Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 19

Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 19
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 2008 17 stjórnendur og kennara var efni annars hádegisfund- ar, sem haldinn var 11. október. Á fundinum héldu bókasafns- og upplýsingafræðingarnir Anna Björg Sveinsdóttir og Ingibjörg Baldursdóttir sinn fyrirlest- urinn hvor og fundarstjórn var í höndum Kristínar Óskar. Umfjöllun á þriðja hádegisfundi snerist um skráningu korta og mynda. Fundurinn var haldinn 8. nóvember og bókasafns- og upplýsingafræðingarnir Þórunn Erla Sighvats og Sólveig Þorsteinsdóttir fluttu sitt erindið hvor. Fundarstjóri var Ágústa Pálsdóttir. Í upphafi ársins 2007, á hádegisfundi 10. janúar, var fundarefnið Internetið og vefmál. Þar töluðu bókasafns- og upplýsingafræðingarnir Kristín Ósk Hlynsdóttir og Anna Sveinsdóttir um Internetið og vef Háskóla Íslands. Ágústa Pálsdóttir sá um fundarstjórn. Efnisorðalyklar sem tæki til upplýsingamiðlunar, gerð efnisorðalykla og mikilvægi þeirra fyrir skjala- og bókasöfn var efni hádegisfundar 7. febrúar. Haldin voru þrjú erindi. Fyrstu tvö erindin fluttu bókasafns- og upplýsingafræðingarnir Þórdís T. Þórarinsdóttir og Ragna Steinarsdóttir en hið þriðja Sigmar Þormar félagsfræðingur. Jóhanna Gunnlaugsdóttir var fundarstjóri. Bókasafns- og upplýsingafræðingarnir Ragna Eliza Kvaran, Hrafnhildur Hreinsdóttir og Guðmundur Guðmarsson fjölluðu um fjölbreyttan starfsvettvang starfsstéttarinnar 7. mars. Fundar- stjórn annaðist Jóhanna Gunnlaugsdóttir. Fjallað var um mikilvægi skjalastjórnar við innleiðingu á gæðastjórnun á síðasta hádegisfundinum 11. apríl. Brynhildur Jónsdóttir, formaður stjórnar Katalogosar, var fundarstjóri en Jóhanna Gunnlaugsdóttir og Sólveig J. Guðmundsdóttir lögfræðingur héldu fyrirlestra. Hádegisfundirnir 7. febrúar, 7. mars og 11. apríl voru teknir upp á band og settir inn á heima- síðu bókasafns- og upplýsingafræðiskorar. Þá fékk skorin glærur frá erindum allflestra fyrirlesara til þess að setja inn á heimasíðu skorarinnar. Bókasafns- og upplýsingafræðiskor tók þátt í ráð- stefnuhaldi annarra aðila í tilefni af afmælinu eins og fyrr greinir. Jóhanna Gunnlaugsdóttir flutti annál um nám og starf í bókasafns- og upplýsingafræðiskor í 50 ár á landsfundi Upplýsingar sem haldinn var dagana 6. og 7. október 2006 á Hótel Selfossi og bar heitið Fjölbreytni í fyrirrúmi. Þar sat hún einn- ig fyrir svörum í málstofu um námið í skorinni. Þá flutti Jóhanna afmælisávarp í upphafi Þjóðarspegils, sjöundu ráðstefnu í félagsvísindum, sem haldinn var í Háskóla Íslands 27. október 2006 og afmælisávarp á alþjóðlegu skráningarráðstefnunni, Back to basics – and flying into the future, sem haldin var á Grand Hótel Reykjavík 1. og 2. febrúar 2007 á vegum Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fleiri aðila. Í tengslum við afmælisárið hélt Irene Wormell, prófessor emerita frá háskólanum í Borås, erindi í Þjóðarbókhlöðu 28. nóvember og námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands 30. nóvember 2006 Á fundi um efnisorðalykla. Gestir á fundi um fjölbreyttan starfsvettvang. Gestir á fundi um fjölbreyttan starfsvettvang.Hagstofa Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.