Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 43

Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 43
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 2008 41 væri vegna þess að stofnunin þyrfti að treysta því að starfsmenn sinntu sínu hlutverki, en það vantaði í rauninni eftirfylgnina við hvern og einn starfsmann. Birna sagði að kröfunum væri ekki fullnægt en ástandið væri samt að lagast. Sigrún taldi að kröfum stjórnenda væri nokkurn veginn fullnægt hjá stofnuninni. Ösp sagði að kröfunum væri ekki fullnægt en stofnunin stæði sig nokkuð vel gagnvart öllum stjórnsýslulegum ákvörðunum. Hekla taldi að kröfunum væri fullnægt að mestu. Eru stofnanir með verklagsreglur um meðferð starfsmanna á tölvupósti og hafa þessar reglur verið kynntar starfsmönnum? Fimm þátttakendur af sex, í stofnunum B, C, D, E og F, sögðu að það væru til verklagsreglur um meðferð starfsmanna á tölvupósti. Birna hjá ríkisstofnun A sagði hins vegar að það væru ekki til neinar verklagsreglur um meðferð starfsmanna á tölvupósti. Í fjórum stofnunum, B, C, D og F, voru reglurnar kynntar starfsmönnum á starfsmannafundi. Í stofnun E voru reglurnar einungis kynntar starfsmönnum í tölvupósti. Tvær ríkisstofnanir, B og C, dreifa hand- bók til starfsmanna en í handbókinni eru allar reglur stofnunarinnar. Handbókin er líka aðgengileg starfs- mönnum á rafrænu formi. Borgarstofnanirnar þrjár, D, E og F, hafa ekki dreift handbók til starfsmanna en reglurnar eru til í handbók á rafrænu formi. Hjá ríkisstofnun B þurfa allir starfsmenn að kvitta fyrir að þeir hafi lesið þær reglur sem settar eru í handbók stofnunarinnar í hvert sinn sem nýjar reglur eru gefnar út. Hvað er gert við tölvupóst úr tölvum starfsmanna þegar þeir hætta störfum? Þegar þátttakendur voru spurðir hvað væri gert við tölvupóst úr tölvu starfsmanns þegar hann hætti störfum kom í ljós að ábyrgðarmenn skjalamála koma lítið nálægt þeim málum. Fimm þátttakendur af sex; Birna, Ösp, Erla, Hildur og Sigrún sögðu að það væri á ábyrgð yfirmanna að sjá til þess að tölvupóstur starfsmanna skilaði sér inn í skjalakerfið áður en starfsmenn hætta störfum. Hekla sagði hins vegar að gerðir væru þannig starfslokasamningar við starfsmenn hjá ríkisstofnun C að þeim bæri skylda til að fara yfir allan sinn tölvupóst og færa allt sem skiptir máli inn í skjalakerfið. Þegar þátttakendur voru spurðir hvort þeir teldu að mikilvægum gögnum væri jafnvel eytt úr tölvum starfsmanna þegar þeir hætta störfum kom fram hjá þátttakendum í stofnunum A, B, D og E að það væri mjög líklegt. Hjá stofnunum C og F töldu þátttakendur hins vegar ekki hættu á því að mikilvæg gögn týndust þegar starfsmenn hætta störfum. Samanburður á stofnunum Til þess að auðveldara væri að bera saman frásagnir þátttakenda var búinn til skali. Sjá töflu 1. Fyrir hvert þema voru stofnunum gefin stig eftir ummælum þátttakenda á skalanum 1-5. Í töflu 2 má sjá stig stofnana fyrir hvert þema og samanlögð stig þeirra. Ríkisstofnun C fær flest stig eða 56 af 65 mögulegum og ríkisstofnun B kemur þar rétt á eftir með 51 stig. Ríkisstofnun A fær hins vegar fæst stig eða 16 stig og samanlagt eru ríkisstofnanirnar þrjár með 123 stig af 195 mögulegum. Borgarstofnun F er með 37 stig af 65 mögulegum, borgarstofnun D með 33 stig og borgarstofnun E fær 28 stig, fæst stig borgarstofnananna. Samanlagt eru borgarstofnanirnar þrjár með 98 stig af 195 mögulegum. Ríkisstofnanirnar eru samanlagt með 25 stig fram yfir borgarstofnanirnar. Tafla1: Frásagnir þátttakenda á skalanum 1–5. Það má draga þá ályktun af niðurstöðum að meðferð og eftirfylgni við lög og reglugerðir sem snúa að tölvupósti starfsmanna sé jafnari á milli borgarstofnana heldur en á milli ríkisstofnana. Enn vantar þó nokkuð upp á að ástandið sé gott hjá borgarstofnunum. Hjá tveimur ríkisstofnunum, B og C, virðist ástandið vera nokkuð gott og meðferð og eftirfylgni við starfsmenn varðandi lög og reglugerðir til fyrirmyndar. En hjá ríkisstofnun A virðist ástandið vera frekar slæmt. Samantekt og lokaorð Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að ekki virðist vera um að ræða vandamál með varðveislu tölvupósts sem berst beint á netfang stofnana. Aftur á móti virðist vera erfitt að fylgjast með varðveislu tölvupósts sem berst á netföng starfsmanna. Af niðurstöðum má draga þær ályktanir að í fjórum stofnunum af sex sé þó nokkur hluti af tölvupósti sem berst á netfang starfsmanna, og inniheldur erindi, ekki varðveittur í skjalakerfi stofnananna. Má því ljóst vera að þessar stofnanir framfylgja ekki lögum um varðveislu tölvupósts (sjá lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu nr. 30/2002; lög Skali Svör þátttakenda 1 Nei/illa/aldrei 2 Sjaldan/frekar illa 3 Hvorki né/sæmilega 4 Ágætlega/frekar vel 5 Já/vel/oft
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.