Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 3

Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 3
Bókasafnið • 32. árgangur • október 2008 • ISSN 0257-6775 Útgefandi: Upplýsing. Félag bókasafns-og upplýsingafræða Pósthólf 8865 | 128 Reykjavík | Sími 864-6220 | Netfang: upplysing@upplysing.is Veffang http:/www.upplysing.is Prentun: Oddi Letur: Simoncini Garamond Veffang: http://www.bokasafnid.is Mynd á kápu: Evrópskir landsbókaverðir á ársfundi CENL (Conference of European National Librarians) í Helsinki árið 2007. © Helsinki University / National library of Finland Ritnefnd: Ásdís Paulsdóttir ritstjóri – asdisp@Einkaleyfastofan.is Eva Sóley Sigurðardóttir meðstjórnandi evasoleys@gmail.com Kristín Ingunnardóttir gjaldkeri – kingunnar@gmail.com Martha Ricart vefstjóri – martha@hafnarfjordur..is Hallfríður Baldursdóttir ritari - hallbald@bok.hi.is Bókasafnið hefur frá árinu 1989 verið lyklað í Library & Information Science Abstracts (LISA) Þorsteinn Hallgrímsson Evrópubókasafnið – TEL Hildur Gunnlaugsdóttir Stafræna Evrópubókasafnið Þorsteinn Hallgrímsson TELplus Örn Hrafnkelsson ENRICH: evrópskar net- og upplýsingaveitur um menningararfleifð Þorsteinn Hallgrímsson EDLNet Heiðrún Dóra Eyvindardóttir og dr. Jóhanna Gunnlaugsdóttir Að loknu afmælisári Dr. Ágústa Pálsdóttir Frumkvæði og fagmennska: ráðstefna í tilefni af 50 ára afmæli kennslu í bókasafns- og upplýsingafræði, haldin 23. mars 2007 Alexandra Þórlindsdóttir Metadata: samantekt þriggja fyrirlestra af ARMA ráð- stefnunni í Baltimore 7.-10. október 2007 Ólöf Benediktsdóttir Fræðasamfélög Bragi Þorgrímur Ólafsson Endurreisn Alþingis 1845 og aðgangur að skjala- og bókasöfnum Sigríður Ó. Halldórsdóttir Tölvupóstur opinberra starfsmanna: meðferð og eftir- fylgni við lög og reglugerðir Pálína Héðinsdóttir Bókasöfn í breyttu umhverfi: tilviksathugun á fjórum stofnunum á náttúrufræðasviði Ingibjörg Hallbjörnsdóttir Tuttugu ár liðin frá stofnun Félags um skjalastjórn Minningarorð Bækur og líf Afgreiðslutími safna Höfundar efnis 2 5 8 9 13 15 22 26 27 33 36 44 51 54 56 59 64 Efnisyfirlit Frá ritstjóra Bókasafnið er seint á ferðinni þetta árið og biðst rit- stjórn velvirðingar á því. Ástæða þessa eru annir og veikindi. Efni blaðsins er að þessu sinni að mestu leyti helgað Evrópuverkefnum Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og yfirliti um helstu atburði 50 ára afmælisárs kennslu í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Íslands. Með Evrópuverkefnunum er stefnt að samtengingu bókfræðilegra skráa og stafrænna gagnasafna menningarstofnana Evrópu í eina gátt. Með þátttöku í þeim er einnig verið að vinna í haginn fyrir samtengingu íslenskra gagnagrunna og að auknum gæðum bókfræði- og lýsigagna þannig að leitarmöguleikar og leitarheimtur batni. Alls eru það sjö greinar sem fjalla um þetta tvennt. En, eins og kemur fram í umfjöllun um afmælisárið, hafa rannsóknir í bókasafns- og upplýsingafræði aukist og í blaðinu eru tvær greinar sem byggjast á lokaverkefnum til meistaraprófs í fræðunum og ein þar sem greint er frá rannsókn til B.A. prófs. Þá er fróðleg grein um Alþingi og aðgang að skjala- og bókasöfnum, grein um Félag um skjalastjórn, sem er orðið 20 ára, og önnur um metadata (lýsigögn). Þá eru stuttar greinar um bækur og þýðingu þeirra í lífi einstaklinga og þjóðar. Það er bæði skemmtilegt og fróðlegt að lesa slíkar reynslusögur og mættu aðrir fjölmiðlar taka þetta upp meðfram hinni ómissandi bókarýni sem skellur á manni um leið og jólabókaflóðið. Blaðið er minna að umfangi en undanfarin ár en efnið sýnir að mikið er um að vera í safnaheiminum og kennsl- unni og er það ánægjulegt. Töluverð breyting varð á ritstjórninni í vor en Eva Sóley Sigurðardóttir, Hallfríður Baldursdóttir og Martha Ricart gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi starfa. Eru þeim færðar þakkir fyrir gott framlag til blaðsins, svo og ánægju- legt samstarf. Vel gekk að manna lausar stöður í nefnd- inni en eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér: Einar Ólafsson, Hallfríður Kristjánsdóttir, Kristína Benedikz og Sigurborg B. Ólafsdóttir og eru þau hér með boðin velkomin til starfa. Kristín Ingunnardóttir verður áfram gjaldkeri blaðsins og er gott að hafa hana áfram. Guðrún Pálsdóttir sá um prófarkalestur og frágang í prentsmiðju og eru henni þökkuð þau störf. Höfundum efnis og öllum þeim sem lögðu hönd á plóg- inn við að koma blaðinu út er þökkuð óeigingjörn vinna. Og eins og áður er fólk hvatt til að skrifa í blaðið og / eða senda ritstjórn hugmyndir að efni. Ásdís Paulsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.