Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 28

Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 28
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 200826 Síðastliðin október sótti ég ARMA (American Records Management Association) ráðstefnu í Baltimore. Þar kenndi ýmissa grasa í fyrirlestrum og hér fyrir neðan er samantekt úr þremur fyrirlestrum sem ég fór á undir yfirskriftinni Metadata. Áður en lengra er haldið er rétt að útskýra hug- takið metadata. Algengasta útskýringin á metadata er gögn um gögn, nánar tiltekið gögn sem lýsa gögnum eða segja okkur hvað um sé að ræða. Metadata nýtist við að finna gögn eftir lýsingu þeirra frekar en stað- setningu. Íslenska orðið yfir metadata er lýsigögn og verður það notað héðan í frá. Fyrstu tveir fyrirlestrarnir fjölluðu um hvað lýsi- gögn eru. Þegar rafrænt skjal verður til fylgja því frá upphafi lýsigagnaupplýsingar. Dæmigerð lýsigögn úr word skjali innihalda til dæmis heiti skjals, stærð þess, hvenær það var búið til og hvenær því var breytt. Lýsigögn verða til á tvo vegu, annars vegar eru það sjálfvirkar kerfisupplýsingar og hins vegar eru upplýs- ingar eða lýsingar sem við setjum inn sjálf. Á veraldarvefum taka leitarvélar í sífellt meiri mæli mið af hvers kyns lýsigögnum. Það er því mikilvægt að skrá meðvitað lýsigögn með það í huga hvernig eigi að finna efnið. Auðveldara er að finna vel skráð efni og það fær meira vægi í leitarniðurstöðum. Lýsigögn gegna einnig mikilvægu hlutverki í skjalastjórn. Þau vernda sönnunargildi skjala, tryggja og stjórna aðgengi, auka skilning og hjálpa til við að staðsetja gögn. Áhugaverð aðferð við notkun lýsigagna var tekin fyrir í fyrirlestri sem fluttur var af Miroslav Sirl. Hugmynd hans fól í sér að setja rafræn lýsigögn á pappír. Með því að nota pappír sem miðil fyrir lýsigögn má komast hjá skjalafalsi. Í dag búum við yfir fjölbreyttri tækni sem hægt er að nota til þess að vista stafræn gögn beint á pappír. Fyrirtækið HP Labs á Indlandi hefur þróað tækni sem gengur út á að setja vatnsmerki á bakhlið pappírs sem hefðbundinn Alexandra Þórlindsdóttir Metadata Samantekt þriggja fyrirlestra af ARMA ráðstefnunni í Baltimore 7.­10. október 2007 skanni les merkingu úr með hugbúnaði sem fyrirtæk- ið hefur hannað. Hægt er að sannreyna upplýsingar í gegnum vefsíðu á þeirra vegum. Með þessari tækni er hægt að setja inn upplýsingar um höfund skjals, fjölda blaðsíðna, leyndar upplýs- ingar, mynd og rafræna undirskrift sem varpað er á skjalið sjálft. Einnig má nota punktamynd eða strika- merki til að setja þessar upplýsingar inn í skjalið sem skannar eru síðan látnir lesa. Inn í skjalið er hægt að bæta við upplýsingum um breytingar á skjalinu jafn- óðum ásamt dagsetningum. Þannig getur viðtakandi séð í gegnum skanna hvenær skjalinu hafi síðast verið breytt og af hvaða einstaklingi. Þó svo að pappír og stafræn gögn komi út úr mis- munandi umhverfi höfum við tilhneigingu til þess að meðhönda rafræn gögn eins og þau séu á pappír. Rafræn gögn búa hins vegar yfir tæknimöguleikum sem hingað til hafa ekki náð yfir á pappír. Þetta dæmi hér fyrir ofan er tilraun til þess að nota rafræna tækni og varpa henni yfir á pappír. Þessi leið gefur okkur nýja sýn, ekki aðeins á notkun lýsigagna heldur einnig sterkari tengsl milli rafrænna gagna og pappírsgagna. Þetta verður sífellt mikilvægara þegar skjalastjórn- unarkerfin eru að færast frá pappír í rafrænt form. Á ARMA ráðstefnunni var af mörgu að taka og komst ég ekki yfir nema brot af því sem í boði var og vakti áhuga minn. Fjöldi fólks sem kemur að skjalastjórn safnast þarna saman víðs vegar úr heim- inum. Fyrir utan fyrirlestra er EXPO sýningin þar sem hægt er að sjá hvað verið er að bjóða upp á í hugbúnaði, tækni og geymslulausnum. Ekki má svo gleyma partíunum þar sem gefst tækifæri til þess að hitta fólk sem er að fást við sömu áskoranir í sínum daglegu störfum. Fyrir þá sem hafa áhuga verður næsta ARMA ráðstefna 20.-23. október í Las Vegas. Hægt er að lesa nánar um hana á slóðinni: http:// www.arma.org/conference/2008/index.cfm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.