Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 49

Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 49
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 2008 47 um að það myndu koma fram háværar kröfur um að endurreisa Landsaðganginn og að álagið á þá og bókasöfnin ykist mikið aftur. Sennilega yrði meira um að fólk bæði um að einstakar greinar yrðu keyptar beint frá útgefanda því að þótt fólk hafi ekki rafrænan aðgang að þessum greinum þá megi alltaf kaupa þær rafrænar frá útgefendunum. En það myndi þýða „gífurlega aukinn kostnað“ eins og einn orðaði það. Það virðast því allir, sama hvort það eru bókasafns- og upplýsingafræðingar eða sérfræðingar, vera mjög jákvæðir í garð rafræna efnisins þótt ýmislegt bendi til að tilkoma þess sé farin að hafa talsverð áhrif á störf og hugsanlega mikilvægi bókasafns- og upplýsingafræðinga. Sérfræðingar geta orðið gert ýmislegt sjálfir sem þeir voru áður algerlega háðir bókasafns- og upplýsingafræðingum með. En, eins og fram hefur komið, er þó alltaf eitthvað sem þeir þurfa aðstoð við og sums staðar virðist eftirspurnin eftir millisafnalánaþjónustu jafnvel fara vaxandi aftur. Breytingar á millisafnalánum Heimildir sýna að millisafnalánum virðist hafa fækkað alls staðar eftir að samið var um Landsaðganginn en árið 2000 varð, með örfáum undantekningum, toppurinn í millisafnalánum sérfræðibókasafna á Íslandi (Hagstofa Íslands, 2006; Þórný Hlynsdóttir og Þóra Gylfadóttir, 2004). Þetta er í samræmi við niðurstöður ýmissa erlendra rannsókna sem benda til að svokallaðar pakkaáskriftir hafi dregið úr þörfinni fyrir millisafnalán (sjá t.d. Goodier og Dean, 2004; Wiley og Chrzastowski, 2005). Niðurstöður Echeverria og Barredo (2005) benda einnig til þess að nýjum greinum fækki í því efni sem pantað er með millisafnalánum; að útgáfuár flestra þeirra séu frá árunum 1982–1996. Þetta er í samræmi við skoðun bókasafns- og upplýsingafræðings á Storð sem sagði að þar sé aðallega um að ræða beiðnir um greinar sem eru eldri en frá því um 1995, enda lítið um að rafræn tímarit Landsaðgangs séu með fullan aðgang að efni fyrir þann tíma. Hann telur þó að betri skráning eldra efnis skili sér hugsanlega í auknum fjölda millisafnalána allra seinustu árin sem stafi trúlega af því að Storð hafi haldið betur í pappírsáskriftir en t.d. ýmis erlend sérfræðibókasöfn. Samningar um rafrænar áskriftir hljóði yfirleitt upp á að bannað sé að prenta það efni út og senda til þriðja aðila. Samfara því að meira er skráð af eldra efni séu millisafnalánin hins vegar að verða erfiðari. Millisafnalán virðast samt áfram taka umtalsverðan tíma hjá um helmingi bókasafns- og upplýsingafræðinganna sem talað var við. Framtíðarhlutverk og þjónusta sérfræðibókasafna Boyce et al. (2004), Klugkist (2001) og Ramirez (2003) telja að áfram verði þörf fyrir bókasöfn með hefðbundum, prentuðum bókakosti þótt ekki sé vafi á að rafræna efnið muni alls staðar sækja á og þar með eflast það hlutverk bókasafns- og upplýsingafræðinga að sinna meiri gæðastýringu á efni sem söfnin vilja bjóða upp á. Krafan um að bókasafns- og upplýsingafræðingar sérhæfi sig meira í efnisleit og ýmiss konar tæknimálum verður einnig háværari. Þetta er í samræmi við niðurstöður rannsóknarinnar því að allir viðmælendur sjá fyrir sér breytingar á sérfræðibókasöfnunum þótt þeim beri saman um að bókasöfn eða upplýsingamiðstöðvar verði áfram til staðar í einhverri mynd. Þörfin fyrir að einhver haldi utan um „batteríið“, og haldi reiðu í „kaosinu“, eins og sérfræðingar orðuðu það, verður trúlega áfram til staðar og henni munu bókasafns- og upplýsinga- fræðingar sinna. Í raun benda niðurstöðurnar til þess að sérfræðingar eigi von á minni breytingum. Því að hversu duglegir sem þeir eru að nota rafræna efnið þá er eins og þeir sjái bókasöfnin og hlutverk bókasafns- og upplýsingafræðinganna áfram fyrir sér í svipaðri mynd. Þeir meta mikils það grunnhlutverk að öllu sé haldið í röð og reglu og passað að efni týnist ekki. Og þeir munu áfram leita til bókasafnanna eða upplýsingamiðstöðvanna og þiggja aðstoð við leitir og efnisöflun, ekki síst eldra efnis. Þá myndi a.m.k. hluti sérfræðinga vilja geta leitað þangað eftir aðstoð við uppsetningu heimildaskráa og ritlista, svo og að koma sínum persónulegu sérprentasöfnum á aðgengilegra form. Einhverjir nefndu að gott væri að bókasafns- og upplýsingafræðingar kæmu meira að skráningu korta og mynda. Maclean (2006) telur að sveigjanleiki og það að vera opinn fyrir nýjum tækifærum og möguleikum sé bókasafns- og upplýsingafræðingum afar mikilvægt nú þegar rafræna efnið er að festast í sessi og hefðbundnari verkefnum fækkar. Þeim bókasafns- og upplýsingafræðingum, sem tekin voru viðtöl við, bar saman um að sérfræðibókasöfnin stæðu frammi fyrir talsverðum breytingum. Sem stétt þyrftu bókasafns- og upplýsingafræðingar að huga vel að sínum málum og framtíð og hvort ekki væri nauðsynlegt að fikra sig að einhverju leyti inn á nýjar brautir. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að vinna við vefsíður sé vaxandi hlutverk ásamt vinnu við útgáfu, sem e.t.v. tengist því að útgáfan er að verða meira rafræn. Þá fer mikill tími í það að færa eldri rit stofnananna og tengdra aðila á rafrænt form og gera þau aðgengileg á vefsíðum með fullum texta. Að mati bókasafns- og upplýsingafræðinganna verður framtíðarhlutverkið að velja gagnasöfn, halda utan um og gera eldra efni rafrænt og sýnilegt fyrir notendur, auk þess sem meiri áherslu þarf að leggja á einhvers konar gæðastýringu á því efni sem aðgangur er veittur að og verið er að velja fyrir bókasöfnin. Einnig virtist a.m.k. hluta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.