Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 48

Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 48
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 200846 fyrir sérfræðinga hvaðan efnið er komið en það yki skilning á því hvað Landsaðgangurinn kostar og hvers virði hann er ef það væri ljósara hvað hann býður raunverulega upp á. Þetta leiðir hugann að því hvernig kynningar- og leiðbeiningarstarfi bókasafns- og upplýsingafræðinganna er háttað. Mikilvægi Landsaðgangsins birtist þó e.t.v. skýrast í því að í munni flestra viðmælenda virðist hann vera orðinn eins konar samnefnari fyrir rafrænt efni. Bókasafns- og upplýsingafræðingarnir virtust samt álíta að þau sérhæfðu gagnasöfn, sem keyptur er aðgangur að utan Landsaðgangs, nýtist sérfræðingum viðkomandi stofnana betur. Það er svolítið forvitni- legt að velta fyrir sér ástæðu þessa. Hugsanlega stafar það af því að þau kosta talsvert aukalega og því sé verið að sannfæra sig um að sú fjárfesting skili sér. Leitarmöguleikar gagnasafna Landsaðgangs virðast þó falla sérfræðingunum, sem talað var við, almennt vel í geð nema einum sem vill helst „googla“ sem mest, auk þess að nota PubMed gagnasafnið sem ekki er hluti Landsaðgangs en opið öllum. Það virðist einnig fara talsvert eftir eðli rann- sóknarstofnana hvernig upplýsingum og efni sér- fræðingar leita helst að. Á Eykt, Fold og Storð eru mikið stundaðar grunnrannsóknir og í náttúru- vísindum byggjast þær bæði á eldri rannsóknum og því sem er alveg nýtt. Á Ósi eru hins vegar meira stundaðar hagnýtar rannsóknir eða unnin ýmis verkefni fyrir framkvæmdaaðila. Þau verkefni virðast hvert öðru lík og byggjast meira á tilvitnunum í eigið efni og þörfin fyrir að fylgjast með því nýjasta í rafrænum gagnasöfnum því ef til vill ekki sú sama. Hæfni til að tileinka sér nýjungar - kynningarstarf Borgman (2000) og Tenopir (2003) telja að fagsvið og samspil þess og hefðar notandans fyrir því að lesa sér til og nota bókasöfn, hvort heldur sem þau eru heðfbundin með prentefni eða rafræn, hafi áhrif á hæfni og vilja fólks til að tileinka sér nýjungar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar virðist jákvætt viðhorf til bókasafna, löng hefð fyrir því að nota þau, svo og notkun bókasafna á námsárum, geta haft áhrif á hæfni sérfræðinga og vilja til að tileinka sér nýjungar. Einnig það hversu fljótar stofnanirnar og bókasöfnin, sem viðkomandi tengist, voru að taka í notkun tölvur og nýja tækni við gagnaúrvinnslu. Þeir bókasafns- og upplýsingafræðingar, sem talað var við, töldu vefsíður bókasafnanna afar mikilvægar. Þar hafi þeir komið fyrir upplýsingum um rafrænt efni sem sérfræðingum standi til boða, t.d. lista yfir tímarit og gagnasöfn. En svo er eins og það vanti eftirfylgni til að miðla þessum upplýsingum áfram til sérfræðinganna því að það er líkast því að þeir séu ekki nógu meðvitaðir um möguleika vefsíðnanna. Er hugsanlegt að framsetningin á þessu sé að mati sérfræðinganna of flókin þannig að þeir nýti það ekki þess vegna? Eða frekar að meira kynningarstarf hafi vantað? Allir töldu bókasafns- og upplýsingafræðingarnir sig þó eitthvað hafa kynnt rafræna efnið, a.m.k. stundað einstaklingskennslu og sent upplýsingar í tölvupósti. Þetta virðist hins vegar að mestu leyti hafa farið fram hjá sérfræðingunum; allir nema einn telja sig enga kynningu hafa fengið. Þeir sögðust sakna þessa mikið; þeir hafi fyrst og fremst þurft að þreifa sig áfram sjálfir. Einn gerði því jafnvel skóna að bókasafns- og upplýsingafræðingar væru svona tregir með kynningarnar af því að þeir vildu halda þessari kunnáttu fyrir sig. Löng tæknihefð sumra stofnananna virðist samt gera það að verkum að sérfræðingar þar komast upp á lag með að notfæra sér rafrænt efni, sama á hvaða aldri þeir eru, þrátt fyrir ónóga kynningarstarfsemi. Þessi umræða um kynningar- og leiðbeiningarstarf vekur upp spurningar. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að a.m.k. sumir bókasafns- og upplýs- ingafræðingarnir veigri sér við að stunda öfluga kynningarstarfsemi. Það er áhugavert að velta fyrir sér hvort þetta geti stafað af því að þennan þátt vanti, eða hafi vantað, í menntun bókasafns- og upplýsinga- fræðinga. Hvað gerist ef Landsaðgangur leggst af? Þrátt fyrir að sérfræðingar virðist ekki gera sér ljósa grein fyrir því hvar þeir eru að leita að efni og e.t.v. skipti það ekki höfuðmáli þá benda niðurstöðurnar til að Landsaðgangurinn sé í raun að verða kjölfestan í upplýsingaleit og upplýsingaöflun. Bæði á sérfræðibókasöfnum og upplýsingamiðstöðvum og hjá sérfræðingunum sjálfum. Eftirfarandi athugasemdir komu frá sérfræðingum þegar nefndur var sá möguleiki að Landsaðgangur legðist af: Einn taldi það „hræðilegt“; fólk yrði þá aftur „hangandi í bókasafnsfræðingnum að finna þetta eða finna hitt“. Og annar sagði að það væri „alveg óvinnandi vegur“ fyrir bókasafnsfræðinginn að þurfa að fara að leita að öllu efni fyrir sig. Rannsóknaumhverfið myndi líka breytast mikið ef Landsaðgangs nyti ekki lengur við því „eftir að hafa kynnst því að nota Web of Science þá væri það einhvern veginn svo mikið að fara bara aftur í barnaskóla“. Sá þriðji hafði eftirfarandi að segja: „Þetta er eitthvað sem ég bara verð að hafa. Þetta væri ... eins og að taka ofninn úr bakaríi og segja fólki að halda áfram að vinna þó að það sé ekkert hægt að baka lengur. Þá væri bara enginn grundvöllur fyrir stórum hluta af því sem ég geri....“ Bókasafns- og upplýsingafræðingunum bar saman
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.