Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 54

Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 54
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 200852 • Vaxandi umsvif og aukin efnahagsleg þýð- ing fyrirtækja sem byggja starfsemi sína að mestu á upplýsingum af einhverju tagi, s.s. fjármálafyrirtækja, ráðgjafarfyrirtækja og fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. • Sífellt umfangsmeira og flóknara lagaumhverfi og auknar kröfur um skjalastjórn samfara því. • Tilurð og útbreiðsla nýrrar tækni, s.s. tölva, prentara og ljósritunarvéla, faxtækja og Internets (Saffady, 2004, s. 3). Eitt mikilvægasta hjálpartæki skjalastjórnenda fyrir- tækja og stofnana í dag má telja alþjóðlega staðalinn um skjalastjórn, ÍST/ISO 15489:2001, sem gekk í gildi árið 2001. Segja má að í staðlinum endurspeglist þær viðteknu aðferðir við skjalastjórn sem höfðu verið notaðar frá upphafi en fengu ekki formlegt gildi fyrr en með útgáfu hans. Sumir hafa tekið svo djúpt í árinni að segja að með tilurð hans hafi skjalastjórn verið fest í sessi sem fræðigrein (Stephens, 2001, s. 70). Staðallinn tekur jafnt til skjalastjórnar hjá opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum þar sem skjöl eru mynduð eða móttekin og gildir um öll skjöl á hvaða formi sem er. Mikilvægi hans fyrir skjalastjórn er talið jafnast á við mikilvægi ISO 9000:2000 staðalsins fyrir gæðastjórnun. Staðallinn tók gildi á Íslandi þann 1. maí 2005. Á Íslandi hafa kröfur um skilvirkni fyrirtækja og stofnana í rekstri og bætta þjónustu þeirra stuðlað að úrbótum í skjalamálum en fleira kemur til. Með setningu Stjórnsýslulaga árið 1993 og Upplýsingalaga árið 1996 voru gerðar þær kröfur til stjórnvalda að þau tækju upp kerfisbundna skjalastjórn svo hægt væri að framfylgja þessum lögum. Í Stjórnsýslulögunum er m.a. að finna ákvæði um upplýsingarétt almennings en þar segir að aðili máls eigi rétt á að kynna sér skjöl og önnur gögn er málið varða og fá afrit af þeim með ákveðnum takmörkunum þó. Upplýsingalögin varða rétt almennings til aðgangs að upplýsingum úr gögnum í vörslu stjórnvalda hvort sem um er að ræða persónulegar upplýsingar um einstaklinginn sjálfan eða upplýsingar sem almenningur á rétt til aðgangs að. Í lögum þessum er beinlínis kveðið á um að stjórnvöldum sé skylt að skrá mál sem koma til meðferðar hjá þeim á kerfisbundinn hátt og varðveita þau með aðgengilegum hætti. Engu að síður er þó enn verk að vinna hvað varðar skjalastjórn. Samkvæmt skýrslu Þjóðskjalasafns Íslands um umfang og eðli rafrænnar skjalavörslu og annarrar rafrænnar gagnavinnslu hjá opinberum aðilum, er framkvæmd var árið 2004, fóru um 40% opinberra aðila ekki að ákvæðum Upplýsingalaganna um kerfisbundna skráningu mála þrátt fyrir að tæp 10 ár væru þá liðin frá gildistöku þeirra og þurfa stjórnvöld að beita sér fyrir úrbótum á þessu sviði (Þjóðskjalasafn Íslands, 2005, s. 12). Áherslur íslenskra stjórnvalda á sviði upp- lýsingamála, og þá einkum á sviði rafrænnar stjórn- sýslu, auka stöðugt mikilvægi skjalastjórnar en þær birtast m.a. í ritunum Auðlindir í allra þágu – Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004 ­ 2007 og Framtíðarsýn um rafræna stjórnsýslu 2004 sem unnin voru fyrir forsætisráðuneytið. Aukin rafræn stjórnsýsla gerir kröfur um gott skipulag skjalamála og öryggi við meðhöndlun upplýsinga. Fjölmörg einkafyrirtæki hafa innleitt skjalastjórn, þótt jafnríkar lagaskyldur séu ekki gerðar til þeirra og opinberra aðila, m.a. til að tryggja aðgang að upplýsingum og öryggi þeirra, styðja við gæðastarf og bæta þjónustu. Félag um skjalastjórn mun áfram vinna að upprunalegum markmiðum sínum um eflingu þekkingar og skilnings á sviði skjalastjórnar þó áherslur breytist með nýrri tækni. Heimildir: Félag um skjalastjórn – IRMA (2008). Um félagið. Reykjavík: Félag um skjalastjórn. Sótt 10. janúar 2008: http://www.irma.is/ Umf%C3%A9lagi%C3%B0/tabid/211/language/en-US/Default. aspx Forsætisráðuneytið (2004). Auðlindir í allra þágu: Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004­2007. [Reykjavík]: Forsætisráðuneytið. Forsætisráðuneytið (2004). Framtíðarsýn um rafræna stórnsýslu. [Reykjavík]: Forsætisráðuneytið. Jóhanna Gunnlaugsdóttir og Kristín H. Pétursdóttir (1998). Félag um skjalastjórn tíu ára. Bókasafnið, 22, s. 6-7. Saffady, William (2004). Records and Information Management: Fundamentals of Professional Practice. Lenexa, Kansas: ARMA International. Stephens, David O. (2001). The world´s first international records management standard. Information Management Journal, 35(3), s. 68–70. Þjóðskjalasafn Íslands (2005). Rafræn skjala­ og gagnavarsla ríkisstofnana: Könnun Þjóðskjalasafns á skjalavörslu ríkisstofnana árið 2004. Reykjavík: Þjóðskjalasafn Íslands. Þátttakendur á fyrsta fræðslufundi starfsársins 2008­2009 hlýða á fyrirlestur Ingrid Kuhlman um markmiðasetningu. Mynd: Heiðrún Dóra Eyvindardóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.