fyrst ekki á
blikuna. „Ég bað mömmu að mæta
ekki með margt fólk, því ég taldi það
trufla mig, en um leið og ég sá and-
litin þeirra slakaði ég á. Það hafði
góð áhrif að vita af fólkinu, sem mér
þykir vænt um, styðja mig.“
MSöngvakeppnin »46-47
Sjálfsmynd Elín Sif Halldórsdóttir og Iðunn Steinsdóttir, amma hennar,
hafa báðar samið texta við lag í Söngvakeppni Sjónvarpsins.
Elín Sif Halldórsdóttir og Iðunn Steinsdóttir, amma hennar, eiga ýmislegt sameiginlegt
Textahöfundar
í Söngvakeppni
Sjónvarpsins